Fréttablaðið - 04.09.2021, Page 37
S TA R F S S T Ö Ð :
R E Y K J AV Í K
U M S Ó K N I R :
I S AV I A . I S/AT V I N N A
U M S Ó K N A R F R E S T U R :
12 . S E P T E M B E R
Isavia ANS óska eftir að ráða áhugasama og fróðleiksfúsa
nema í flugfjarskipti. Námið hefst um miðjan október
n.k. og eru áætluð námslok í apríl 2022. Nemendur eru á
launum á námstímanum.
Námið er tvíþætt: Bóklegur hluti í 10 vikur og fer fram á
venjulegum dagvinnutíma. Seinni hlutinn er starfsþjálfun
í 16 til 20 vikur í flugfjarskiptadeild í Gufunesi.
Sú þjálfun fer fram í vaktavinnu.
Þeim sem standast lokapróf verður boðið starf
flugfjarskiptamanns. Um vaktavinnu er að ræða.
Nánari upplýsingar um námið veitir Guðmundur
Sigurðsson þjálfunarstjóri; gudmundur.sigurds@isavia.is
eða í síma 897 0654.
Hæfniskröfur
• Stúdentspróf eða sambærileg menntun.
• Tölvukunnátta og góður skrifhraði á
tölvu.
• Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í
töluðu og rituðu máli.
• Nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð.
• Nemar þurfa að vera tilbúnir til að gangast
undir heyrnarpróf, vélritunarpróf og
lesblindupróf.
Lesa má nánar um flugsamgöngur á vefsíðu
Isavia: isavia.is/fyrirtaekid/flugleidsaga/
flugfjarskipti
N E M A R Í F L U G F J A R S K I P T U M
Hjá Isavia starfar öflugur hópur fólks sem hefur það að markmiði
að vera hluti af góðu ferðalagi þeirra sem fara um flugvelli fyrirtækisins
og íslenska flugstjórnarsvæðið.
V I L T Þ Ú V E R Ð A
H L U T I
A F G Ó Ð U
F E R Ð A L A G I ?
Yfirmaður þjónustusviðs/þjónustuliði
Menntaskólinn í Kópavogi óskar eftir að ráða yfirmann
þjónustusviðs/þjónustuliða. Starfið felur í sér verkstjórn og
skipulag vegna almennra þrifa á rýmum skólans, verknáms-
húsi og skólalóð. Hér er um dagleg þrif að ræða og umhirðu
skólans. Viðkomandi aðstoðar einnig í matsal nemenda sem
og á skrifstofu og/eða á bókasafni í forföllum.
Yfirmaður þjónustuliða er tengiliður við stjórnendur. Hann
er í samskiptum við nemendur og starfsfólk og leiðbeinir
nemendum varðandi umgengni.
Áríðandi er að viðkomandi búi yfir hæfni í mannlegum
samskiptum, hafi ríka þjónustulund og jákvæða framkomu.
Viðkomandi þarf að búa yfir drifkrafti og frumkvæði til að
leysa þau verkefni sem undir starfið falla.
Reynsla af sambærilegum störfum er kostur.
Menntaskólinn í Kópavogi er frábær vinnustaður, þar er
starfsandi góður og aðstaða til fyrirmyndar.
Laun eru skv. sérstökum samningi Eflingar og fjármála-
ráðuneytis.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans í síma
594 4000.
Sótt er um starfið á starfatorg.is eða með því að senda
ferilskrá og umsókn á netfangið mk@mk.is. Umsóknar-
frestur er til og með 13. ágúst.
Skólameistari
BYGG býður þér til starfa
Uppsláttarsmiðir
Óskað er eftir vönum uppsláttarsmiðum í
uppmælingu, næg verkefni framundan.
Upplýsingar veitir Gunnar S: 693-7310
– gunnar@bygg.is
BYGG byggir á 37 ára reynslu á íslenskum byggingamarkaði.
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. (BYGG)
hefur á undanförnum árum byggt yfir 3.000
glæsilegar íbúðir á almennum markaði. Fyrirtækið
hefur einnig byggt íbúðir fyrir Félag eldri borgara
og húsnæðisnefndir í Reykjavík og Kópavogi.
Hjá fyrirtækinu starfa nú um 160 manns og er
meðalstarfsaldur hár. Öll verkefni fyrirtækisins eru
á höfuðborgarsvæðinu. Hjá fyrirtækinu er öflugt
starfsmannafélag. Traust atvinna í boði.
ATVINNUBLAÐIÐ 9LAUGARDAGUR 4. september 2021