Fréttablaðið - 04.09.2021, Side 41
Hofsstaðaskóli
• Leiðbeinandi á frístundaheimili
Urriðaholtsskóli
• Atferlisþjálfi
• Grunnskólakennari á yngsta stig
• Leikskólakennari
• Leiðbeinendur á frístundaheimili
Leikskólinn Akrar
• Deildarstjóri
• Leikskólakennari
• Sérkennslustjóri
Leikskólinn Kirkjuból
• Leikskólakennari
Leikskólinn Mánahvoll
• Leikskólakennarar
Leikskólinn Sunnuhvoll
• Leikskólakennari
Krókamýri - Heimili fatlaðs fólks
• Starfsmenn
Fjölskyldusvið
• Hlutastarf á heimili ungrar konu
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns,
eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar má finna á ráðningarvef
Garðabæjar https://starf.gardabaer.is
gardabaer.is
STÖRF HJÁ
GARÐABÆ
kopavogur.is
Kópavogsbær auglýsir laust starf forstöðumanns Gerðarsafns.
Forstöðumaður Gerðarsafns heyrir undir forstöðumann menningarmála hjá Kópavogsbæ. Ráðið er
í starfið til fimm ára í senn. Forstöðumaður mótar hlutverk og listræna stefnu Gerðarsafns og ber
meðal annars ábyrgð á sýninga- og viðburðahaldi, rekstri safnsins, safnverslunar og veitingasölu, á
safneign Gerðarsafns og öðrum listaverkum í eigu Kópavogsbæjar. Forstöðumaður sinnir samstarfi
við aðrar menningarstofnanir bæjarfélagsins og sambærilegar stofnanir annars staðar.
Hægt er að sjá nánari upplýsingar um starfið og sækja um á heimasíðu bæjarins kopavogur.is
Forstöðumaður Gerðarsafns
Félagsmálaráðuneytið auglýsir
eftirfarandi stöður lausar til umsóknar
Embætti forstjóra Barna – og fjölskyldustofu.
Félagsmálaráðuneytið leitar að framsæknum stjórnanda sem hefur þekkingu á
málefnum barna og hæfni til að leiða innleiðingar- og breytingaferli.
Barna- og fjölskyldustofu er ætlað að vinna að farsæld barna í samræmi
við bestu þekkingu og reynslu hverju sinni. Stofnunin mun sinna verkefnum
sem tengjast þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra. Þar á meðal eru
verkefni á sviði barnaverndar en við stofnun Barna- og fjölskyldustofu verður
Barnaverndarstofa lögð niður. Barna- og fjölskyldustofa mun jafnframt
gegna lykilhlutverki við samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og
fara með tilgreind verkefni í þágu barna sem nánar er kveðið á um í lögum
um félagsþjónustu sveitarfélaga, lögum um þjónustu við fatlað fólk með
langvarandi stuðningsþarfir, lögum um Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins
og lögum um þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og
einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu.
Barna- og fjölskyldustofu er ætlað að vera verkfærakista ríkisins vegna
samþættrar þjónustu við börn og fjölskyldur. Í því felst meðal annars að vera
stuðningur við sveitarfélög og ríkisstofnanir vegna þjónustu í þágu barna, með
ráðgjöf, leiðbeiningum, fræðslu og þróun gagnreyndra aðferða og úrræða í
þágu barna. Í því felst jafnframt að hafa yfirumsjón með úrræðum á vegum
ríkisins, þar á meðal Stuðlum, Barnahúsi og öðrum meðferðarúrræðum
og fóstri. Meðal verkefna Barna- og fjölskyldustofu verður yfirumsjón
með upplýsingakerfum samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna og
gagnagrunni og stafrænum lausnum fyrir barnavernd á landsvísu.
Forstjóri Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála
Félagsmálaráðuneytið leitar að framsæknum stjórnanda sem hefur áhuga á
að byggja upp nýja stofnun.
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála mun hafa eftirlit með gæðum
þjónustu sem er veitt á grundvelli laga um barnavernd, laga um Barna- og
fjölskyldustofu, laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, laga um þjónustu
við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, laga um málefni aldraðra,
laga um Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, laga um þjónustu- og
þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta
sjón- og heyrnarskerðingu og laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar
barna.
Helstu verkefni stofnunarinnar er útgáfa rekstrarleyfa, frumkvæðiseftirlit
með gæðum þjónustu, afgreiðsla kvartana yfir þjónustu, beiting viðurlaga
við brotum á reglum og þróun gæðaviðmiða. Stofnunin mun taka við
gæða- og eftirlitsverkefnum frá Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og
barnaverndar og eftirlitsverkefnum frá Barnaverndarstofu.
Félagsmálaráðuneytinu, 4. september 2021.
Umsóknarfrestur er til 23. september 2021.
Nánari upplýsingar um störfin má finna á
starfatorgi Stjórnarráðsins, www.starfatorg.is
Fyrirtæki
ársins 2021
hagvangur.is