Fréttablaðið - 04.09.2021, Blaðsíða 38
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR
Á GÖNGUDEILD SÓTTVARNA
Viltu verða hluti af teyminu okkar á Göngudeild sóttvarna og sinna fjölbreyttu
og áhugaverðu starfi á spennandi vinnustað?
Á Göngudeild sóttvarna er m.a. tekið á móti fólki sem sótt hefur um dvalarleyfi hér á landi
vegna vinnu eða náms og sem sótt hefur um alþjóðlega vernd. Einnig sinnir deildin ferðamanna-
bólusetningum, berklarakningu og ráðgjöf til annarra stofnanna.
Góð tungumála- og tölvukunnátta er nauðsynleg þar sem stór hluti starfseminnar fer fram á ensku
og felur í sér mikil samskipti í töluðu og rituðu máli. Mikil samskiptahæfni og sjálfstæði í starfi nauðsynleg.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Boðið er upp á góðan aðlögunartíma.
Starfshlutfall er 100%. Umsóknarfrestur er til og með 13.09.2021.
VIRÐING - SAMVINNA - FAGMENNSKA
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Guðmundsdóttir - ingibjörg.gudmundsdottir@heilsugaeslan.is - 513 5130
Sjá nánar á www.starfatorg.is og á www.heilsugaeslan.is undir laus störf
Trausti fasteignasala, trausti@trausti.is,
s.546-5050, Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Fasteignasali óskast!
Trausti fasteignasala óskar eftir að ráða
löggiltan fasteignasala eða nema til löggildingar
fasteignasala til starfa.
Vaxandi fasteignasala í léttu og skemmtilegu
starfsumhverfi. Góðir tekjumöguleikar.
Reynsla af sölu fasteigna kostur.
Fáið frekari upplýsingar hjá Kristjáni Baldurssyni
í síma 867-3040 eða kristjan@trausti.is
PROTOCOL ASSISTANT
Sendiráð Bandaríkjanna auglýsir stöðu
Protocol Assistant lausa til umsóknar.
Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu sendiráðsins:
https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/
Umsóknir skulu sendar í gegnum
Electronic Recruitment Application (ERA)
The U.S. Embassy in Reykjavik is seeking an individual
for the position of Protocol Assistant. Application instructions
and further information can be found on the Embassy’s home
page:https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/
Applications must be submitted through
Electronic Recruitment Application (ERA)
leitar að
AUGLÝSINGASTJÓRA
Bændasamtök Íslands leita af öflugum einstakling í
þéttan starfshóp útgáfusviðs til að sinna auglýsinga-
málum Bændablaðsins, á starfsstöð þess á höfuð-
borgarsvæðinu. Starfið kallar á skipulagshæfileika
og mikla yfirsýn.
Starfið felur í sér:
Samskipti við auglýsendur og viðskiptavini Bændablaðsins. Sala
auglýsinga í prentútgáfur, vef og hlaðvarp útgáfusviðs. Gerð
auglýsingasamninga, reikningagerð og allt utanumhald um
birtingar s.s. innheimtu auglýsinga og innsetning auglýsinga í
blað, á vef og í hlaðvarp.
Hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi.
• Drifkraftur, frumkvæði og fagmennska.
• Góð mannleg samskipti og sjálfstæð vinnubrögð.
• Þekking á Dk hugbúnaðakerfi og vefumsjónarkerfum,
InDesign og/eða öðrum uppsetninga- og hönnunarforritum
s.s. Photoshop, Illustrator og Audition.
• Áhugi og þekking á sölumennsku og landbúnaðarmálum er
mikill kostur.
Umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferilsskrá auk
kynningarbréfs. Upplýsingar um starfið veitir Vigdís Häsler
framkvæmdarstjóri Bændasamtakanna.
Umsóknir, merktar Umsókn um starf auglýsingastjóra, berist
eigi síðar en 15. september nk. á netfangið vigdis@bondi.is
Bændablaðið er málgagn bænda og landsbyggðar og kemur
út hálfsmánaðarlega í prentformi. Auk þess heldur blaðið úti
vefsíðunni bbl.is og Hlöðunni, hlaðvarpi Bændablaðsins.
Upplýsingafræðingur
Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar starf
upplýsingafræðings á skrifstofu fjármála og rekstrar.
Nánari upplýsingar um helstu verkefni, hæfni- og menntunarkröfur er að
finna á vefsíðu Starfatorgs.
Umsókn skal skilað rafrænt á Starfatorgi og með umsókn þarf að fylgja
ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Suzuki bílar • Skeifunni 17
• 108 Reykjavík • 568 5100
BIFVÉLAVIRKJAR
Óskum eftir að ráða bifvélavirkja með reynslu af
bílaviðgerðum til starfa á verkstæði Suzuki bíla h/f.
Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt og hafið
störf sem allra fyrst.
Áhugasamir sendið tölvupóst með ferilskrá á
gylfi@suzuki.is fyrir 20. sept.
Óskum eftir að ráða bifvélavirkja með reynslu af
bíla, utanborðsmótora.- og mótorhjóla viðgerðum
til starfa á verkstæði Suzuki bíla h/f.
Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt og hafið
störf sem allra fyrst.
Áhugasamir sendið tölvupóst með ferilskrá á
gylfi@suzuki.is fyrir 20. sept.