Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.08.2021, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 25.08.2021, Qupperneq 38
Enginn kaupir sér lottó- miða, vapevökva eða skart í Hamraborg þessa dagana án þess að rekast á list. Ragnheiður. Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Kristmundar Elí Jónssonar Dætur hins látna og fjölskyldur þeirra. Elskulegur bróðir okkar og mágur, Ásmundur Jakobsson Barmahlíð 22, sem lést 17. ágúst, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju föstudaginn 27. ágúst kl. 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktarfélög. Athöfninni verður streymt á: https://youtu.be/fY_s4VcmMcM Jakob Jakobsson Moira Jakobsson Aðalbjörg Jakobsdóttir Hallgrímur B. Geirsson Steinunn S. Jakobsdóttir Sverrir Hilmarsson Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Guðmundur Þorsteinn Bjarnason húsa- og skipasmiður, áður til heimilis að Stafholti 5, Akureyri, lést í faðmi fjölskyldunnar, miðvikudaginn 11. ágúst, á dvalarheimilinu Lögmannshlíð, Akureyri. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 30. ágúst klukkan 13.00. Innilegar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Lögmannshlíðar, Árgerði, fyrir einstaka umönnun og hlýtt viðmót. Bjarney Guðmundsdóttir Óli Reynir Ingimarsson Kjartan G. Guðmundsson Guðfinna Ásgrímsdóttir Gunnar H. Guðmundsson Kristbjörg Gunnarsdóttir Haukur Guðmundsson afa- og langafabörn. Okkar ástkæra frænka, Sólveig Guðmundsdóttir frá Grýtu, lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hlíð Akureyri þann 19. ágúst. Útför hennar fer fram frá Munkaþverárkirkju föstudaginn 27. ágúst kl. 13.00. Sérstakar þakkir fær starfsfólkið á Einihlíð fyrir hlýja og góða umönnun. Fyrir hönd aðstandenda, Sólveig Jóna Geirsdóttir Okkar ástkæra Erla Björk Daníelsdóttir Borgarnesi, lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Brákarhlíð föstudaginn 20. ágúst. Útförin fer fram föstudaginn 27. ágúst kl. 14.00 í Borgarneskirkju. Fjölskyldan færir öllu starfsfólki Brákarhlíðar þakkir fyrir einstaka umönnun og velvild þau ár sem Erla dvaldi í Brákarhlíð. Streymt verður frá athöfninni. Virkan hlekk má nálgast á https://www.mbl.is/andlat Íris Inga Grönfeldt Gunnar Þór Þorsteinsson Svafa Grönfeldt Matthías Friðriksson Þóra Guðrún Grönfeldt Gylfi Konráðsson og fjölskyldur. Ástkær lífsförunautur minn, móðir mín, tengdamóðir og amma, Anna Lilja Pálsdóttir Heiðmörk 21, Hveragerði, lést 20. ágúst á líknardeildinni í Kópavogi. Útförin fer fram frá Hveragerðis- kirkju föstudaginn 27. ágúst kl. 15. Arnþór Ævarsson Þorgerður Ösp Arnþórsdóttir Grettir Ólafsson Óríon Reginn Grettisson Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ingibjörg Erlingsdóttir (Imba) Pósthússtræti 3, Reykjanesbæ, lést sunnudaginn 1. ágúst eftir stutt veikindi á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í faðmi fjölskyldunnar. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, fimmtudaginn 26. ágúst kl. 13. Innilegar þakkir til starfsfólks D-deildar Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja fyrir einstaka umönnun og hlýtt viðmót. Bjarni Þór Einarsson Mekkín Bjarnadóttir Magnús B. Matthíasson Einar Bjarnason Linda Sveinbjörnsdóttir Erlingur Bjarnason Ásta Ben Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir mín, amma okkar og langamma, Vigdís Sigurðardóttir Dunhaga 13, lést á Droplaugarstöðum 25. júlí síðastliðinn. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 26. ágúst kl. 13. Aðstandendur vilja senda starfsfólki Droplaugarstaða, dvalarheimilisins Höfða og heimahjúkrunar Reykjavíkurborgar sérstakar þakkir fyrir góða umönnun. Ágúst Gunnar Gylfason Elínborg Ágústsdóttir Unnsteinn Barkarson Höskuldur Ágústsson Halldóra Elínborg Björgúlfsdóttir Sigurður Unnsteinsson Ástkær móðursystir okkar og frænka, María Guðrún Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur, Hörðalandi 24, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Eir þann 13. ágúst síðastliðinn. Útför hennar fer fram frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 26. ágúst kl. 15. Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir athöfnina og verður því boðið til athafnar. Útförinni verður streymt á vefsíðunni mbl.is/andlat. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á að styrkja Barnaspítalasjóð Hringsins. Sigurður Rúnar Ívarsson Þóra Eyjólfsdóttir Bjarnheiður Jóna Ívarsdóttir Guðjón Guðmundsson María Björk Ívarsdóttir Hákon Hákonarson Svandís Guðrún Ívarsdóttir Jakob Þórarinsson Bjarni Hrafn Ívarsson Elsa Björk Knútsdóttir og fjölskyldur. Fyrsta hátíð sem haldin er Hamraborginni í Kópavogi til heiðurs hefst á morgun og stendur fram á sunnudag. Hún snýst um myndlist, tónleika, leik- lestur, bíó og dans svo eitthvað sé nefnt. gun@frettabladid.is „Við ákváðum að kalla hátíðina Hamra- borg – festival. Hún teygir sig um götuna, búðirnar, galleríin, garða og bílaplön og líka menningarhúsin hinum megin Hafnarfjarðarvegar,“ segir listakonan Ragnheiður Bjarnarson. Hún er einn listrænna stjórnenda hátíðarinnar og stofnenda Midpunkts, listrýmis innar- lega í Hamraborg þar sem umrædd hátíð verður sett klukkan 16 á morgun og sýningin Óskilamunir opnuð. „Svo er líka sýning í Y, gömlu bensínstöðinni, og enginn kaupir sér lottómiða, vapevökva eða skart í Hamraborg þessa dagana án þess að rekast á list,“ lýsir hún. Ragn- heiður er á heimavelli, sérmenntuð í list í almenningsrými. „Enda hafa margir auga fyrir list þó þeir gefi sér ekki tíma til að heimsækja menningarstofnanir og söfn, eins og það er þó æðislegt,“ segir hún. Við sitjum yfir góðu kaffi á neðri hæð Gerðarsafns með Þorgerði Þór- hallsdóttur, verkefnastjóra þar – sem grípur þráðinn. „Einn liður í hátíðinni er sýning á vídeóverki eftir ungmennaráð Gerðarsafns sem kallar sig Grakkana. Þeir krakkar voru hér í listabúðum í allt sumar, pældu mikið í sýningunni Hlut- bundin þrá og bjuggu meðal annars til lygaleiðsögn um hana!“ Þorgerður bendir á að dagskráin á morgun sé þétt. „Hálftíma eftir opnun, eða 16.30, verður afhjúpað listaverk í formi gjörnings á Hálsatorgi sem hét áður Gjáin og klukkan 17 byrja djass- tónleikar í Salnum með Önnu Grétu, Sigga Flosa og Johan Tengholm. Klukkan 18 verður svo Styrmir Örn Guðmunds- son, gjörninga- og sögumaður, dansari, söngvari og myndskreytir, með leiðsögn um verk sín á samsýningunni Hlut- bundin þrá hér í Gerðarsafni. Sýning- unni lýkur um helgina en klukkan 17 á föstudag er boðið þar upp á teiknismiðju fyrir fullorðna. Listakonan Guðlaug Mía Eyþórsdóttir sýnir eigið verk og fær fólk til að uppgötva ný sjónarhorn og setja þau á blað. Þar skapast örugglega góð „eftir vinnu-stemning“! Öldurhúsið Catalina hýsir upplestur úr verkum Tyrfings Tyrfingssonar leik- skálds á föstudagskvöld og tónleika á laugardagskvöld, auk lokahófs og gleði, að sögn Ragnheiðar. „Þar ætlum við að dansa smá og jafnvel færa okkur út á götu!“ „En fyrir tónleikana ætlar Kamilla Einarsdóttir rithöfundur í göngutúr frá bókasafninu,“ minnir Þorgerður á, „og sýna okkur alla litlu staðina sem hún dýrkar í Hamraborginni – hún vonar að það verði ekki sól!“ „Það eru merkilega margir tilbúnir að skapa óð til götu sem alltaf er í súld,“ segir Ragnheiður. „Já, til að glæða listalífið!“ bendir Þorgerður á. Listalífið glætt í Hamraborginni Þorgerður og Ragnheiður í Hamraborginni sem verður vettvangur hátíðar í vikulokin. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 25. ágúst 2021 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.