Fréttablaðið - 25.08.2021, Page 33
KKV Investment Manage-
ment tók við rekstri tveggja
veðlánasjóða síðastliðið
sumar sem áttu við vanda að
stríða.
helgivifill@frettabladid.is
Dótturfélag Kviku mun í lok árs
hætta að stýra tveimur breskum
veðlánasjóðum sem glímt hafa við
rekstrarvanda. Sjóðirnir eru í slita-
meðferð. Ákveðið hefur verið að
færa stýringu þeirra til sjóðanna
sjálfra því um er að ræða sjálfstæðar
rekstrareiningar með sjálfstæðar
stjórnir. Þetta segir Gunnar Sigurðs-
son, framkvæmdastjóri Kviku í Bret-
landi, í samtali við Markaðinn.
KKV Investment Management,
sem er sjóðastýringarfélag í meiri-
hlutaeigu Kvika Securities, dóttur-
félags Kviku í Bretlandi, tók við
rekstri sjóðanna í júní 2020 en
þá glímdu þeir við rekstrarvanda
sem hafði leitt til þess að stjórnir
sjóðanna færðu stýringu þeirra til
KKV. „Stuttu áður en KKV tók við
stýringu sjóðanna hafði verðmæti
eigna þeirra verið niðurfært umtals-
vert vegna stöðu ákveðinna eigna.
Fljótlega eftir að við tókum yfir kom
svo í ljós að staða margra eigna var
verri en gert var ráð fyrir og að þörf
væri á frekari niðurfærslum. Okkar
verkefni hefur fyrst og fremst verið
að selja eignir og skila fjármunum
til hluthafa. Það hefur gengið vel og
við höfum skilað yfir 130 milljón-
um punda [tæplega 23 milljörðum
íslenskra króna, innsk. blm.] til hlut-
hafa á árinu 2021. Okkur hefur tekist
vel til að vinna fyrir hluthafa við erf-
iðar aðstæður,“ segir hann.
Gunnar segir að stærri sjóðurinn
hafi verið rúmlega 380 milljónir
punda að stærð, jafnvirði rúmlega
66 milljarða króna, þegar KKV tók
við eignaumsýslunni. Í nóvember
síðastliðnum hafi verið tilkynnt um
umtalsverða virðisrýrnun og sjóður-
inn hafi verið rúmlega 220 milljónir
punda við lok árs. Það sem af er ári
hafi rúmlega 100 milljónum punda
verið skilað til hluthafa. Sjóðurinn
sé því nú um 100 milljónir punda að
verðmæti.
Minni sjóðurinn hafi verið um 45
milljónir punda að stærð en sé nú
um 20 milljónir. „Eignaumsýslan fór
því úr um 420 milljónum [jafnvirði
rúmlega 73 milljarða, innsk. blm.] í
um 120 milljónir punda [jafnvirði
tæplega 21 milljarðs, innsk. blm.] en
þóknanir KKV byggja á stærð sjóð-
anna. Tekjurnar hafa því farið lækk-
andi eftir því sem sjóðirnir minnka.
Tekjur af stýringu standa því ekki
undir kostnaði. Undanfarnar vikur
hafa staðið yfir viðræður á milli
KKV og stjórna sjóðanna um endur-
skoðun á fyrirkomulagi þóknana og
þessar viðræður hafa leitt það af sér
að aðilar eru sammála um að best
sé að afhenda stjórnum sjóðanna
stýringu eignanna við lok árs. Það er
góð niðurstaða en það veldur okkur
vonbrigðum hvernig málin varðandi
þessa sjóði hafa þróast,“ segir hann.
Stofnun KKV og yfirtaka sjóða-
stýringarinnar á veðlánasjóðunum
leiðir til taps fyrir Kviku. Gunnar
segir að tapið sé ekki stórt og að búið
sé að taka tillit til þess að fullu í upp-
gjöri bankans. „Þetta var í upphafi
tiltölulega lítil fjárfesting því við
tókum við tekjuberandi sjóðum,“
segir Gunnar.
