Fréttablaðið - 04.09.2021, Qupperneq 24
Frægir í
framboði
Helga Möller
Sjálfstæðisflokkurinn,
21. sæti Suðvestur
„Ég er Sjálfstæðiskona og hef alla tíð verið,“ segir söngkonan og flugfreyjan Helga Möller.
Þetta eru ekki fyrstu kosningarnar sem hennar nafn er á lista, þó hún sé ekki starfandi í
grasrót flokksins.
„Ég hef alltaf verið pólitísk og fer ekkert leynt með mínar skoðanir,“ segir hún. „Mál
aldraðra eru mér hugleikin sem og mál tónlistar og listafólks. Ekki síst í Mosfellsbænum
þar sem ég bý. Þá skipta umhverfismálin mig einnig miklu máli.“
Í komandi kosningum segir Helga að menntamálin og heilbrigðismálin verði í öndvegi,
í þeim málaflokkum þurfi að spýta í lófana.
„Það er gott fólk í öllum flokkum en mér finnst þetta ríkisstjórnarsamstarf hafa tekist
mjög vel. Að það geti haldist sátt og samlyndi í svona ólíkum flokkum er mikið þroska-
merki,“ segir Helga. „Ég vil sjá þessa stjórn sitja áfram.“
Aðspurð um hvort hún hafi aldrei verið beðin um að semja framboðslag flissar Helga.
„Ég sé ekki ástæðu til þess að gera framboðslag.“
Tinna Gunnlaugsdóttir
Viðreisn,
7. sæti Reykjavík suður
„Ég hef til þessa verið óflokksbundin, en ég er alin
upp í anda jafnaðarmennsku,“ segir Tinna Gunn-
laugsdóttir, leikkona og fyrrverandi þjóðleikhús-
stjóri. „Ég vona að Viðreisn eflist og dafni, en ég
geri mér grein fyrir að það er á brattann að sækja.“
Aðspurð segir Tinna menningarpólitík hafa
skipt sig miklu, hún hafi í gegnum tíðina beitt sér
í þágu lista og skapandi hugsunar og muni áfram
gera það. „Íslenskt samfélag hefur allt of lengi verið
plagað af sérhyggju og hagsmunavörslu, eða ein-
hvers konar innilokunaráráttu, þar sem reynt er að
púkka upp á það sjónarmið að við séum í raun best
í öllu. Við eigum að opna samfélagið betur, taka á
móti hugmyndum og fólki, læra af öðrum og fækka
um leið þeim stjórntækjum sem notuð eru til að
taka af okkur ráðin. Við sem höfum starfað lengi
innan listanna vitum að þar sem mismunandi hug-
myndir og reynsla og sýn mætast – verður alltaf til
brennipunktur.“
Aldís Schram
Sósíalistaflokkurinn,
4. sæti Norðvestur
„Í byrjun júlí var ég að velta því
fyrir mér hvaða flokk ég ætti að
kjósa. Ég las stefnu Sósíalista og
varð svo hrifin að ég skráði mig.
Síðan fékk ég upphringingu frá
slembivalinni kjörnefnd og var
spurð hvort ég vildi bjóða mig
fram. Ég játti því og örlögin voru
ráðin,“ segir lögfræðingurinn
Aldís Schram, sem kom þjóð-
inni fyrst fyrir sjónir þegar hún
sakaði föður sinn, Jón Baldvin
Hannibalsson, um kynferðisbrot
gagnvart börnum.
Það eru einmitt þessi mál sem
standa Aldísi nærri. „Réttar-
bætur fyrir þolendur kynferðis-
ofbeldis skipta mig miklu,“ segir
Aldís, en það geri stjórnarskrár-
málin einnig. „Mér finnst líka mikilvægt að uppræta fátækt og það
getum við meðal annars gert með því að gera auðlindir landsins að
ævarandi eign þjóðarinnar.“
Aldís segir kosningarnar snúast um val milli óbreytts ástands eða
dauða kapítalismans. „Síðan ég var unglingur hef ég velt því fyrir mér
hvers vegna þjóðfélagið sé ekki réttlátt. Með samstöðu getum við
breytt Íslandi í paradís,“ segir hún.
Friðrik Þór Friðriksson
Framsóknarflokkurinn,
16. sæti Reykjavík norður
„Framsóknarflokkurinn hefur staðið sig vel í stuðningi við kvik-
myndagerð. Bjuggu til Kvikmyndasjóð og komu endurgreiðslunni
á,“ segir leikstjórinn Friðrik Þór, sem er ekki flokksbundinn en hefur
áður setið á lista hjá f lokknum. „Kvikmyndaskólinn er nú að verða
að háskóla.“
Áður fyrr var Friðrik lengra til vinstri og var til dæmis mikill her-
stöðvaandstæðingur. Aðspurður um kosningarnar í haust segir Friðrik
þær aðallega snúast um heilbrigðiskerfið og stjórnarskrána.
