Fréttablaðið - 25.08.2021, Qupperneq 12
kristinnpall@frettabladid.is
FÓTBOLTI Valskonur geta endur-
heimt Íslandsmeistaratitilinn eftir
eins árs fjarveru með sigri á Tinda-
stóli á heimavelli sínum í kvöld en
Valskonur vantar þrjú stig úr síð-
ustu þremur leikjunum til þess að
tryggja sér titilinn. Takist Valsliðinu
að landa titlinum í kvöld verður það
tólfti Íslandsmeistaratitill kvenna-
liðs félagsins.
Með því nær Valur að breikka
bilið á erkifjendur sína, KR (6) sem
næstsigursælasta félag kvenna-
boltans og um leið saxa á forskot
Blika sem hafa átján sinnum landað
Íslandsmeistaratitlinum.
Frá því að Valur fékk skell undir
lok maímánaðar í 3-7 tapi gegn
Breiðabliki hafa Valskonur fengið
28 stig af 30 mögulegum og aðeins
lent undir í átta mínútur af þeim
níu hundrað sem þær hafa leikið frá
þeim tíma. Þær fá í dag tækifæri til
að landa titlinum upp á eigin spýtur
gegn botnliði Tindastóls en síðast
þegar liðin mættust vann Valur 5-0
sigur á Sauðárkróki. n
Landa titlinum
með sigri í kvöld
Valskonur eru einum sigri frá tólfta
Íslandsmeistaratitlinum.
kristinnpall@frettabladid.is
FÓTBOLTI Arnar Þór Viðarsson og
Eiður Smári Guðjohnsen, þjálfarar
karlalandsliðsins í knattspyrnu, til-
kynna í dag hvaða leikmenn verða
í hópi íslenska karlalandsliðsins
fyrir næstu leiki liðsins í undan-
keppni HM 2023. Fram undan eru
þrír heimaleikir gegn Rúmeníu,
Norður-Makedóníu og Þýskalandi
sem fara langt með að ráða örlögum
Íslands í riðlinum.
Ísland er með þrjú stig af níu
mögulegum en Armenar eru með
fullt hús stiga eftir fyrstu leikina í
J-riðli, meðal annars eftir sigur á
Íslandi í Jerevan. Efsta lið riðilsins
fer beint á HM 2022 í Katar en liðið
í öðru sæti fer í umspil.
Óvíst er hvort að landsliðsfyrir-
liðinn Aron Einar Gunnarsson geti
tekið þátt í verkefninu en fyrr í vik-
unni var greint frá því í hlaðvarpi Dr.
Football að Aron væri með Covid-19
líkt og Rúnar Alex Rúnarsson.
Þá er þetta fyrsti hópurinn sem er
valinn eftir að fréttarflutning hófst
af því að Gylfi Þór Sigurðsson hafi
verið handtekinn. Gylfi hefur ekk-
ert komið við sögu í leikjum Everton
það sem af er tímabili á meðan mál
hans er á borði lögreglu. n
Kynna hópinn
fyrir næstu leiki
Arnar mun stýra íslenska liðinu í
fyrsta sinn á íslenskri grundu.
12 Íþróttir 25. ágúst 2021 MIÐVIKUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 25. ágúst 2021 MIÐVIKUDAGUR
kristinnpall@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR Samkvæmt nýrri mark-
aðskönnun SportsPro er fimleika-
stjarnan Simone Biles markaðs-
vænsti íþróttamaður heims (e.
most marketable athletes). Við
rannsóknina voru fimm mismun-
andi breytur notaðar til að mæla
tækifæri íþróttafólks til að afla sér
tekna á samskiptamiðlum sínum.
Þrátt fyrir að vera með f lesta fylgj-
endur á stærstu samskiptamiðlum
heims með rúmlega hálfan milljarð
fylgjenda nær Cristiano Ronaldo
aðeins sjötta sæti listans. Þrjár
efstu manneskjur listans eru konur.
Við útreikning eru notaðar fimm
mismunandi breytur, sýnileika,
þátttöku, markhópur, þátttaka og
fjölbreytileiki fylgjenda. Þar þótti
Biles, sem er talin ein fremsta
íþróttakona allra tíma, skara fram
úr. Biles vakti heimsathygli fyrr í
sumar þegar hún dró sig úr keppni
á Ólympíuleikunum í miðri liða-
keppni kvenna í áhaldafimleikum
til að hlúa að andlegri heilsu sinni.
Næst á listanum er tennisstjarnan
Naomi Osaka frá Japan sem líkt og
Biles ákvað að draga sig úr keppni
á miðju stórmóti til að hlúa að and-
legri heilsu sinni. Ashlyn Harris,
liðsfélagi Gunnhildar Yrsu Jóns-
dóttur hjá Orlando Pride kemur
næst á eftir Osaka.
Athygli vek ur að Cr istiano
Ronaldo nær aðeins sjötta sæti list-
ans þar sem hann er meðal annars
á eftir mexíkóska hnefaleikakapp-
anum Canelo Alvarez og liðsfélaga
sínum hjá Juventus, Paulo Dybala.
Lionel Messi er svo í tólfta sæti list-
ans eftir að hafa verið í fyrsta sæti
listans í fyrra.
Af lraunakonan Katrín Tanja
Davíðsdóttir sem hefur tvisvar
hlotið nafnbótina Hraustasta kona
heims á Heimsleikunum í CrossFit
kemst ekki á listann í ár eftir að
hafa verið í 45. sæti í fyrra. n
Biles markaðsvænsti íþróttamaður heims
Biles vann til bronsverðlauna á slá á
ÓL í Tókýó. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Þegar nokkrir dagar eru í að
félagsskiptaglugginn í Evr-
ópu lokist er heldur farið að
hitna í kolunum. Þó nokkur
stór félagsskipti gætu gengið
í gegn á lokametrunum en í
tilefni þess tók Fréttablaðið
saman fimm stórnöfn sem
gætu verið á faraldsfæti á
næstu dögum.
kristinnpall@frettabladid.is
FÓTBOLTI Í gær fóru að berast fréttir
af því að það gætu orðið verulega
hreyfingar í leikmannamálum á
næstu dögum. Breskir fjöl miðlar
fullyrtu að háttsettur umboðs-
maður væri að vinna í því að koma
Kylian Mbappé til Real Madrid
og um leið að sameina Cristiano
Ronaldo og Lionel Messi hjá PSG. Á
sama tíma eru öll stærstu lið Eng-
lands með eyrun opin fyrir liðsstyrk
fyrir komandi átök. n
Hitnar í kolunum á
leikmannamarkaðnum
Cristiano Ronaldo, 36 ára, Juventus – Þrátt fyrir að vera farinn að nálgast
fimmtugsaldurinn er ekkert að hægjast á Ronaldo og fylgjast stærstu lið
Evrópu með málefnum hans. Blaðamaður Athletic sagði að Manchester City
hefði afþakkað viðræður við Ronaldo sem á eitt ár eftir af samningi sínum
við Juventus en hugurinn virðist vera farinn að leita annað.
Kylian Mbappe, 22 ára, PSG – Öll stærstu lið Evrópu fylgjast með framvindu
mála hjá Mbappé sem hefur til þessa ekki verið tilbúinn að skrifa undir nýjan
samning í Parísarborg. Hann á eitt ár eftir af samningi sínum og dreymir um
að leika fyrir Real Madrid einn daginn en ensku félögin gætu reynt að fá
franska undrabarnið til að millilenda í Bretlandi.
Harry Kane, 28 ára, Tottenham – Framherji enska landsliðsins hefur beitt
ýmsum brögðum til að þrýsta á stjórnarformenn Tottenham í von um að
komast til Manchester City án árangurs. Tottenham virðist vera harðákveðið
í að halda fyrirliða sínum sama hvert boðið verður en sparkspekingurinn
Gary Neville hvatti fyrrverandi lið sitt, Manchester United, til að blanda sér í
baráttuna um Kane. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Jules Kounde, 22 ára, Sevilla – Franski unglingalandsliðsmaðurinn hefur
verið orðaður við nokkur félög á Englandi en hann virðist líklegur til að ganga
til liðs við Evrópumeistara Chelsea fyrir lok félagsskiptagluggans. Hann
hefur látið lítið fyrir sér fara og ekkert gert mál úr því að komast frá félaginu
en honum er ætlað að leiða vörn Chelsea næsta áratuginn. Þrátt fyrir ungan
aldur á hann að baki fjögur tímabil í efstu deild, tvö í frönsku úrvalsdeildinni
og tvö í þeirri spænsku.
Saul Niguez, 26 ára, Atletico Madrid – Það stefnir í baráttu á milli Chelsea og
Manchester United um spænska landsliðsmanninn sem hefur einnig verið
orðaður við Liverpool í sumar. Saul sem kom upp úr unglingaakedemíu
Atletico og hefur leikið 339 leiki fyrir spænska stórveldið þykir einn af betri
miðjumönnum Evrópu en hann virðist ekki vera jafn mikilvægur í augum
Diego Simeone lengur. Fyrir vikið gætu ensku félögin reynt að fá Saul til Eng-
lands en hann hefur um árabil verið orðaður við félög þar í landi.