Fréttablaðið - 04.09.2021, Síða 22
vera að breytast. „Fyrir um tveimur
árum síðan gerðist svolítið merki-
legt. Yngra fólk og fjölskyldufólk,
á fertugs-, fimmtugs- og sextugs-
aldri, fór að f lytja á staðinn sem
mér finnst mjög jákvætt,“ segir
hann. „Þau spyrja okkur mikið um
skólana og allt sem tengist atvinnu-
lífinu. Sumt yngra fólkið starfar
eða rekur eigið fyrirtæki á Spáni
en annað vinnur á Íslandi í gegnum
net og síma.“
Aðspurður af hverju Íslendinga-
samfélagið á þessum stað hafi
vaxið svo hratt umfram aðra á
Spáni segir Manuel að líklega hafi
munnmæli mest um það að segja.
Þjónustan á svæðinu sé góð og
verðlag hagstætt og þeir Íslend-
ingar sem búi þar séu sáttir. Þetta
fréttist heim og vindur upp á sig. Til
að mynda hafi margir keypt eignir
í bænum Torrevieja, sunnan við
Alicanteborg.
„Á Alicante er löng hefð og mikil
þekking í ferðamennsku. Fyrstu
ferðamennirnir komu frá Svíþjóð á
sjöunda áratugnum og síðan komu
Bretarnir í kjölfarið. Í dag er stað-
urinn meðal þriggja mestu ferða-
mannastaða Spánar,“ segir Manuel.
Hvaða staðir séu vinsælastir hefur
breyst með árunum, áður fyrr
heimsóttu Íslendingar mikið til
Mallorca og Kanaríeyjar en í dag
séu Tenerife og Alicante vinsælli.
„Íslendingum líður vel á svæðinu
og finnst þeir vera velkomnir.“
Fjölbreytt hlutverk
Ræðismenn, eða konsúlar, höfðu
einkum það hlutverk hér á árum
áður að ef la viðskiptasambönd
milli landa. Seinna meir fór það
hlutverk að mestu leyti til sendi-
herranna en ræðismenn fengu
f rekar það hlut verk að veita
íbúum á ákveðnu svæði þjónustu.
Til dæmis hvað varðar opinbera
þjónustu gagnvart heimalandinu,
neyðarþjónustu og aðstoð ef fólk
lendir upp á kant við lögin.
„Stór hluti af því sem við gerum
er að útvega svokölluð lífsvottorð.
Vottorð sem Tryggingastofnun
þarf til þess að greiða út bætur fyrir
fólk búsett erlendis,“ segir Manuel.
„Annað sem við gerum er að sjá um
kosningar og það er nóg að gera í
því núna.“
Alþingiskosningarnar fara fram
25. september næstkomandi og
Íslendingar á Spáni eru duglegir að
kjósa utan kjörfundar.
Manuel segir hins vegar að það sé
neyðarþjónustan sem veiti honum
hvað mest. Hún sé kannski ekki sú
þjónusta sem er mest áberandi en
skipti hins vegar mestu máli.
„Neyðarþjónustan er ástæðan
fyrir því að mörg af okkur störfum
við þetta,“ segir Manuel. „Við-
brögðin sem við fáum eru engu lík.
En málin sem koma inn á okkar
borð eru það ekki heldur.“
Mig langar oft til þess
að taka upp tólið og
athuga hvernig þeim
gengur og hvernig
þeim líður.
Manuel segir
að Íslendingum
finnist þeir
velkomnir í
Alicante.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Árið 2017 var ákveðið að stofna ræðismanns-skrifstofu á Alicante- og Murcia-svæðinu þar sem Íslendingum var
farið að fjölga mjög mikið. Í dag er
þetta stærsta „Íslendinganýlendan“
þó að fjöldinn sé ekki vitaður með
vissu. Spænski hagfræðingurinn
Manuel Zerón Sánchez var ráðinn
til starfans og hefur einn starfs-
mann, Svavar Sigurðarson, sér til
halds og trausts á skrifstofunni.
