Fréttablaðið - 04.09.2021, Qupperneq 84
Listahátíð sem snýst um
plöntur
Listahátíðin Plöntutíð fer fram um
helgina. Á henni fjallar listafólk
um plöntur og náttúruna í verkum
sínum. Andrea Vilhjálmsdóttir er
stjórnandi hátíðarinnar.
Skyrframleiðsla með
Hollywood-stjörnum
Unnar Helgi Beck hefur lengi verið
viðloðandi veitinga geirann. Eftir
að heimsfaraldurinn skall á ákvað
hann að hugsa í lausnum og fram
leiðir nú skyr fyrir Bandaríkja
markað.
Plastlaus september
Ásdís Ólafsdóttir er einn forsvars
manna Plastlauss september.
Plastvandinn er mikill og það er
mikilvægt að hann verði tekinn
föstum tökum.
Fallegur hljóðheimur
Árlega er klassísk tónlistarveisla
sýnd á RÚV sem heitir einfald
lega Klassíkin okkar. Þar spilar
Sinfóníuhljómsveit Íslands stórt
hlutverk og fær til sín góða gesti.
Þemað í ár er leikhústónlist.
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
n Lífið í
vikunni
29.08.21
04.09.21
Ég hef ekkert á móti
þessu en ég held að
þetta bæti engu við
það sem þau eru nú
þegar.
Styður við bakið á þér!
Sealy er annar stærsti
dýnuframleiðandi í
heimi og hefur verið
starfandi í 140 ár.
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Amerískir dagar
Sealy WASHINGTON
heilsurúm með classic botni
Virkilega vönduð dýna og hentar fólki á öllum aldri.
Washington heilsudýnan er með einstaklega vönduðu tvöföldu
pokagormakerfi, kantstyrkingum og vandaðri og þægilegri yfir-
dýnu Gormakerfinu er skipt upp eftir svæðum þannig að það er
með meiri stuðning þar sem við erum þyngri eins og öxlum og
mjöðmum. Lítil sem engin hreyfing finnst milli rekkjunauta.
Yfirdýnan (topperinn) er samsett úr fjórum lögum og þar á
meðal er gel lag (gel infused memory foam) sem lagast algjör-
lega að líkamanum og heldur honum í réttri stellingu alla nóttina.
Áklæðið utan um dýnuna er silki og bómullarblanda sem andar
einstaklega vel sem og gefur extra mýkt. Millistíf dýna.
Val um svart eða hvítt PU leður
eða grátt áklæði á Classic botni.
20%
AFSLÁTTUR
Amerískir
DAGAR
Sealy Washington fæst í eftirtöldum stæðum:
160/180/200 x 200 og 192 x 203 cm
Verðdæmi 160 x 200 cm m/Classic botni og löppum
Fullt verð: 269.900 kr. AD tilboð: 215.920 kr.
Dr. Gunni hélt ró sinni þegar
hann fylgdist með sænsku
hljómsveitinni ABBA boða
undur mikil og stórmerki á
fimmtudaginn, enda telur
hann ólíklegt að ný tónlist,
eftir 40 ára hlé, muni bæta
einhverju við það sem ABBA
er nú þegar.
toti@frettabladid.is
Gunnar Lárus Hjálmarsson, sjálfur
Dr. Gunni, svamlaði á fimmtudag
inn meðal boðsgesta í Sky Lagoon,
þegar ABBA rauf fjörutíu ára þögn
með kynningu á nýrri breiðskífu,
Voyager, og tveimur nýjum lögum.
Voulez-Vous Nígeríubréf?
„Ég hef nú alltaf verið alveg á móti
öllum „comebökkum“ og þetta
kom mér dálítið mikið á
óvart. Ég fékk eitthvert
boðskort í síðustu viku
og hélt að þetta væri
eitthvert Nígeríu
svindl bara,“ segir
Dr. Gunni, sem þáði
boðið í það sem reynd
ist síðan vera raunveru
leg opinberun ABBA,
uppákoma sem var sýnd
með viðhöfn samtímis á
sex stöðum í heiminum.
„Þarna voru gestir í Sky
Lagoon og þetta var aga
lega fínt. Maður fór þarna
í dýru klefana og fékk handklæði.
