Fréttablaðið - 25.08.2021, Page 6
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
... hjá ok
ku
r
í
d
a
g
H
já
b
ó
nd
a í gær ...
Mmm ...
Glænýjar íslenskar
kartöflur!
thorgrimur@frettabladid.is
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur hafnað
beiðni um áfrýjun fjórtán ára fang-
elsisdóms fyrir manndráp sem
felldur var af Landsrétti í júní. Um
er að ræða mál karlmanns á sex-
tugsaldri sem var dæmdur fyrir
að verða eiginkonu sinni að bana í
húsi þeirra í Sandgerði í mars 2020.
Manninum hafði verið gert að sök
að þrengja svo að hálsi konu sinnar
að hún kafnaði.
Maðurinn var handtekinn fjór-
um dögum eftir dauða eiginkonu
sinnar en bar fyrir sig minnisleysi
og sagðist hafa fallið í óminni vegna
drykkju þetta kvöld. Maðurinn
var upphaf lega dæmdur til fjór-
tán ára fangelsisvistar af Héraðs-
dómi Reykjaness í janúar 2021 og
sá dómur var síðan staðfestur af
Landsrétti eftir áfrýjun. Var litið
til þess að um stórhættulega atlögu
hefði verið að ræða og að mann-
inum hlyti að hafa verið ljóst að hún
yrði banvæn.
Verjandi mannsins hafði farið
fram á áfrýjun málsins, meðal ann-
ars á þeim grundvelli að Landsrétt-
ur hefði ekki virt þá meginreglu að
maður sé saklaus uns sekt sé sönnuð
og að vafa beri að túlka sakborningi
í hag. Jafnframt taldi hann dóminn
bersýnilega rangan þar sem litið
hefði verið fram hjá niðurstöðu
tveggja dómkvaddra matsmanna
um mögulega dánarorsök. Í mati
þeirra var ekki útilokað að konan
hefði látist úr áfengiseitrun þótt
niðurstöðurnar bentu sterklega til
þess að konan hefði verið kyrkt.
Í niðurstöðu sinni taldi Hæsti-
réttur ekki að áfrýjunarbeiðnin
lyti að atriðum sem hefðu almenna
þýðingu eða að mjög mikilvægt væri
að fá úrlausn Hæstaréttar til þess að
fullnægja lagaskilyrðum. Var beiðn-
inni því hafnað og fjórtán ára fang-
elsisdómurinn staðfestur. ■
Áfrýjun hafnað í Sandgerðismorðinu
Maðurinn var upphaflega dæmdur
í Héraðsdómi Reykjaness árið 2020.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
thorgrimur@frettabladid.is
UTANRÍKISMÁL Áætlað er að Flótta-
mannanefnd komi saman á næst-
unni til að ræða málefni Haítí, þar
sem fjöldi fólks hefur misst heimili
sín vegna 7,2 stiga jarðskjálfta sem
skók landið þann 14. ágúst síðast-
liðinn. Rúmlega 2.000 andlát hafa
verið staðfest vegna jarðskjálftans
og hundruð þúsunda bygginga hafa
verið lögð í rúst.
Flóttamannanefndin skilaði
nýlega tillögum til ríkisstjórnar um
viðtöku flóttamanna frá Afganistan
eftir að hafa fundað um stöðuna þar
í landi. Að sögn Stefáns Vagns Stef-
ánssonar, formanns nefndarinnar,
var ekki fjallað um Haítí á þeim
fundi. „Þetta eru aðgreind verkefni.
Verkefnið sem við fengum síðast var
að koma með tillögur vegna Afgan-
istan og allur þunginn hjá okkur fór
í það verkefni. Nú er komin beiðni
um að ræða stöðuna sem er uppi á
Haítí og við verðum að koma saman
út af því fljótlega.“
Nákvæm dagsetning næsta fund-
ar Flóttamannanefndar liggur ekki
fyrir en Stefán Vagn segir að þá verði
væntanlega einnig rætt um viðtöku
kvótaflóttafólks.
„Við eigum eftir að taka við
kvótaflóttafólkinu frá 2020 og svo er
hópurinn frá 2021 enn eftir. Það eru
svo sem næg verkefni, og vandamál-
ið í Covid hefur bara verið að koma
fólki milli landa. Það hefur verið að
liðkast til í því, svo við höfum vænt-
ingar til þess að við getum farið að
ná þessum hópum hingað eins og til
stóð.“ ■
Næst fundað um flóttamenn frá Haítí
thorgrimur@frettabladid.is
RÚSSLAND Tæplega tveggja ára
stúlka fannst á lífi í gær eftir að
hafa verið týnd í rússneskum skógi
í fjóra daga. Stúlkan, Ljúda Kúzína
að nafni, hafði ráfað burt frá móður
sinni í Smolenskfylki skammt frá
Moskvu. Höfðu mæðgurnar verið
í sumarbústað fjölskyldunnar í
héraðinu Tjomkinskí og hafði Ljúda
þá álpast út í skóg á meðan móðir
hennar skrapp yfir til nágrannans.
