Fréttablaðið - 25.08.2021, Side 16
3-5
Fari Coripharma á
markað áætlar það að
sækja sér um 3 til 5
milljarða í nýtt hlutafé.
Fasteignafélagið Kaldalón
hefur selt þróunareignir,
keypt tekjuberandi eignir,
aukið hlutafé, skipt um for-
stjóra, sett helmings hlut í
steypustöð á sölu og stefnir á
Aðallistann í Kauphöllinni.
Kaldalón, sem skráð er á First North
markaðinn, hefur tekið miklum
breytingum frá því í maí og er
félagið enn í breytingafasa. Í byrjun
sumars var tilkynnt að Kaldalón
færi frá því að sinna alfarið fast-
eignaþróun í að leggja höfuðáherslu
á tekjuberandi eignir en væri sam-
hliða með sterkan þróunararm.
„Umbreytingin er vel á veg
komin,“ segir Jón Þór Gunnarsson,
forstjóri fyrirtækisins. „Það eru
kauptækifæri víða í atvinnueign-
um. Stefnt er að því að á næsta ári
verði fasteignasafnið vel skráning-
arhæft á Aðalmarkað í Kauphöll-
inni, vel fjármagnað og með hátt
útleiguhlutfall,“ bætir hann við.
Á fáeinum mánuðum hafa fimm
þróunarverkefni verið seld fyrir
3,6 milljarða króna að frádregnum
skuldum, fasteignir þriggja hótela í
miðbænum keyptar fyrir rúmlega
níu milljarða að skuldum meðtöld-
um, hlutafé aukið um 1,8 milljarða
með tilkomu fjárfestisins Jonathan
B. Rubini, sem á fasteignafélagið JL
Properties í Alaska auk VÍS og sjóða
á vegum Stefnis í hlutahafahópinn,
helmings hlutur í steypustöðinni
Steinsteypunni settur í söluferli og
skipt var um forstjóra en Jón Þór tók
nýverið við af Jónasi Þór Þorvalds-
syni.
Arion banki, sem annast söluna
á hlutnum í Steinsteypunni, hefur
sömuleiðis sölutryggt hlutafjárút-
boð sem áætlað er að verði efnt til
á næsta ári í aðdraganda fyrirhug-
aðrar skráningar félagsins á Aðal-
markað. „Sölutryggingin er mikil
traustsyfirlýsing. Það er erfitt að
finna sambærilegan samning fyrir
félag af þessari stærð í seinni tíð,“
segir hann.
Jón Þór segir að Kaldalón muni
ekki einblína á fasteignir í ferða-
þjónustu, þrátt fyrir umtalsverð
kaup á því sviði að undanförnu,
heldur sé horft til þess að hlutfallið
verði um 25-30 prósent af eigna-
safninu. „Við erum alltaf að skoða
kauptækifæri í fasteignum. Það er
okkar daglega verkefni. Við eigum
í viðræðum við ýmsa,“ segir hann.
Kaldalón á fasteignir hótelanna
Sand Hótel við Laugaveg sem rekið
er af KEA hótelum, Storm Hótel í
Þórunnartúni sem einnig er rekið
af KEA og Room With a View sem
rekið er í fasteignum á Vegamóta-
stíg.
„Kaupverðið tók mið að því að
ekki er gert ráð fyrir fullum tekjum
af útleigu til hótelanna fyrr en árið
Kaldalón tekið stakkaskiptum í sumar
Vilja gott verð fyrir Steinsteypuna
Bókfært virði Kaldalóns á 50 prósenta hlut í Steinsteypustöðinni
var aukið úr 335 milljónum króna 602 milljónir króna í nýju hálfs
ársuppgjöri félagsins. Eins og fram hefur komið er hluturinn til
sölu. Þriðji aðili gerði verðmat fyrir fasteignafélagið á félaginu og
byggir það á áætlunum stjórnenda Steinsteypustöðvarinnar fyrir
árin 2021 til 2025. Í bókum Kaldalóns var miðað við lægri mörk
verðmatsins og tekin þriðjungs varúðarfærsla af því, að því er
fram kemur í ársreikningi.
