Fréttablaðið - 04.09.2021, Síða 76
kolbrunb@frettabladid.is
Það vakti athygli á síðasta ári þegar
Félag íslenskra bókaútgefenda aug-
lýsti eftir einstaklingum til að velja
athyglisverðustu bækur ársins í
dómnefnd Íslensku bókmennta-
verðlaunanna. Fjölmargir urðu til
að svara kallinu. Nú endurtekur
félagið leikinn og auglýsir eftir
einstaklingum á ólíkum aldri, með
fjölbreyttan bakgrunn og mennt-
un, í dómnefndir verðlaunanna.
Vinnan er vitanlega launuð en
auk þess fá nefndarmeðlimir allar
framlagðar bækur í sínum f lokki
til eignar. Starfstímabilið er frá 20.
september til 30. nóvember.
Þrjár dómnefndir starfa fyrir
verðlaunin, hver skipuð þremur
nefndarmönnum. Hægt er sækja
um eina eða f leiri nefnd. Dóm-
nefndir skiptast eins og verðlaunin
í barna- og ungmennabækur, skáld-
verk og fræðirit og bækur almenns
efnis.
Tekið er á móti skráningum til og
með 8. september. Hægt er að skrá
sig á fibut.is. n
Eitt sterkasta augna-
blik ævi minnar var að
sitja þarna á rúmi
móður minnar, með
bræður mína tvo við
hlið mér, og lesa þessi
skilaboð hennar.
Hægt er sækja um eina
eða fleiri nefnd.
Viltu vera í dómnefnd?
Frá afhendingu Íslensku bókmenntaverðlaunanna í fyrra.
Eftirlifendurnir, skáldsaga
eftir sænska rithöfundinn
Alex Schulman, hefur slegið
í gegn víða um heim. Skáld-
sagan er komin út í íslenskri
þýðingu Ísaks Harðarsonar.
Þrír bræður heimsækja
yfirgefið kot til að uppfylla
hinstu ósk móður sinnar
og rifja upp sársaukafullan
atburð úr fortíðinni.
Alex Schulman segist alltaf hafa
skrifað. „Sem barn skrifaði ég heil-
an helling af sögum með hryllings-
ívafi. Þar dó fólk á hroðalegan hátt.
Ég var ellefu ára þegar ég ákvað að
verða rithöfundur. Ég vann hörðum
höndum að því, en því miður varð
ég ekki rithöfundur fyrr en tuttugu
árum síðar.“
Hann vann um tíma sem kvik-
myndagagnrýnandi og segir kvik-
myndir hafa haft mikil áhrif á skrif
sín. „Í öllum bókum mínum, og
alveg sérstaklega í Eftirlifendum,
skrifa ég kaf lana nánast eins og
kvikmyndaatriði. Þeir eru á vissan
hátt grafískir. Ég sé fyrir mér mynd,
reyni að lýsa henni og vinn út frá
henni. Ég legg líka mikla vinnu í
samtöl, vil að þau séu eins eðlileg
og mögulegt er.“
Sterkt augnablik
Schulman hefur sent frá sér sjálfs-
ævisögulegar bækur sem fjalla um
föður hans, móður og eiginkonu.
Spurður hvort það sé eitthvað
sjálfsævisögulegt í þessari bók segir
hann: „Stundum spyr ég mig hvað
sé ekki sjálfævisögulegt í henni.
Þessi saga er mjög persónuleg.
Móðir mín lést fyrir fimm árum.
Daginn fyrir jarðarförina hitti
ég bræður mína tvo í íbúð móður
okkar til að kanna hvort þar væru
hlutir sem við gætum átt til minn-
ingar um hana. Í skúffu fundum við
umslag sem á stóð: Til sona minna,
ef ég dey. Eitt sterkasta augnablik
ævi minnar var að sitja þarna á
rúmi móður minnar, með bræður
mína tvo við hlið mér, og lesa þessi
skilaboð hennar. Nokkrum árum
síðar hugsaði ég að þarna væri
góður rammi fyrir sögu. Þannig að
sagan hverfist um þetta augnablik
úr raunveruleikanum.“
Eftirlifendurnir fjallar um erf-
iða æsku og f lókið samband milli
Til sona
minna,
ef ég dey
Þarna rættist
æskudraumur,
segir sænski
rithöfundurinn
Alex Schulman.
MYND/AÐSEND
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb
@frettabladid.is
bræðra. „Fyrir mér er samband
mitt og bræðra minna ráðgáta. Ég
og bræður mínir tveir vorum mjög
nánir í æsku. Við deildum öllu.
Hvernig gat það gerst að við erum
núna nánast eins og ókunnugir?
Hvað kom fyrir okkur? Ég hugsa
mikið um þetta. Í hádegismat með
bræðrum mínum spurði ég þann
eldri: „Hvernig gengur sambandið
við kærustuna?“ Hann svaraði:
„Við hættum saman.“ Ég komst í
uppnám, fannst þetta svo dapur-
legt hans vegna og spurði hvernig
honum liði. Hann saup á bjórnum
og sagði: „Það er í góðu lagi með
mig. Við hættum saman fyrir sex
mánuðum.“ Þegar ég yfirgaf veit-
ingastaðinn fann ég fyrir depurð
– mér fannst ég nánast ekkert vita
um bróður minn. Það var sársauka-
fullt. Og þegar ég skrifa vil ég finna
fyrir einhverju. Svo ég byrjaði að
skrifa um þrjá bræður sem fjarlægj-
ast hver annan eftir áfall í æsku.“
Það skýrir sig síðan sjálft að
Schulman skuli tileinka bræðrum
sínum bókina. „Á vissan hátt er ég
að segja sögu okkar,“ segir hann.
Æskudraumur rættist
Bókin hefur verið seld til rúmlega
þrjátíu landa og höfundurinn segir
velgengni hennar skipta sig miklu
máli. „Þarna rættist æskudraum-
ur. Það er sturlað að þetta skuli
hafa gerst. Hér er ég að ræða við
íslenskan blaðamann um bókina.
Það er nokkuð sem ég hefði ekki
getað ímyndað mér. En líf mitt er
enn hið sama. Ég varð ekki forríkur.
Ég ferðast ekki um heiminn og gisti
á lúxushótelum og skrif mín hafa
ekkert breyst. Allt er við hið sama,
ég reyni bara að finna tíma til að
skrifa milli þess sem ég sinni börn-
unum mínum.“
Hann viðurkennir að það verði
ekki auðvelt að fylgja þessari met-
sölubók eftir. „Það er stór áskorun
en ég get ekki verið að velta mér
upp úr því. Ég verð að einbeita mér
að því sem ég vil skrifa, ekki því
sem ég held að aðrir vilji lesa. Ég hef
séð vini og félaga reyna það – það
mistekst alltaf.“
Hann er hálfnaður með nýja bók
sem er fjölskyldusaga. „Hún er bæði
minni saga og meiri saga en Eftirlif-
endurnir. Minni í þeim skilningi að
hún gerist um borð í lest og stærri
því þar segir frá nokkrum kyn-
slóðum í sömu fjölskyldu. Von-
andi kemur hún út í Svíþjóð innan
árs og vonandi verður hún þýdd á
íslensku.“ n
36 Menning 4. september 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 4. september 2021 LAUGARDAGUR