Fréttablaðið - 25.08.2021, Side 9

Fréttablaðið - 25.08.2021, Side 9
Hvarvetna á Vesturlöndum er nú rætt um Talibana og mjög á einn veg. Að þar séu á ferðinni miskunn- arlaus og siðlaus illmenni. Álits- gjafar frá hægri og vinstri harma að hinu vestræna hernámsliði skuli ekki hafa tekist nógu hratt og vel sitt menningar- og menntunarstarf í landi Afgana og hver lepur upp eftir öðrum að Bandaríkjamenn hafi of snemma misst móðinn. Mjög er þessi nýlenduumræða lík þeirri sem verið hefur um hin einstæðu Stanlönd Miðasíu síðustu 200 árin. Staðreyndin er að Bandaríkja- menn og þeirra stuðningsþjóðir eiga (Íslendingar þar með taldir) skuldlaust heiðurinn af hinni sorg- legu valdatöku Talibana í Afganistan enda fyrstir til að hlaða undir öfga- sveitir þessar í viðleitni til að hefta völd Sovétmanna á svæðinu. Nú sem fyrr hefur það sýnt sig að með þessari stoltu ættbálkaþjóð virkar innræting í vestur til þess eins að menn horfa í austur. Sé þeim aftur á móti skipað að horfa í austur þá munu þeir fyrir víst þrástara í vestur. Sjálfur er ég ekki svo víðförull að hafa komið til Afganistan en engu að síður kunnugur í nágrenninu og gat ekki annað en hrifist af Phastún- um þeim sem ég kynntist uppi við Afgönsku landamærin í Pakistan og enda líka í borginni Rawalapindi þar skammt frá. Af mánaðardvöl á þeim slóðum og síðar gistivináttu meðal sona og dætra spámannsins víðsvegar um Asíu og Afríku hefur ég komist örfá hænufet í átt að skilningi á þankagangi þessa fólks og fundið hve gagnstæður hann er okkar hugsun, um margt. Og það er að sönnu rétt að menn þessir eru ekki talsmenn frjáls- ræðis meðal kvenna og raunar ekki frjálsræði nokkurs manns ef út í það er farið. Allt í fari þessa fólks lýtur ströngum aga feðraveldisins og verkar í heild heldur óhugnan- lega. En að fólk þetta séu siðlausir villimenn eða illmenni er ekki bara rangt heldur og einnig vitnisburður um djúpstæðan rasisma, mann- hatur og hroka. Það er auðvitað erfitt fyrir okkur sem tamið höfum okkur þá hugsun að hver maður, karlar sem konur, eigi rétt á sjálfræði að skilja hið forn- Um hina alvondu menn í austrinu og gesti þeirra Bjarni Harðarson bóksali og rithöfundur á Selfossi. lega og afturhaldssama lífsviðhorf þessa fólks. Enn fjarstæðukenndara að við getum fellt okkur við það og sagt með sjálfum okkur, já, þetta er bara harla gott. En nú er það hvergi skrifað í skýin að allir menn á jörð- inni eigi að lifa eftir þeim reglum sem ég eða þá Jón stórbítur í Amer- íku telja réttar. Eitt er það út af fyrir sig að senda nokkur þúsund manna morðsveitir inn í land sem Afganistan undir því yfirskini að leita þurfi uppi ofbeldis- menn sem sprengja skýjakljúfa. Slíkt hefði getað jafnað sig. Hitt er til lengri tíma miklu verra að herför þessari var smám saman snúið upp í innrætingarherferð þar sem Afgön- um skyldi kennt að vera eins og fólk tíðast er í okkar heimshluta. Aldrei virtist hvarfla að innrásarþjóðum þessum að þær gætu lært nokkuð af hinum fornu fjallaþjóðum sem þó kunna betur öðrum að lifa spart og um margt með litlu kolefnisspori. Slíkir gestir sem sitja slímusetu í sjálfsánægju sinni og koma sér upp gerspilltri leppstjórn eiga sér engar málsbætur. Að heyra sömu menn fimbulfamba nú um það hversu alvondir þeir menn eru sem komnir eru til valda í Afganistan er ekki en nema brjóstumkennanlegt blaður. Ennþá vitum við lítið um stjórnarhætti nýrra herkonunga austur í Kabúl og það er sem betur fer sjaldnast nokkuð að marka þá menn sem þykjast sjá í gegnum hlið tímans. n Það er eðli verkefnis að skila afurð. Ef notagildi afurðarinnar er lítið sem ekkert er afurðin gagnslaus. Í gerbreyttum heimi þar sem orku- einingar til framleiðslu eru mældar í kolefnisspori getur vitleysan orðið svo gegndarlaus að það er eins og heilinn hafi ekki verið notaður. Það sér hver heilvita maður að notagildi papparöra í drykkjar- föng er ekkert. Hver er þá orku- sparnaðurinn? Ég vona innilega að vöruþróun næstu missera finni afurð sem leysir af hólmi plast- rörin. En í Guðs bænum leyfið mér að nota mitt plaströr þar til lausnin er fundin! n Notagildi papparöra Karl Guðlaugsson tannlæknir og MPM. En að fólk þetta séu siðlausir villimenn eða illmenni er ekki bara rangt heldur og einnig vitnisburður um djúp- stæðan rasisma, mann- hatur og hroka. MIÐVIKUDAGUR 25. ágúst 2021 Skoðun 9FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.