Kemur Kaldalón ágætlega fjárhagslega út úr því að hafa komið
að stofnun Steinsteypustöðvarinnar?
„Já, reksturinn hefur gengið vel. Fyrirtækið er rúmlega þriggja
ára gamalt og er í miklum vexti. Um er að ræða gott félag og okkar
væntingar standa til að fá gott verð fyrir hlutinn. Það er ekkert
sem krefur okkur um sölu og því erum við í þeirri aðstöðu að geta
beðið með sölu ef tilboðin standa ekki undir væntingum.“
Tekjur Steinsteypunnar jukust um 50 prósent á milli ára og
námu um 1,1 milljarði króna árið 2020. Eigið fé steypustöðvarinn-
ar var 431 milljón við árslok 2020 og eiginfjárhlutfallið 40 prósent.
Jón Þór Gunn-
arsson, forstjóri
Kaldalóns, segir
að umbreyting-
in Kaldalóns sé
vel á veg komin.
FRÉTTABLAÐIÐ/
HEIÐA HELGA-
DÓTTIR
Helgi Vífill
Júlíusson
helgivifill
@frettabladid.is
2023. Rekstur hótelanna hefur
gengið vel í sumar,“ segir Jón Þór.
Var fasteignaþróunin dýrari en
upphaf lega var gert ráð fyrir eða
markaðsaðstæður óhag felldar?
Eru einhverjar slíkar ástæður fyrir
því að félagið er að leggja aukna
áherslu á tekjuberandi eignir í stað
fasteignaþróunar?
„Fasteignaþróunin hefur almennt
gengið vel og má í því samhengi
nefna uppbygginguna í Vogabyggð.
Stjórn félagsins tók þessa ákvörðun
og í því samhengi var rýnt í hvaða
þróunareignir eða aðrar eignir
skyldi halda í og hverjar skyldi selja
til að straumlínulaga reksturinn.
Um leið og Kaldalón lagði áherslu
á tekjuberandi eignir í stað fast-
eignaþróunar varð steypustöðin
Steinsteypan ekki hluti af kjarna-
starfsemi.“
Eru aðallega kauptækifæri í fast-
eignum þar sem gefið hefur á bátinn
hjá eigenda fasteignanna?
„Það hafa gefist slík tækifæri en
almennt metum við ekki markaðs-
aðstæður með þeim hætti. Undan-
farin tvö til þrjú ár hefur verið lítið
um viðskipti með atvinnuhúsnæði
og nú eru ýmsir reiðubúnir til að
selja. Í því eru fólgin tækifæri.“
Hvers vegna viljið þið færa ykkur
af First North yfir á Aðallistann?
„Við teljum að Kaldalón verði á
næsta ári komið í þá stærð að það
henti vel á Aðallistann. Gerðar
eru auknar kröfur um gagnsæi, til
dæmis með því að birta uppgjör
fjórum sinnum á ári í stað tvisvar á
ári á eins og á First North. Þá styður
það við hagstæðari fjármögnun. Á
Aðallistanum gefst einnig tækifæri
á meiri viðskiptum með bréf félags-
ins og hluthafahópurinn verður
breiðari.“
Star fsmenn Kaldalóns, sem
metið er á um 8,5 milljarða króna
á markaði, eru einungis tveir.
GAMMA annaðist þar til nýlega
daglegan rekstur fyrirtækisins. „Við
eigum eftir að bæta í hópinn eins og
að ráða bókara á næstunni en við
munum halda teyminu fámennu og
vinna þétt saman. Við munum til
að mynda ekki reka lítið viðhalds-
fyrirtæki til að sinna eignunum
heldur útvista þeirra vinnu,“ segir
Jón Þór og getur þess að samið hafi
verið við Arion banka um að vera
þeim innanhandar við að meta fjár-
festingakosti. n
hordur@frettabladid.is
Íslenska samheitalyfjafyrirtækið
Coripharma, sem hóf sölu á sínu
fyrsta lyfi fyrr í sumar, skoðar nú
alvarlega þann möguleika að efna
til opins hlutafjárútboðs og skrán-
ingar á hlutabréfamarkað á kom-
andi mánuðum ef markaðsaðstæð-
ur reynast hagfelldar. Þar er einkum
horft til First North-markaðarins í
Kauphöllinni hér heima, en einnig
kemur til greina skráning erlendis.