Hann segir að upphaf lega hafi
staðið til að KKV myndi stofna
fleiri lánasjóði. Það hafi ekki gengið
eftir sem megi að stóru leyti rekja
til erfiðra markaðsaðstæðna vegna
Covid-19. Almennt sé erfitt fyrir
nýja rekstraraðila að sækja fé til
fjárfesta í nýja sjóði og að það hafi
reynst ómögulegt þegar ekki sé
hægt að hitta þá augliti til auglitis
vegna samkomutakmarkana. Hins
vegar horfi fjárfestar nú einkum til
fjárfestingatækifæra í hlutabréfum
en ekki skuldabréfum þegar vaxta-
stigið sé jafn lágt og raun ber vitni.
Þess vegna verði beðið með framrás
KKV um sinn. n
Kvika hættir brátt stýringu
breskra veðlánasjóða
Gunnar
Sigurðsson,
framkvæmda-
stjóri Kvika UK.
helgivifill@frettabladid.is
Tekjur Höldurs, stærstu bílaleigu
landsins, drógust saman um 25 pró-
sent á milli ára og námu 5,3 millj-
örðum króna árið 2020. Bílaleigan,
sem starfar undir merkjum Bíla-
leigu Akureyrar og Europcar, tapaði
300 milljónum í fyrra samanborið
við 238 milljón króna hagnað árið
2019. Eigið fé fyrirtækisins lækkaði í
rúman einn milljarð króna en eigin-
fjárhlutfallið var sex prósent við
árslok.
Fjöldi ferðmanna til landsins dróst
verulega saman vegna Covid-19
heimsfaraldursins. Þekkt er að Bíla-
leiga Akureyrar er með sterka stöðu á
innanlandsmarkaði og því var tekju-
samdráttur bílaleigunnar minni en
ætla mætti af markaðsaðstæðum.
Höldur rekur einnig bílasölu, bíla-
verkstæði, dekkjaverkstæði og er í
fasteignarekstri. Mestu umsvifin
eru hjá bílaleigunni. Fram kemur
í skýrslu stjórnar fyrir rekstrar-
árið að Höldur hafi orðið að fækka
starfsfólki, dregið úr starfshlutfalli
annarra starfsmanna, nýtt úrræði
stjórnvalda vegna heimsfarald-
ursins eins og hlutabótaleiðina og
frestað skattgreiðslum.
Auk þess hafi verið dregið úr
kostnaði með öðrum hætti. Jafn-
framt var samið við lánveitendur
um að fresta af borgun lána fyrir
2,8 milljarða króna. Þrátt fyrir það
greiddi félagið upp öll lán vegna
seldra bifreiða á árinu 2020.
Á árinu 2020 fjölgaði bifreiðum
sem knúnar eru áfram af endur-
nýjanlegum orkugjöfum úr 263 í
rúmlega 500 í bílaf lota Bílaleigu
Akureyrar.
Steingrímur Birgisson, forstjóri
Höldurs, á 40 prósenta hlut í fyrir-
tækinu og Bergþór Karlsson fram-
kvæmdastjóri á 24 prósenta hlut. n
Tekjur Bílaleigu Akureyrar drógust
saman um fjórðung á milli ára
Höldur er með sterka stöðu á innanlandsmarkaði. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
idex.is - sími 412 1700
framl.- sölu- og þjónustuaðili
Schüco á Íslandi
- merkt framleiðsla
www.schueco.is
Schüco álgluggar og álhurðir
- fyrir þig og umhverfið
- þegar gæðin skipta máli
• Íslensk framleiðsla, framleitt af Idex álgluggum ehf.
• Schüco er einn stærsti framleiðandi prófíla fyrir
álglugga og álhurðir á heimsvísu og er jafnframt
leiðandi merki á þessum markaði.
• Byggðu til framtíðar með Schüco álgluggum frá Idex.
5MIÐVIKUDAGUR 25. ágúst 2021 MARKAÐURINN