Fréttablaðið - 04.09.2021, Side 20
Þó þær stöllur
geri óspart grín
af upplifunum
sínum segja þær
djúpar og sárar
tilfinningar oft
liggja að baki.
Selma: Það litaði líka æfingatíma-
bilið. Við erum að deila persónuleg-
um reynslum og við notum okkar
eigin nöfn og það veldur auðvitað
ákveðnum kvíða. Þá fer maður að
draga sig niður og efast um sjálfan
sig. Tilurðin á þessu leikriti er í raun
búin að vera marínerandi kvíðakeis.
Björk: Já, þó ég segist vera með
ríðukvíða í verkinu þá er það bara
vegna þess það var fyndnasti kvíð-
inn en ekkert endilega dagsannur.
Þó að verkið sé byggt á okkur erum
við óhræddar við að ýkja og ljúga
helling.
Kvíðinn er margþættari og hefur
aukist með aldrinum hjá mér sem ég
held að sé algengt. Nú skil ég til að
mynda hvers vegna gamlar konur
segja alltaf: „Guð minn almáttugur,
farðu varlega!“ Þetta er bara þessi
lífskvíði.
Selma: Lífskvíði, dauðakvíði og
hamfarakvíði. Svo hefur Covid gert
það að verkum að maður hefur feng-
ið sjúkdómakvíða og afkomukvíða.
Við erum búnar að missa vinnurnar
endalaust og aftur og aftur og aftur.
Það hefur bara bætt á mann kvíða.
Ég byrjaði til að mynda á að bæta
á mig sex kílóum og missti þau svo
aftur. Þetta er allt kvíðatengt, fyrst
borða ég tilfinningar mínar og missi
svo matarlystina. Þó svo við séum að
gera grín að þessu er þetta dauðans
alvara.
Björk: Það er svo mikilvægt að
tala um þetta enda pípir Instagram
stöðugt á mann til að segja manni
hvað allir eru hamingjusamir. Þarf
maður að sjá fólk með kokteilglas í
Bláa lóninu á mánudagsmorgni? Er
það akkúrat það sem maður þarf á
þeirri stundu?
Salka sem fulltrúi ungu kynslóðar-
innar og mæðra með ung börn hlýtur
að finna fyrir pressu þar sem mæður
eru duglegar við að birta vel klædd
börn og stíliseruð barnaherbergi á
miðlinum.
Salka: Ég held að ég sé nógu klár
til að láta þetta ekki ná til mín.
Selma: Pressan getur líka orðið til
þess að mæðrum finnist þær ekki
vera að standa sig. Maður er alveg
nógu óöruggur með fyrsta barn.
Salka: Ég skil alveg að þetta geti
náð til ungra mæðra.
Björk: Þó við notum okkar eigin
nöfn í verkinu þá er Salka fulltrúi
ungu kynslóðarinnar og margt það
sem hún er látin ganga í gegnum er
eitthvað sem ég fór í gegnum sem
ung móðir eins og hræðslan við upp-
eldissérfræðingana.
Stefnumótamarkaðurinn
Selma: Svo erum við líka að tala
um hvernig það er að vera á stefnu-
mótamarkaðnum eftir fertugt, eftir
skilnað. Baráttuna við það að vera
þarna úti og verða fyrir stöðugum
vonbrigðum því það eru nú ekki
margir góðir kostir á lausu.
Ég fer til dæmis út í það hverjir
eru á lausu en það eru fráskildir
virkir alkar, fráskildir óvirkir alkar,
spilafíklar, flassarar, skápahommar,
nískupúkar, hallelújahopparar,
tukthúslimir, gamalmenni og skyld-
menni. Og þegar maður er búinn
að sigta þá frá eru sirka fimm eftir.
Svo þegar maður fer að rýna í þessa
fimm kemst maður að því að þeir
eru búnir að deita, halda fram hjá,
eða vera giftir frænku þinni, systur
þinni, nágrannakonu þinni, koll-
ega þínum eða ömmu þinni. Þetta
er veruleiki manns á stefnumóta-
markaðnum. Svo er það þessi innri
barátta, að vilja bara vera ein en
vera samt alltaf að vonast eftir því
að finna lífsförunaut.
Salka: Við erum allar með ólíkar
reynslur sem er frekar geggjað. Svo
við erum jafn mikið að segja frá og
að hlusta.
Breytingaskeiðið afsökun
Breytingaskeiðið er eitt umræðuefn-
anna en það er ekki mikið talað um
það í daglegu tali milli kvenna, alla
vega ekki yngri kvenna.
Björk: Ég er mjög opinská með
þetta. Ég segi bara: „Fyrirgefðu að
ég viti ekki hvað mamma þín heitir,
ég er á breytingaskeiðinu.“ Þetta er
frábær afsökun fyrir öllu. Ég kannski
fer í viðtal og man ekki hvað forseti
Íslands heitir en það er allt í lagi því
ég er á breytingaskeiðinu og því með
heilaþoku. Ég tala aðeins um þetta
og það þegar börnin fara að heiman
og maður þarf að fara að vera æðis-
lega rómantískur aftur og fara allt í
einu einn með kallinum í ferðalög.
Hver nennir því? Og vera róman-
tískur á miðju breytingaskeiði þegar
maður svitnar eins og maður sé í
sána og með skapbreytingar eins og
flóðhestur í geðrofi. Þetta er náttúr-
lega ekkert auðvelt. Og svo stundum
þegar kallinn opnar munninn lang-
ar mann bara til að skjóta hann!
Selma: En það er eitt sem er aldr-
ei rætt – kynlíf eftir sextugt! Mig
langar að vita hvernig það er – það
er bara aldrei rætt.
Björk: Ég á nú bara fimm ár eftir
í sextugt!
Selma: Nákvæmlega! Ég ætla að
hringja í þig eftir fimm ár og heyra
hvernig gengur!
Björk: Heldurðu að það breytist
æðislega mikið á fimm árum?
Selma: Nei, en líka bara þegar fólk
er orðið 67 og sjötugt. Mig langar að
vita þetta.
Þetta er
líka svona
ef maður
skilur. Þá
fær maður
að heyra;
„Þetta er
kannski í
góðu núna
en bíddu
bara, hann
á eftir að
yngja upp.“
Selma.
Nærtæk-
asta dæmið
mitt er
tækni-
frjóvgan-
irnar sem
ég þurfti að
undirgang-
ast þegar
ég átti
dóttur
mína og nú
aftur.
Salka.
20 Helgin 4. september 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