Fréttablaðið - 25.08.2021, Síða 32
Einar Ásgeirsson tekur inn
blöndurnar Kollagen og Liði
frá Protis. Hann er alsæll
með árangurinn og segir
vörurnar gera sér kleift að
stunda hreyfingu án verkja.
Áður en Einar hóf inntöku á Kolla-
geni og Liðum var hann farinn
að finna fyrir verkjum sem voru
farnir að hafa neikvæð áhrif á
getu hans til að hreyfa sig og þar af
leiðandi á lífsgæði hans.
„Ég var með liðverki í öxlum og
hnjám, svona eins og gengur og
gerist en svo var ég líka sárþjáður
af vefja- og vöðvaverkjum. Ég var
farinn að ímynda mér að ég væri
kominn með vefjagigt eða eitthvað
í þeim dúr.“
Einar segir kynni sín af vörunum
hafa verið hálfgerða tilviljun.
„Ég var búinn að prófa ýmislegt
og prófaði þetta af rælni. Þetta
reyndist síðan virka svona rosalega
vel. Ég er orðinn mjög góður í dag.“
Áþreifanlegur munur
Einar er búinn að nota vörurnar í
tæp tvö ár og hafa komið upp tíma-
bil þar sem hann hefur ekki tekið
þær inn. „Ég er búinn að prófa að
sleppa þessu og þá fer ekkert á
milli mála hvað þetta virkar vel. Ég
hef svo fundið áþreifanlegan mun
þegar ég byrja aftur.“
Þá hefur hann enn fremur
reynslu af því að taka inn bara aðra
hvora vöruna og þær saman. „Ég
hef líka bara átt Liði eða bara átt
Kollagen en ég finn að þetta virkar
ennþá betur saman. Þetta er frábær
blanda. Ég þarf að taka þetta með
mat til að styðja við upptökuna
þannig að ég tek þetta með sjúss af
ólífuolíu,“ segir Einar og hlær.
Einar hefur einnig prófað aðrar
sambærilegar vörur, bæði erlendar
og innlendar, og segir hann Protis
hafa reynst sér best. „Þetta erlenda
virkaði ekki neitt og þetta innlenda
virkaði ágætlega en var bara alltof
dýrt.“
Eins og þegar maður var yngri
Einar stundar ýmsa hreyfingu sér
til ánægju og segir blöndurnar nú
orðnar ómissandi. „Ef ég ætla að
vera góður, njóta lífsins og geta
hreyft mig þá finnst mér algjört
lykilatriði að taka þetta inn. Þetta
styður alla hreyfingu, hvort sem
það er skokk, hlaup eða ganga á fell
og fjöll.“
Einar segir ávinninginn ekki
síst felast í því hversu jákvæð áhrif
þetta hafi á endurheimt vöðva
þegar búið er að taka á því. „Þetta
verður svolítið eins og þegar maður
var yngri og fékk ekki harðsperrur
eða annað vesen. Líðanin batnar og
þá er auðveldara að virkja sig betur
í hreyfingu. Þannig kemur þetta
allt.“
Einar mælir heilshugar með
vörunum. „Ég hugsaði með mér
hvort maður ætti nokkuð að vera
að tjá sig en síðan er ég alltaf að
lesa um fólk sem þjáist til dæmis
af vefjagigt og ef það getur lagað
það með þessu í staðinn fyrir að
þjást, þá væri algjör synd að koma
því ekki á framfæri. Mér er því ljúft
og skylt að deila þessu með fólki ef
þetta skyldi vera eitthvað sem gæti
hjálpað þeim,“ segir Einar.
„Ég hélt að ég væri kominn með
vefjagigt en það lagaðist eftir að ég
fór að taka þetta inn. Það eru svo
mikil lífsgæði sem fylgja því að vera
í formi.“
Verndar liði, bein og brjósk
Protis Liðir er unnið úr kollagen-
ríkum skrápi sæbjúgna með
viðbættu vatnsrofnu þorskprótíni
fyrir viðhald vöðva og túrmeriki
fyrir bólgueyðandi áhrif. Blandan
inniheldur einnig mangan og nauð-
synleg vítamín fyrir heilbrigð bein,
brjósk og liðvökva.
Fyrir húð, hár og neglur
Kollagen frá Protis er einstök
blanda úr hágæða innihaldsefnum
sem styðja við styrkingu á húð, hári
og nöglum. Kollagenið er framleitt
úr íslensku fiskroði og inniheldur
einstakt innihaldsefni – SeaCol,
sem er blanda af vatnsrofnu kolla-
geni úr íslensku fiskroði og vatns-
rofnu þorskprótíni úr íslenskum
þorski. SeaCol tekur þátt í að
styrkja vefi líkamans og viðhalda
teygjanleika. Einnig er sérvalin
blanda af vítamínum og stein-
efnum sem öll styðja við styrkingu
á húð, hári og nöglum. n
Vörur Protis fást í öllum helstu
matvöruverslunum og apótekum.
Mikil lífsgæði sem fylgja því að vera í formi
Einar Ásgeirs-
son segist mun
fljótari að ná sér
eftir hreyfingu
þegar hann
tekur inn bæði
Kollagen og Liði
frá Protis.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Ef ég ætla að vera
góður, njóta lífsins
og geta hreyft mig þá
finnst mér algjört möst
að taka þetta inn.
Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir,
sælkeri með meiru, hefur
haldið úti miðilnum Döðlur
& smjör í á annað ár. Í júlí
eignaðist hún litla dömu
sem er strax farin að verja
stundum með mömmu
sinni í eldhúsinu og á eflaust
eftir að smitast af ástríðu
móður sinnar eldhúsinu.
sjofn@frettabladid.is
Guðrún hefur gaman að því að
töfra fram sælkerakræsingar sem
tengjast uppskeru sumars og nú
er einmitt tími til að finna litrík
berjalyng full af ferskum og lit-
ríkum berjum.
„Mér finnst alltaf jafn heillandi
að tína ber en þegar ég er mætt í
berjamó og búin að tína dágóða
stund rifjast upp að mér finnst
þetta ekkert ofboðslega skemmti-
legt, ekki til lengdar. Þá er gott að
hafa margar hendur með sér svo
hver og einn þurfi ekki að tína
eins mikið. Það er samt alltaf jafn
unaðslegt að detta inn á gott berja-
land með miklum bláberjum. Svo
eigum við fjölskyldan leynistað
þar sem við týnum hrútaber og
fáum úr þeim fallegu rauða sultu.“
Smíðuðu gróðurkassa í garðinn
Guðrún er aðeins farin að rækta
sjálf og þau hjónin eru að byggja
upp garðinn fyrir frekari ræktun.
„Við keyptum eign í fyrra
og höfum hægt og rólega tekið
garðinn í gegn en hann var áður í
mikilli órækt. Í ár smíðuðum við
tvo gróðurkassa þar sem ég rækta
salat og kryddjurtir og ræktunar-
kassa í tröppugangi þar sem við
ætlum að rækta jarðarber.“
Eldað eftir árstíðum
Guðrún ljóstrar upp uppáhalds
uppskrift sem tengist haustinu.
„Það er tilvalið að nota berja-
uppskeruna og baka bláberja-
galette. Galette er einföld aðferð í
bökubakstri, deigið er einfaldlega
flatt út, fylling sett í miðjuna og
kantarnir brotnir inn yfir fyll-
inguna. Þetta er uppskrift sem ég
tengi sterkt við haustið, nýtínd
ber pöruð saman með dásamlega
stökku bökudeigi og til að kóróna
herlegheitin að bera það fram með
vanilluís.“
Bökudeig
160 g hveiti
25 g sykur
1 tsk. salt
170 g smjör, kalt
50 ml vatn, ískalt
1 egg (til penslunnar)
1-2 msk. sykur (perlusykur)
Hægt er að nota matvinnsluvél
eða gera deigið í höndunum. Setjið
hveiti, sykur og salt á borðið, gott
er að hafa diskamottu undir til
að vernda borðið. Skerið smjör í
bita og blandið saman við hveitið
í þremur skömmtum. Hægt er
að nota hnífa til að saxa smjörið
saman við hveitið eða sköfu, smá
þolinmæðisvinna en svo þess
virði. Mixið saman þar til að
smjörið er orðið mjög smátt. Bætið
þá vatninu saman við, smá í einu,
þar til að deigið er formað, ekki of
þurrt né of blautt. Mótið kúlu og
þrýstið henni aðeins niður, setjið í
plast og inn í ísskáp. Leyfið deiginu
að hvíla í minnst 2 klukkustundir
Hægt er að geyma deigið í ísskáp
eða frysti ef það er gert fyrirfram.
Sé deigið gert í matvinnsluvél
er hveiti, sykur og salt sett saman,
smjör skorið niður og sett saman
við í þremur skömmtum þar til
orðið kornótt, alls ekki alveg sam-
blandað þvi við viljum halda í litlu
smjörblettina í deiginu, það er það
sem gerir deigið stökkt eða „flaky“.
Takið deigið úr matvinnsluvélinni,
setjið á borð, hellið vatninu saman
við og mótið þar til ekki of þurrt né
of blautt. Framhald sjá að ofan.
Fylling
350 g bláber
100 g sykur
40 g hveiti
Börkur af einni sítrónu
1 msk. sítrónusafi
Blandið öllum hráefnum saman og
hrærið létt.
Samsetning
Stillið ofn á 210°C. Takið deigið úr
kæli, setjið dass af hveiti á borðið
og setjið deigið á borðið. Byrjið
að fletja deigið út með kökukefli,
alltaf í áttina frá ykkur og snúið
deiginu um fjórðung jafnt og þétt
svo deigið sé laust frá borðinu
og jafn þykkt á alla kanta. Bætið
hveiti undir ef þarf.
Þegar deigið er útflatt leggið það
yfir kökukeflið og færið á bök-
unarpappír. Penslið deigið með
eggi, dreifið fyllingunni yfir deigið
og skiljið um það bil 3 cm eftir frá
kanti, til að brjóta inn. Penslið
kantana með eggi og sáldrið sykri
yfir. Setjið inn í ofn og stillið á 20
mínútur. Eftir 20 mínútur er hitinn
lækkaður í 175°C og bakað í 20
mínútur í viðbót. Berið fram með
rjóma eða vanilluís.
Hægt er að fylgjast með Guðrún
Ýr á dodlurogsmjor.is og á Insta-
gram @dodlurogsmjor.
Dýrðlegt bláberja-galette til að missa sig yfir
Guðrún Ýr nýtur þess að töfra fram
sælkerakrásir. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Bláberja-galette
er gómsæt baka
sem allir geta
bakað, og hún er
dásamlega góð
borin fram heit
með ísköldum
vanilluís.
4 kynningarblað A L LT 25. ágúst 2021 MIÐVIKUDAGUR