„Ég f lutti á svæðið nokkru áður
til að stunda viðskipti og kynnt-
ist íslenska samfélaginu í gegnum
viðskiptafélaga. Samband mitt við
Íslendinga jókst og jókst og þess
vegna var stungið upp á mér í þetta
starf,“ segir Manuel. „Síðan þá hef
ég eignast fjölmarga íslenska vini
og kunningja til viðbótar og tengsl-
in aukist enn frekar. Fólkið hérna á
svæðinu þekkir mig.“
Íslendingar velkomnir
Alicante og Murcia eru á austur-
strönd Spánar, sunnan við Val-
encia og Benidorm en norðan við
Malaga og Almería. Manuel telur
að á meðan hann hafi starfað á
skrifstofunni hafi Íslendingar með
fasta búsetu verið einhvers staðar
á bilinu 1.500 til 4.000 en hefur
ekki nákvæmar tölur um fjölda
á hverjum tíma. Þar fyrir utan er
fólk sem býr þar aðeins hluta árs-
ins og ferðamenn. Hann getur þó
séð að Íslendingum fjölgar enn því
að sífellt eykst ásóknin í þjónustu
skrifstofunnar, til dæmis útgáfu
bráðabirgðavegabréfa.
Flestir Íslendingar sem hafa
fasta búsetu eru á eftirlaunaaldri.
Manuel segir f lóruna hins vegar
Lærði að takast á
við glæpamenn
Kristinn Haukur
Guðnason
kristinnhaukur
@frettabladid.is
Glæpamenn
Í bæ nokkrum í umdæmi Manuels
búa meðal annars Íslendingar sem
hann lýsir sem „ekki hljóðlátum“.
Stöðu sinnar vegna vill hann ekki
segja hvaða bæ um ræðir.
„Þarna hef ég komist í kynni við
og þurft að hafa afskipti af glæpa-
mönnum í nokkur skipti,“ segir
Manuel alvarlegur í bragði. „Ég varð
virkilega hræddur. Ég er hagfræð-
ingur, ekki lögreglumaður, og þegar
ég byrjaði í starfinu vissi ég ekkert
hvernig ég ætti að verja mig.“
Segist Manuel ekki hafa verið
undirbúinn f y r ir þess konar
reynslu þegar hann hóf störf fyrir
ræðismannsskrifstofuna. Þetta
fékk mikið á hann til að byrja
með, ekki síst þar sem hann er
fjölskyldumaður. Hafa ber í huga
að skipulögð glæpastarfsemi er
útbreidd á svæðinu og stór hluti af
þeim fíkniefnum sem f lutt eru til
Íslands koma frá Alicante.
„Þegar maður lendir í svona erf-
iðum aðstæðum hugsar maður ekki
um neitt annað en fjölskylduna.
Einu sinni var ég á leiðinni heim
á laugardagskvöldi eftir að hafa
haft afskipti af þessum mönnum.
Ég lagði bílnum á miðri leið, sat í
bílnum og hugsaði með mér hvers
vegna ég væri að gera þetta,“ segir
Manuel. „Á þessum tímapunkti var
ég virkilega að hugsa um að hætta í
þessu starfi. Að lokum ákvað ég að
gefast ekki upp og það reyndist ein
besta ákvörðun sem ég hef tekið.
En hún var ekki auðveld.“
Síðan þá hefur Manuel fengið
aðstoð og kennslu við að fást við
glæpamenn. Það er hvernig eigi að
tala við þá og hegða sér í kringum
þá. Sjálfstraustið hefur einnig auk-
ist til muna.
„Mér finnst aðstæðurnar yfirleitt
ekki jafn hættulegar og mér fannst
áður. Það veitir mér meiri öryggis-
tilfinningu þó að mér líði kannski
ekki beinlínis vel,“ segir Manuel.
„Ég bregst öðruvísi við en áður því
ég veit núna hvað ég á að gera og
hvað ég á alls ekki að gera. Þetta
snýst allt um skynsemi en ekki
vald. Ég hef lært svo rosalega mikið
Í vikunni hlaut Manuel Zerón
Sánchez, ræðismaður Íslands í
Alicante og Murcia, fálkaorð-
una fyrir þjónustu við Íslend-
ingasamfélagið. Manuel hefur
þurft að hafa afskipti af glæpa-
mönnum og hjálpa börnum
úr erfiðum aðstæðum. Hann
segir endurgjöf erfiðu stund-
anna mest gefandi.
22 Helgin 4. september 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