„Ég hugsa hins vegar fyrst og fremst um kvikmyndagerðina. Að
nemendur mínir í Kvikmyndaskólanum fái tækifæri til að gera kvik-
myndir,“ segir hann.
Elín Björk Jónasdóttir
Vinstri græn,
8. sæti Suðvestur
Veðurfræðingurinn Elín Björk hefur lengi verið í
Vinstri grænum. Hún segist ekki alltaf hafa verið
mjög pólitísk en hefur sterkar skoðanir á ákveðn-
um málum, einkum mannréttindamálum og
umhverfismálum. Í störfum sínum sér hún glöggt
áhrif loftslagsbreytinganna.
„Ég kann fræðin og hef fylgst með þessu gerast í
22 ár,“ segir Elín. „Ég fagna því að umhverfismálin
séu orðin meginstraumsumræðuefni. Einu sinni
var litið á þau sem eitthvað róttækt eða jafnvel
óþarfa.“
Elín segir stefnuna setta á að Vinstri græn leiði
næstu stjórn. Sjálf útilokar hún meiri þátttöku
í stjórnmálum, en hún var nýlega kjörin í stjórn
flokksins. „Ég er að koma inn af hliðarlínunni.“
Ragnheiður Eiríksdóttir
Píratar,
18. sæti Suðvestur
Ragga, sem þekktust er fyrir skrif sín um kynlíf,
segist lengi hafa kosið Pírata. Með árunum hafi
áhuginn á pólitík vaxið og útilokar hún ekki að
sækjast eftir hærri metorðum.
„Ég hef ekki fundið fyrir vilja hjá öðrum flokk-
um til þess að breyta kerfinu,“ segir Ragga, sem
starfar sem geðhjúkrunarfræðingur og segir þörf
á breytingum. „Það gleymist oft að kerfið er búið til
af okkur og við erum þess megnug að breyta því.“
Auk heilbrigðismálanna skipta jafnréttismálin
og mál flóttafólks og hælisleitenda Röggu mestu.
„Mér finnst kosningar alltaf snúast um að koma
íhaldinu sem lengst frá völdum. Í haust þurfum við
að stokka pólitíska landslagið upp. Við höfum séð
Vinstri græn tapa öllu því sem var vinstri og grænt
í þessari stjórn.“
Á framboðslistum stjórnmálaflokkanna má
finna fjölbreytta flóru fólks. Þar á meðal fólk
sem hefur orðið þekkt fyrir allt annað en
stjórnmál. Fréttablaðið tók hús á nokkrum
þekktum frambjóðendum, sem eiga kannski
ekki von á þingsæti.
Kristinn Haukur
Guðnason
kristinnhaukur
@frettabladid.is
Birgir Þórarinsson
(Biggi Veira)
Samfylkingin,
5. sæti Reykjavík suður
„Ég hef verið virkur í grasrótinni frá því f ljótlega
eftir stofnun flokksins,“ segir Biggi, sem Íslending-
ar þekkja best úr hljómsveitinni GusGus. „Ég hef
verið settur á lista við og við, en núna er ég aðeins
ofar en venjulega.“
Hann segir áhugann á pólitík hafa vaxið með
aldri, þroska, börnum og húsnæði. „Þegar maður
þroskast finnur maður sífellt betur fyrir því að
samfélagið er heild sem þarf að vinna saman. Við
erum hópdýr og fáum okkar lífsfyllingu með því
að gefa af okkur og tilheyra samfélagi,“ segir Biggi,
sem er tölvunarfræðingur með viðbótargráðu í
hagfræði. „Það hefur angrað mig mikið hvernig
nýfrjálshyggjan hefur eitrað huga fólks gagnvart
samvinnu og samkennd.“
Í kosningunum er að mati Bigga tækifæri til þess
að skipta um kúrs og móta annað samfélag en það
sem Sjálfstæðisflokkurinn hafi keyrt í gegn undan-
farna áratugi. „Samfylkingin hefur styrkt sig mikið
með nýju fólki og er nútíma hagstjórnarflokkur sem
getur haldið utan um stjórnarsamstarf,“ segir hann.
„Við viljum ná allavega fjórum inn í Reykjavík, við
þurfum Rósu og Jóhann inn á þing.“ Detti Biggi inn
sem varaþingmaður á kjörtímabilinu segist hann
heldur betur tilbúinn í það.
24 Helgin 4. september 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