Fréttablaðið - 25.08.2021, Síða 8
n Halldór
n Frá degi til dags
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is,
FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is
HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Í þessum
vangavelt-
um gleym-
ist þriðji
kosturinn,
en það er
ríkisstjórn
Sigurðar
Inga
Jóhanns-
sonar.
Undan-
farin ár
hafa fjár-
veitingar
til almenns
viðhalds
grunnskóla
og leik-
skóla þre-
faldast.
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
ser@frettabladid.is
Veruleiki okkar um allt land er að reglulega kemur
upp mygla og rakaskemmdir í húsnæði hins opin-
bera og víðar. Dæmin hrannast upp af skólahúsnæði
þar sem mygla hefur greinst til dæmis í Kársnesskóla
og leikskólanum Austurkór í Kópavogi, Varmárskóla
í Mosfellsbæ, Lundarskóla, Brekkuskóla og Odd-
eyrarskóla á Akureyri, Grundaskóla á Akranesi og
Nesskóla í Neskaupstað.
Í Reykjavík hafa komið upp mál þar sem mygla
hefur fundist og hefur húsnæði Fossvogsskóla verið
þar efst á baugi og leikskólinn Kvistaborg sem stað-
settur er steinsnar frá. Í Fossvogsskóla hefur verið
ráðist í ýmsar viðhaldsframkvæmdir og endurbætur
til að ráða niðurlögum rakavandamála samkvæmt
ráðleggingum fagaðila en ekki tókst þó að komast
fyrir vandann og var þá kallað eftir nýrri úttekt
verkfræðistofunnar EFLU sem leiddi í ljós að þörf var
á umtalsverðum framkvæmdum til viðbótar. Nú er
verið að leggja lokahönd á aðgerðaáætlun um þær
framkvæmdir sem munu hefjast í haust. Vilji foreldra
hefur haft góð áhrif á ákvarðanatöku varðandi ýmis
skref í málinu sérstaklega undanfarin misseri en nú
er unnið að því að bæta verkferla til framtíðar og
verður kynnt f ljótlega.
Mikil áhersla hefur verið lögð á að auka fjármagn
í viðhald og endurbætur skólahúsnæðis borgarinnar
undanfarin ár eftir þrengingatíma í kjölfar banka-
hruns. Skóla- og frístundastarfið fer fram í um 170
stofnunum og nálægt 300 byggingum í borginni
en sem betur fer eru fá dæmi þar sem fundist hefur
mygla eða alvarlegar rakaskemmdir. Undanfarin ár
hafa fjárveitingar til almenns viðhalds grunnskóla
og leikskóla í borginni þrefaldast úr tæpum 700
milljónum í 2.100 milljónir á hverju ári. Gerð hefur
verið úttekt á ástandi skólahúsnæðis í borginni og
á grundvelli hennar verður enn bætt um betur í að
gera húsnæði til skóla- og frístundastarfs sem best úr
garði. n
Aukið fjármagn í
viðhald
Skúli Helgason
borgarfulltrúi
Samfylkingar-
innar.
FAXAFEN 11, 108 REYKJAVÍK, S: 534-0534
WWW.PARTYBUDIN.IS
Allt fyrir veisluna á einum stað
Skraut, borðbúnaður, búningar og tækjaleiga
arib@frettabladid.is
B2-skutlið
Það er löngu vitað að allt tal um
fjármál Landspítala fer rakleiðis
út í skurð. Þjóðin, nema Sjálfstæð-
ismenn, vill ausa fé í Landspítala
á meðan efasemdamenn, iðulega
Sjálfstæðismenn, setja spurning-
armerki við ýmis atriði í rekstrin-
um. Með alla þá popúlísku flokka
sem bjóða nú fram til Alþingis og
alla hina með popúlista innan-
borðs, þá er nú tími til að kanna
hvers vegna tugir manna sækja
um alls konar ruglstöður hjá hinu
opinbera á meðan skortur er á
starfsfólki á gjörgæslunni. Það
sem allir eru samt sammála um,
líka Sjálfstæðismenn, er að tími
er kominn til að hætta að láta 90
milljarða króna B2-sprengjuflug-
vélar fara með sjúklinga í aðgerðir
í útlöndum.
