Fréttablaðið - 04.09.2021, Blaðsíða 29
Íþróttastjóri
Breiðablik var stofnað 12.febrúar 1950.
Í dag er félagið eitt stærsta íþróttafélag
landsins og heldur úti fjölbreyttri
starfsemi í 12 deildum. Breiðablik
leggur mikla áherslu á að þjónusta
iðkendur, foreldra og félagsmenn eins
vel og kostur er.
Nánari upplýsingar um Breiðablik má
finna á www.breidablik.is.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Breiðablik leitar að öflugum einstaklingi í spennandi starf íþróttastjóra.
Nánari upplýsingar veita Einar Örn Ævarsson (einarorn@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í
síma 511 1225.
Helstu verkefni:
Umsóknarfrestur er til og með 20. september 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð
er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
• Háskólapróf og/eða mikil reynsla sem nýtist í starfi
• Þekking og skilningur á starfsemi íþróttafélaga
• Framúrskarandi hæfni í samskiptum
• Drifkraftur og hæfni til að leiða verkefni og/eða hópa
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Góð tölvukunnátta
• Góð kunnátta í íslensku bæði í ræðu og riti er skilyrði
• Forysta um mótun íþrótta- og þjálfunarstefnu félagsins,
umsjón með framkvæmd og eftirfylgni
• Samskipti og samstarf við allar deildir Breiðabliks,
foreldra, iðkendur, ÍSÍ, sérsambönd og önnur félög ásamt
skóla- og frístundasviði bæjarins
• Úthlutun æfingatíma í samráði við framkvæmdastjóra
• Skipulagning sumarnámskeiða, íþróttaskóla barna og
íþróttir eldri borgara
• Aðstoða deildir og foreldraráð við skipulagningu
fjáraflanna, mótahalds og annarra viðburða
• Umsjón með fræðslu- og forvarnastarfi
• Ábyrgð á ýmsum upplýsingum á heimasíðu, eins og t.d.
æfingatöflum deilda
Qair Iceland ehf. er hluti af Qair Group sem er
alþjóðlegt orkufyrirtæki sérhæft í endur nýjan
legri orkuframleiðslu. Qair starfar í 16 löndum
m.a. í Evrópu, Suður Ameríku, Asíu og Afríku.
Qair Iceland er með 800 MW í þróun á vindorku
á Íslandi. Félagið er hluthafi í Arctic Hydro
ehf., sem þróar og rekur íslenskar vatnsafls
virkjanir. Qair Iceland er einnig eigandi raforku
sölufyrirtækisins Vistafl ehf.
Qair hyggur á framleiðslu vetnis á Grundartanga.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf, á ensku, þar sem gerð er grein
fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
færni viðkomandi til að gegna starfinu.
Einstakt tækifæri hjá alþjóðlegu og ört stækkandi fyrirtæki sem sérhæfir sig í endurnýjanlegri orku
framleiðslu. Framundan eru spennandi verkefni í þróun á sviði vindorku og mun viðkomandi aðstoða
við verkefnaþróun á öllum stigum og sjá um alla tæknilega kortlagningu og GIS gagnagrunnsstjórnun.
Starfsstöðin er í Reykjavík, með einstaka ferðum á verkefnasvæði og á skrifstofur fyrirtækisins erlendis.
Starfssvið:
• Hönnun á skipulagi og aðgengi vindorkuvers.
• Kortagerð og GIS gagnagrunnsstjórnun.
• Verkefnastjórnun.
• Undirbúa og samræma verkefni með hagsmunaaðilum.
• Þróa og viðhalda tengslum við hagsmunaaðila og stofnanir.
• Samskipti við ráðgjafa og ráðgjafafyrirtæki.
• Vinna að öflun leyfa og umhverfismats.
• Upplýsinga- og skýrslugjöf.
• Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun í verkfræði, tæknifræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
• Þekking á UT, GIS og AutoCAD.
• Reynsla af kortagerð og tækniteiknun.
• Reynsla af hönnun vega og öðrum innviðum er æskileg.
• Reynsla af verkefnastjórnun er æskileg.
• Góð greiningarhæfni og geta til að setja fram niðurstöður með skipulögðum hætti.
• Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð.
• Hæfni í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna í teymi.
• Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
Umsóknarfrestur er til og með 14. september nk.
Umsóknir óskast fylltar út á www.vinnvinn.is.
Umsjón með starfinu hafa Jensína K.
Böðvars dóttir (jensina@vinnvinn.is) og
Hildur J. Ragnarsdóttir (hildur@vinnvinn.is)
hjá Vinnvinn.
Verkfræðingur/tæknifræðingur
Við hvetjum áhugasama til að sækja um,
óháð kyni og uppruna.
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára