Fréttablaðið - 04.09.2021, Page 67
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda
tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Elskulegur frændi okkar,
Sverrir Valdimarsson
fyrrum bóndi í Hólmi, Skaftárhreppi,
lést 21. ágúst á hjúkrunarheimilinu
Hjallatúni, Vík í Mýrdal. Útförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Rannveig Helgadóttir
Þröstur Helgason
Valdimar Runólfsson
Ingibjörg Runólfsdóttir
og fjölskyldur
Elskulegur eiginmaður minn,
Hallsteinn Sverrisson
lést 19. ágúst sl. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir eru til starfsfólks
Vegamóta, hjúkrunarheimilinu Grund,
fyrir einstaka umönnun og umhyggju
síðustu mánuði.
f.h. barna, barnabarna og annarra vandamanna,
Anna Eygló Antonsdóttir
Hjartans þakkir til allra sem sýndu
okkur stuðning og hlýhug við fráfall
elsku móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Ólafar Brandsdóttur
frá Suður-Götum í Mýrdal,
sem lést 11. ágúst síðastliðinn.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á
hjúkrunarheimilinu Sóltúni fyrir einstaklega góða
umönnun.
Guðbjörg Vallaðsdóttir Jón Norðmann Engilbertsson
Sigrún Vallaðsdóttir
og fjölskyldur.
Okkar ástkæri
Ólafur Guðlaugur
Viktorsson
rafeindavirkjameistari,
Sporatúni 17, Akureyri,
lést í faðmi eiginkonu og dætra 25. ágúst.
Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju
þriðjudaginn 7. september kl. 13.00.
Guðný Jóhanna Tryggvadóttir
Ólöf Guðrún Ólafsdóttir Michael Krogh Sørensen
Anna Margrét Ólafsdóttir Jóhann Vilhjálmsson
og afabörn.
Elsku drengurinn okkar, bróðir, frændi
og barnabarn,
Ágúst Ingi Rossen
lést á Odense Universitetshospital i
Danmörku, laugardaginn 7. ágúst 2021.
Haldin var minningarathöfn í
Danmörku 17. ágúst sl. Útför hans fer fram
frá Akraneskirkju þriðjudaginn 7. september kl. 13.
Marteinn Steen Rossen Ásta Laufey Ágústsdóttir
Aldís Ýr Rossen Harpa Dögg Rossen
Eigil Ernir Rossen Tinna Rut Rossen
Eigil M. S. Rossen Erna Magnúsdóttir
Ágúst Ingi Eyjólfsson Ingibjörg Sigurþórsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ingibjörg Erla Ásgeirsdóttir
Hlynsölum 5,
lést föstudaginn 27. ágúst á
Landspítalanum Hringbraut.
Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í
Hafnarfirði miðvikudaginn 8. september kl. 11.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ljósið, kt.
590406-0740, bankareikningur: 0130-26-410420
eða Krabbameinsfélagið kt. 700169-2789,
bankareikningur: 0301-26-706.
Margrét, Gyða, Ásgeir Ragnar, Einar Þorbergur,
Maren Erla, Aron Freyr, Maídís Eva og Máney Erla
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Karl Guðmundur
Guðjónsson
fv. deildarstjóri í tollpóstinum
er látinn. Útför hans fer fram frá
Háteigskirkju kl. 13.00, föstudaginn 10.
september. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem
vildu minnast hans er bent á Parkinsonsfélagið.
Siv G. Guðjónsson
Guðjón Karlsson Eija Karlsson
Elín María Karlsdóttir
Anna Marta Karlsdóttir Eyþór Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
arnartomas@frettabladid.is
Listamaðurinn Guðmundur Thor-
steinsson, eða Muggur eins og hann
er venjulega kallaður, fæddist á
Bíldudal 1891. Hann var af efnuðum
ættum en Pétur J. Thorsteinsson,
faðir hans, var mikill athafnamaður á
Bíldudal og flutti fjölskyldan til Kaup-
mannahafnar þegar Muggur var tólf
ára gamall. Þar gafst honum færi á að
læra myndlist, fyrst í Teknísk Selskabs
Skole og síðar við Konunglega listahá-
skólann.
