Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.08.2021, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 25.08.2021, Qupperneq 4
Það sem þátttakendur uppskera: • Aukið sjálfstraust, sterkari sjálfsmynd og trú á eigin getu • Hugrekki til að segja sína skoðun óháð áliti annarra • Kjark til að tala um eigin líðan og annarra • Leiðir til að eignast vini, bæta samskipti og styrkja sambönd • Þor til að koma hugmyndum sínum á framfæri og hafa áhrif • Betra skipulag og skýrari markmið • Jákvætt viðhorf og kvíða/streitustjórnun Námskeið hefjast: 9 til 12 ára Leiðtogabúðir 9. ágúst 8.45-17.00 4 dagar í röð 10 til 12 ára 4. ágúst 9.00-13.00 átta virka dagar í röð 10 til 12 ára 25. september 10.00-13.00 átta laugardaga í röð 13 til 15 ára 4. ágúst 13.30-17.00 átta virka dagar í röð 13 til 15 ára 21. sept. 17.00 -20.30 einu sinni í viku, 9 skipti 13 til 15 ára 23. sept. 17.00 -20.30 (í Hafnarfirði), 9 skipti 13 til 15 ára 5. okt. 17.00 -20.30 (í Garðabæ), 9 skipti 16 til 19 ára 4. ágúst 18.00-22.00 tvisvar í viku, 9 skipti 16 til 19 ára 22. sept. 18.00-22.00 einu sinni í viku, 9 skipti 20 til 25 ára 3. ágúst 18.00-22.00 tvisvar í viku, 9 skipti 20 til 25 ára 23. sept. 18.00-22.00 einu sinni í viku, 9 skipti Vertu klár fyrir skólann Skráning á dale.is eða 555 7080 Ókeypis kynningartími dale.is/ungtfolk *Hægt er að nota frístundastyrki bæjarfélaga sem greiðslu - Youth_Ad_071921 Ríkisstjórnin ákvað í gær að taka á móti 120 flóttamönn­ um frá Afganistan. Afganskur maður sem flúði hingað segir að betur megi ef duga skal. thorvardur@frettabladid.is UTANRÍKISMÁL Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra segir stjórnvöld í kappi við tímann hvað varðar björgun fólks frá Afganist­ an. Á ríkisstjórnarfundi í gær var ákveðið að fallast á tillögur Flótta­ mannanefndar um að taka á móti 120 flóttamönnum frá Afganistan. Ásmundur sagði í viðtali á Frétta­ vaktinni á Hringbraut í gærkvöldi hugsanlegt að sú tala myndi hækka. Ákveðið var einnig að Flóttamanna­ nefnd starfaði áfram. Tillögurnar sem samþykktar voru í dag segir Ásmundur vera fyrstu tillögur um bráðaaðgerðir og unnið verði í sam­ starfi við nágrannaþjóðir um fram­ haldið. „Þetta er ekki hefðbundin mót­ taka eins og við höfum verið að vinna að, þar sem við höfum getað samið við fyrirtæki að þjónusta móttökuríki við að aðstoða fólk við að koma til landsins. Það er einfald­ lega kraftaverk hjá fólki sem kemst inn á f lugvöllinn og inn í vélar,“ segir hann en einungis herflugvélar fljúga frá flugvellinum í Kabúl. Því þurfi að treysta á bandalagsþjóðir til að flytja fólk á brott. Í gær greindi utanríkisráðuneytið frá því að þrjár fjölskyldu væru komnar til landsins frá Afganistan. Þær komu hingað með f lugi sem dönsk og finnsk stjórnvöld stóðu fyrir. Um er að ræða fólk sem er ýmist með íslenskan ríkisborgara­ rétt eða dvalarleyfi hér. Standa þarf vel að verki Ásmundur segir það skylduverk Íslands sem Atlantshafsbandalags­ þjóðar að bjarga þeim sem hafa verið erlendu herliði til aðstoðar frá landinu en það hefur biðlað til ríkja bandalagsins að leggja sitt af mörkum. „Þetta er of boðslega sorglegt og þetta nístir hjarta manns, sérstak­ lega í ljósi þess að við höfum verið að leggja okkar af mörkum í jafn­ réttismálum til að mynda til þess að aðstoða við breytingar þarna. Við erum að sjá það að það fólk er í mestri hættu nú vegna þessara hörmunga sem þarna eru í gangi. Um leið er það þannig að við þurfum að gera okkur grein fyrir því að Ísland er lítið land, við erum fámenn þjóð,“ segir Ásmundur og standa þurfi vel að verki við mót­ töku afganskra f lóttamanna. „Það er það sem skiptir líka miklu máli til þess að það sé áfram pólitísk samstaða um það í íslensku samfélagi, og samfélagsleg sam­ staða, að gera vel í þessum málum.“ Aðgerðirnar vonbrigði Navid Nouri kom til Íslands sem f lóttamaður frá Afganistan fyrir um áratug og er ríkisborgari hér. Hann hafi komið hingað til að bjarga lífi sínu, nú sé verið að loka augunum fyrir þjáningum þeirra sem eru í sömu stöðu. Navid segir áætlanir stjórnvalda vonbrigði og aðrir úr samfélagi Afgana hér á landi séu sama sinnis. Auðvitað eigi að bjarga þeim sem störfuðu fyrir NATO en f leiri séu í hættu af völdum talibana og nefnir þar konur og minnihlutahópa. Það skjóti skökku við að Ísland, sem gefi sig út fyrir að vera leiðandi í jafnréttismálum, bjargi ekki f leiri konum frá Afganistan. „Er ekki hægt að gera meira? Hvað eiga Afganir sem óttast um líf sitt og vilja f lýja að gera?