Kremkex
Það er allt í lagi að vera ósammála
yfirvöldum, það getur jafnvel
verið hollustumerki. Það má
jafnvel setja spurningarmerki
við hvort það kunni að vera ein-
hverjar aukaverkanir við því að
bólusetja ungmenni við Covid-19.
Myndi það gera meira gagn að
fylgjast með líðan þeirra í stað
þess að öskra á þau. Og þegar þú
ert farinn að lenda á spítala eftir
að hafa smurt beygluna þína með
einhverju húðkremi því þú sást
það á netinu þá er líklegast best
að endurskoða afstöðuna frá
grunni. n
Réttur mánuður er í dag þar til lands-menn ganga að kjörborðinu og velja sér fulltrúa á Alþingi. Og enda þótt mánuður kunni að vera langur tími í pólitík er ekki við öðru að búast en að
næstu fjórar vikur líði hratt í loforðaglamri og
lúðrablæstri.
En látum það vera. Niðurstaða kosninganna
skiptir meira máli. Og hún hefur sjaldan eða
aldrei verið jafn ófyrirséð. Veldur þar miklu
sá fjöldi flokka sem á möguleika á að koma
fulltrúum sínum á þing, en það dregur heldur
ekki úr óvissunni að fleiri en einn þeirra mun
hugsanlega ekki ná inn manni.
Staðan eftir kosningarnar verður flókin. Það
er nokkurn veginn augljóst, meira að segja þótt
núverandi ríkisstjórnarflokkar haldi þingstyrk
sínum og geti fyrir vikið haldið áfram samstarfi
sínu. Það er nefnilega ekkert gefið í þeim efnum.
Bakland Vinstri grænna er óánægt með sam-
starfið með Sjálfstæðisflokknum. Það er í sjálfu
sér eðlilegt, enda tilheyra flokkarnir hvorum
endanum á pólitíska litrófinu. Og þessar tvær
fylkingar eru vanari því að uppnefna hvor aðra
og úthrópa en að vinna saman í sátt.
Því hefur verið haldið fram að Katrín Jakobs-
dóttir, formaður VG, sem leitt hefur þessa
óvenjulegu stjórn í gegnum þokumóðu far-
sóttar, sé í pólitískri kjörstöðu. Hún ráði því
hvaða flokkar verði í næstu stjórn, geti hæglega
myndað einhvers konar vinstristjórn með Sam-
fylkingu, Pírötum og jafnvel Sósíalistaflokkn-
um, þótt Framsóknarflokkurinn sé raunar lík-
legri í því samstarfi. En hún geti einnig hundsað
þessa flokka og hallað sér aftur að íhaldinu.
Í öllu falli ráði Katrín miklu, jafnvel mestu, um
það hvort næsta stjórn verði áfram sú sama og
verið hefur eða að einhvers konar vinstristjórn
verði mynduð.
Í þessum vangaveltum gleymist þriðji kostur-
inn, en það er ríkisstjórn Sigurðar Inga Jóhanns-
sonar. Hann er sá formanna ríkisstjórnarflokk-
anna sem hefur líklega hæstu spilin á hendi, án
þess þó að því hafi verið nokkur gaumur gefinn.
Sigurður Ingi er í lykilstöðu til að mynda
miðjustjórn. Hann er í bílstjórasætinu og þarf
ekki annað en að blikka formenn Samfylkingar,
Viðreisnar og Pírata svo þeir stökkvi um borð
í Framsóknarrútuna. Fyrir hann persónulega
væri það pólitískur stórsigur að setjast í forsætis-
ráðuneytið á þessum tíma þegar flokkur hans
hefur náð vopnum sínum aftur eftir klofninginn
fyrir tæpum fjórum árum.
Nú er hans möguleiki að leiða stjórn. Sá mögu-
leiki kemur mjög líklega ekki aftur. Og það vegur
þungt eftir mánuð. n
Þriðja leiðin
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 25. ágúst 2021 MIÐVIKUDAGUR