ABBAhandklæði. Það er nú ekki á
hverjum degi sem maður fær ABBA
handklæði,“ segir Gunni og hlær.
Engin gullkorn
Nýju lögin, I Still Have Faith In You
og Don't Shut Me Down, voru frum
flutt á meðan Gunni og aðrir gestir
voru í lóninu. „Það var nú svona frek
ar leiðinlegt og ekki að mínu skapi,“
segir Gunni um fyrra lagið, enda sé
hann ekki mikið fyrir ballöður.
Hann er hins vegar öllu jákvæðari
í garð Don't Shut Me Down. „Það er
skemmtilegt lag að mínu mati. Samt
bara eitthvað svona á Bhlið. Ég held
að við séum ekkert að fara að fá ein
hver gullkorn, sko. Eða ég hef enga
trú á því. Ég held að þetta sé
dálítið bara búið, sko,“ segir
doktorinn og hlær.
Gott popp
Gunni kann hins
vegar vel að meta
gömlu ABBAgull
kornin og nefnir í
því sambandi fyrst og
fremst Mamma Mia og
Lay All Your Love On Me og
segist einfaldlega dæma
tónlist eftir því hvernig
honum líður þegar hann
heyrir hana. „Og ef það
er gott ABBAlag þá bara
fyllist ég lífsgleði og góðum anda.
Þetta er bara rosalega gott popp
og vel fram sett af gríðarlegum fag
mönnum.
En ég veit ekki alveg hvað maður
á að segja um þetta. Ég hef ekkert á
móti þessu en ég held að þetta bæti
engu við það sem þau eru nú þegar,
en þetta er náttúrlega gott fyrir ein
hverja sem eru enn þá meiri ABBA
aðdáendur en ég. Ég er ekkert að fara
til London að sjá eitthvert vídeó,“
segir Gunni, með vísan til þess
hvernig Agnetha, Björn, Benny og
AnniFrid ætla sér að fylgja Voyager
eftir.
Dansinn hvín
Dansinn hvín nefnilega fyrir alvöru
í London á næsta ári, þegar stafræn
ar heilmyndir stórstjarnanna troða
upp á stafrænum tónleikum í raun
heimum, ásamt tíu manna hljóm
sveit í sérhannaðri tónleikahöll.
Sviðshrey f ingar ABBA hafa
undan farið verið fangaðar með
hreyfirakningartækni, motion capt
ure, og andlitum þeirra, eins og þau
voru 1979, verður skeytt á síhressa
tölvutjúttandi eldri borgarana, sem
þannig munu lifna við á sviðinu
fyrir svipaða galdra og Gollum í The
Lord of the Rings.
Gunni segist lítið hafa skilið í
útskýringum á þessari tækni og
f innur þessu helst hliðstæðu í
nýlegri tölvuteiknimynd um Tinna
og Kolbein kaftein.
ABBA-skíturinn
„Þetta eru ekki kjötheimar og er
dálítið gervilegt. Þetta er eitthvað
skrýtið og ég bara sé ekki að ég muni
nenna að fara á heila tónleika með
þessu. Ég mundi glaður fara að sjá
gamla fólkið, en það er nú kannski
ekki hægt að leggja það á einhverja
fólksfælna milljarðamæringa að
fara að standa í því.“
Gunni á það til að lýsa ABBA sem
„þriðja besta bandi í heimi“ á eftir
Bítlunum og XTC. „Bítlarnir eru
náttúrlega besta hljómsveit í heimi.
Það er bara jaðarskoðun að halda
einhverju öðru fram og ABBA eru
náttúrlega bara við fótskör meistar
anna. Ég hef nú sagt þetta áður og
ég fæ alltaf sama skítinn yfir mig,“
segir Gunni og hlær. „Það er bara
gaman. Það er ekkert hægt að rífast
um þetta. Þetta er bara smekkur og
skoðun.“n
ABBA ekki í Nígeríusvindli
Dr. Gunni fær
alltaf sama skít-
inn yfir sig þegar
hann hrósar
ABBA í hástert
og þá er nú ekki
ónýtt að eiga
svona líka for-
láta handklæði
eins og honum
áskotnaðist í
Sky Lagoon.
MYND/AÐSEND
Stafræn endur-
koma Agnethu.
44 Lífið 4. september 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