Muggur lést aðeins 32 ára gamall úr
berklum, en þrátt fyrir að vera ungur
að árum skildi hann eftir sig einstak-
an myndheim sem hann vann með
fjölbreyttum aðferðum. Hann notaði
vatnsliti, kol og klippti út myndir svo
eitthvað sé nefnt.
Meðal þekktustu verka Muggs eru
skreytingar hans úr barnabókinni
Sagan af Dimmalimm, en í inngangi
bókarinnar í útgáfu Helgafells segir:
„Muggur var skáld, söngvari og málari,
listamaður af guðs náð. Ef hann hefði
náð hærri aldri er mjög erfitt að spá
um það, hvaða stefnu list hans hefði
tekið, en snilligáfa hans var ótvíræð.“
Muggi var ýmislegt til lista lagt, en
hann lék einnig í fyrstu leiknu kvik-
myndinni sem gerð var á Íslandi, Sögu
Borgarættarinnar í janúar 1921. Þar fór
hann með hlutverk Orms Örlygssonar.
Sýning á verkum Muggs verður
opnuð í Listasafni Íslands 2. október
næstkomandi. ■
Þetta gerðist 5. september 1891
Muggur fæddur á Bíldudal
Lágmynd af Muggi eftir Guðmund
Elíasson myndhöggvara.
Sagan af Dimmalimm, 1921.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Kolbrún Emma
Gunnlaugsdóttir
lést í faðmi fjölskyldunnar á
hjúkrunarheimilinu Sólvangi,
föstudaginn 27. ágúst. Útför hennar fer
fram frá Garðakirkju fimmtudaginn 9. september
klukkan 15.00.
Sverrir Andrésson
Gunnlaugur Reynir Sverrisson Anna Margrét Einarsdóttir
Sigrún Sverrisdóttir Smári Jökull Jónsson
Elfar Smári Sverrisson Gunnhildur Helga
Katrínardóttir
Emilía, Benni, Ívar, Vigdís, Ronja og Bjarki
Ástkær eiginkona mín,
móðir, tengdamóðir, amma,
langamma og systir,
Elín Magnúsdóttir
Funafold 73,
lést á kvennadeild Landspítalans
fimmtudaginn 26. ágúst.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
fimmtudaginn 9. september kl. 13.
Sigurður Ingimarsson
Ingimar Sigurðsson Birgitta Björgólfsdóttir
Lovísa Sigurðardóttir Þórður Hermann Kolbeinsson
Berglind Gerða Sigurðardóttir
Þuríður Magnúsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
arnartomas@frettabladid.is
Fræðsluganga um Blikastaðakró fer
fram á sunnudaginn á vegum Hins
íslenska náttúrufræðifélags og Mos-
fellsbæjar. Blikastaðakró er um tveggja
kílómetra strandlengja sem liggur á
mörkum Reykjavíkur og Mosfellsbæjar,
en þar má finna sjávarfit, grýttar þang-
fjörur og mikið fuglalíf.
„Við verðum tvær sem ætlum að sýna
fólki það sem er markvert að sjá í fjör-
unni,“ segir Járngerður Grétarsdóttir
grasafræðingur sem stýrir göngunni,
ásamt Hrefnu Sigurjónsdóttur líffræð-
ingi.
„Hrefna mun fara aðeins yfir lífríkið
og segja fólki frá fuglunum og svo mun
ég segja fólki hvað er markvert að sjá í
gróðrinum.“
Lagt er af stað frá bílastæði neðst við
Barðastaði kl. 10 og tekur gangan um
tvær klukkustundir. Gangan er gjald-
frjáls og auðveld, en mælt er með að fólk
klæði sig eftir veðri og taki með sér sjón-
auka. ■
Fjöruferð í Blikastaðakró
Í Blikastaðakró er mikið fuglalíf. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
FRÉTTABLAÐIÐLAUGARDAGUR 4. september 2021 Tímamót 27