Bjarni Þorvarðarson, stjórnarfor-
maður og einn af stærri hluthöfum
Coripharma, staðfestir þetta í sam-
tali við Markaðinn. Verði það skráð
á markað er áætlað að félagið muni
stefna á að sækja sér um 3 til allt
að 5 milljarða króna í nýtt hlutafé
þannig að viðskipta- og fjárfestinga-
áætlanir Coripharma yrðu þá full-
fjármagnaðar.
Bjarni bendir á þróun síðustu
mánaða hérlendis, þar sem við
höfum meðal annars séð skráningar
fyrirtækja eins og flugfélagsins Play
og tölvuleikjafyrirtækisins Solid
Clouds, sem sýni að fagfjárfestar og
almenningur séu áhugasamir um að
koma að fjárfestingu í fyrirtækjum á
fyrra stigi í vexti þeirra en oft áður.
„Ástæðan fyrir því að skráning er
nú til skoðunar hjá félaginu, ásamt
öðrum kostum eins og hlutafjár-
aukningu í gegnum lokað útboð, er
að við höfum fundið fyrir miklum
áhuga fjárfesta, sem almennt fjár-
festa einungis í skráðum fyrir-
tækjum, á að koma að Coripharma.
Þetta á einkum við núna eftir að
fyrsta lyfið sem Coripharma þró-
aði er komið á markað í Evrópu,“
útskýrir Bjarni.
Síðasta fjármögnun Cori pharma
var í byrjun þessa árs þegar félag-
ið kláraði 2,5 milljarða króna
hlutafjáraukningu sem var leidd
af Iðunni, nýjum framtakssjóði í
rekstri Kviku eignastýringar, en
helstu hluthafar Iðunnar eru flestir
stærstu lífeyrissjóðir landsins. Við
það tilefni sagði Jónína Guðmunds-
dóttir, forstjóri félagsins, að Cori-
pharma myndi verja um 9 milljón-
um evra, jafnvirði um 1,4 milljarða
íslenskra króna á núverandi gengi,
í rannsóknir og þróun á samheita-
lyfjum á þessu ári. Fyrirtækið áætlar
að þróa og markaðssetja 5-6 sam-
heitalyf árlega.
Starfsfólk Coripharma, sem tók
yfir verksmiðju og þróunareiningu
Teva (áður Actavis) fyrir fáeinum
árum, telur um 130 manns. Auk
Iðunnar, sem fer með um 19 pró-
senta eignarhlut, eru stærstu hlut-
hafar félagsins framtakssjóðurinn
TFII, sem er í stýringu Íslenskra
verðbréfa, BKP Invest, sem er í
meirihlutaeigu Bjarna K. Þorvarð-
arsonar stjórnarformanns Cori-
pharma, Vátryggingafélag Íslands,
Snæból og Eignarhaldsfélagið Hof. n
Coripharma skoðar skráningu á markað
hordur@frettabladid.is
Ný útlán bankakerfisins, umfram
upp- og umframgreiðslur, námu 48
milljörðum í júlí. Útlán til heimil-
anna jukust um 34 milljarða en til
atvinnufyrirtækja var aukningin
um 15,6 milljarðar. Er það mesta
útlánaaukning á einum mánuði til
fyrirtækja frá því mars 2020.
Þetta má lesa út úr nýjum hagtöl-
um Seðlabankans um bankakerfið
en hrein ný útlán til atvinnulífsins
nema 55 milljörðum frá áramótum
en til samanburðar voru þau aðeins
8 milljarðar á öllu síðasta ári.
Ný íbúðalán eru í auknum mæli
á föstum vöxtum samhliða vænt-
ingum um að Seðlabankinn muni
hækka vexti á komandi misserum.
Þannig voru 79 prósent nýrra lána
til heimilanna, með veði í fasteign,
á föstum vöxtum í síðasta mánuði. n
Fara í fasta vexti
MARKAÐURINN4 25. ágúst 2021 MIÐVIKUDAGUR