“ spyr Navid. Hann gefur lítið fyrir áhyggjur af því að f lóttafólk verði baggi á velferðarkerfinu. Þeir sem hingað koma leggi mikið til íslenskt samfélags, margir séu í tveimur eða f leiri störfum og skili sínu til samfélagsins. Hjálpa þurfi fólki að komast til landsins og síðan sé það fullfært um að sjá um sig sjálft, með aðstoð samlanda þeirra sem nú þegar eru hér. ■ Við erum í kapphlaupi við tímann gar@frettabladid.is ÞINGVELLIR Sumarbústaður sem Þingvallanefnd keypti fyrir fimm árum við hliðina á Valhallarreitn­ um hefur enn ekki verið leigður út til fræðimanna og listafólks líkt og nefndin ákvað í fyrravetur. „Það hefur legið í dái út af Covid en það er ákvörðun sem stendur,“ segir Ari Trausti Guðmundsson, for­ maður Þingvallanefndar. Bústaðurinn, sem er 49 fermetrar, stendur í miklum trjálundi við hlið Valhallarreitsins og var keyptur af ríkinu að undirlagi Þingvallanefnd­ ar í því augnamiði að fjarlægja húsið og fella trén. „Fyrirsjáanlegt er að núverandi sumarbústaður og greniskógur stendur í vegi fyrir tengingu sem nú er rætt um að verði milli aðal­ aðstöðu ferðamanna á Hakinu og svæðisins við Valhallarreitinn og umhverfisins við Öxará,“ útskýrði þáverandi þjóðgarðsvörður Ólafur Örn Haraldsson fyrir forsætisráðu­ neytinu í aðdraganda kaupanna. Núverandi stjórn þjóðgarðsins hefur hins vegar fallið frá þessu. Húsið og lóðin hefur meðal annars verið nýtt af verktökum við stíga­ gerða á svæðinu. Aðspurður segir Ari ekki hafa verið útfært nákvæmlega hvernig útleigu bústaðarins verður hagað. Ari Trausti undirstrikar að það sé ekki einungis listamenn sem fái aðgang að bústaðnum til dvalar á Þingvöllum. „Það var svona prins­ ippákvörðun sem við tókum að þetta væru ekki bara listamenn heldur fræðimenn líka,“ segir hann. Að sögn Ara Trausta hefur veru­ lega rofað til í fjármálum þjóðgarðs­ ins eftir mikil harðindi í Covid. „Aðsóknin hefur tekið verulegan kipp. Miðað við hvernig þetta var fyrir ári síðan er þetta umsnúningur en það er auðvitað langt í það að hér fari að koma vel á aðra milljón gesta.“ ■ Covid heldur listafólki og fræðimönnum frá Þingvallabústað Það var svona prins­ ippákvörðun sem við tókum að þetta væru ekki bara listamenn heldur fræðimenn líka. Ari Trausti Guðmundsson, formaður Þingvallanefndar. benediktboas@frettabladid.is HAFNARFJÖRÐUR Endurskoðuð Húsnæðisáætlun Hafnarfjarðar var lögð fyrir skipulags­ og byggingarráð í gær. Minnihlutinn sagði á að hvergi væri minnst á þá fólksfækkun sem varð á síðasta ári í bænum í fyrsta skiptið síðan 1939. Hálfu ári fyrir lok kjörtímabils væri uppskeran rýr, fáar íbúðir í byggingu og fremur einhæf uppbygging fram undan. Stór hluti framtíðaruppbyggingar sé á jaðri byggðar sem sé illa tengdur við almenningssamgöngur. Meirihlutinn benti á að búið væri að lyfta grettistaki í uppbyggingu íbúða í bænum og megi þar helst nefna hundruð íbúða í Hamranesi, við Hraun, Vestur­Gjótur, Hjalla­ braut, Hrauntungu og Flensborgar­ höfn. Auk þess gengur skipulags­ vinna við Ásland 4 vel, en þar er gert ráð fyrir 480 íbúðum. Það komi spánskt fyrir sjónir að telja það áhyggjuefni að stór hluti framtíðar­ uppbyggingar sé á jaðri byggðar. Allt niðurrifstal Samfylkingarinn­ ar, Viðreisnar og Bæjarlistans í skipu­ lags­ og byggingarráði sé á sandi byggt, segir meirihlutinn og bendir á að það sé bjart yfir Hafnarfirði og íbúum mun fjölga á næstunni. ■ Telja niðurrif minnihlutans byggt á sandi Hart var tekist á í skipulags- og bygg- ingarráði Hafnarfjarðar í gær. Bandarískur land- gönguliði fylgir tveimur stúlkum um borð í her- flugvél á alþjóða- flugvellinum í Kabúl. Þar dvelur fjöldi fólks og bíður milli vonar og ótta að komast frá landinu. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Er ekki hægt að gera meira? Hvað eiga Afganir sem óttast um líf sitt og vilja flýja að gera? Navid Nouri. 4 Fréttir 25. ágúst 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.