Hundruð leituðu að stúlkunni,
kafarar leituðu í vatnsbólum þar
nærri en fundu ekkert. Það var ekki
fyrr en á fjórða degi sem einn sjálf-
boðaliðanna heyrði „tíst“ og fann
þá Ljúdu undir greinum. Hún hafði
verið án vatns og matar í fjóra daga
og var þakin skordýrabitum en var
annars heil á húfi.
„Hún er núna staðráðin í að ætla
aldrei að hlaupa burt frá mömmu
sinni framar,“ sagði móðirin, Ant-
ónía Kúzína, við dagblaðið Komso-
molskaja Pravda. „Ekki veit ég nú
hvað hún á eftir að muna eftir því
loforði lengi. En hún segir það alla
vega.“ ■
Fannst eftir fjóra daga ein úti í skógi
Forstjóri Landspítalans
fagnar niðurstöðum könn-
unar. Fjármála- og efnahags-
ráðherra segir málaflokkinn
í forgangi.
arib@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL „Það kemur mér
ekki á óvart að fólk vilji vel fjár-
magnað heilbrigðiskerfi og telji
þörf á frekari framlögum. Þessi
ríkisstjórn hefur haft málaflokkinn
í forgangi og aukið við á nær öllum
sviðum,“ segir Bjarni Benediktsson,
fjármála- og efnahagsráðherra, um
niðurstöður könnunar sem sýnir
að meirihluti landsmanna vill að
aukið fjármagn renni til reksturs
Landspítalans.
„Árleg framlög til reksturs Land-
spítala hafa verið að hækka umtals-
vert, eða úr 60 milljörðum í 78 á
kjörtímabilinu. Inni í þeirri tölu
eru ekki framlög í viðhald, fjárfest-
ingar, byggingu Nýja Landspítalans
og fleira, heldur bætast þau útgjöld
svo við. Það hefur einnig orðið mikil
aukning til heilsugæslu, til geðheil-
brigðismála, lyfjakaupa og f leiri
þátta. Heilbrigðisútgjöld munu
halda áfram að vaxa í framtíðinni,
jafnvel þótt við höfum aldrei áður
varið jafn háu hlutfalli útgjalda til
málaflokksins, meðal annars vegna
þess að þjóðin er að eldast. Vegna
þess hve málaflokkurinn er fjárfrek-
ur skiptir miklu að hver króna nýtist
vel. Þar getur skipt sköpum að hafa
góða yfirsýn, sterka stjórn á lykil-
kerfum og að ekki séu veikleikar
á borð við þá sem við höfum séð
þegar fólk sem hefur lokið meðferð
liggur fast á sjúkrahúsi.“
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra segir niðurstöðurnar end-
urspegla stuðning landsmanna við
opinber heilbrigðiskerfi.
„Þetta endurspeglar það sem að
áður hefur komið fram. Það er ein-
dreginn stuðningur landsmanna
við opinbert heilbrigðiskerfi og
sterkan Landspítala. Þetta er ein-
dregið ákall um að haldið verði
áfram á þeirri braut að byggja upp
þessa mikilvægu þjónustu,“ segir
Svandís.
Páll Matthíasson, forstjóri Land-
spítalans, er ánægður með niður-
stöðurnar en mikið hefur mætt á
starfsfólki spítalans í Covid-faraldr-
inum. „Þetta eru mjög ánægjulegar
niðurstöður og þetta er í samræmi
við það sem við höfum fundið að
almenningur styður við verkefni
spítalans,“ segir Páll. „Þarna kemur
fram skýr vilji þjóðarinnar. Við
finnum það nú og til framtíðar að
fjármagna þurfi verkefnið með full-
nægjandi hætti.“ ■
Eindreginn stuðningur við
að styrkja Landspítalann
Það kemur mér ekki á
óvart að fólk vilji vel
fjármagnað heilbrigð-
iskerfi og telji þörf á
frekari framlögum.
Bjarni Bene-
diktsson, fjár-
mála- og efna-
hagsráðherra.
Mikið álag hefur verið á starfsfólki Landspítalans undanfarna mánuði. MYND/ÞORKELL ÞORKELSSON
6 Fréttir 25. ágúst 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