Fréttablaðið - 25.08.2021, Síða 41
Alma er ein fimm
mynda sem tilnefndar
eru til Kvikmyndaverð-
launa Norðurlanda-
ráðs 2021.
Ólafur Kjartan Sigurðarson
er að stimpla sig rækilega inn
sem söngvari á hinni árlegu
Wagnerhátíð Bayreuther
Festspiele í Þýskalandi. Þetta
sumarið í hlutverki Biterolfs í
óperunni Tannhäuser.
gun@frettabladid.is
Ólafur Kjartan býr í skógarkofa utan
við borgina Bayreuth í Þýskalandi,
ásamt konu sinni. Í byrjun heyrist
ómur af rödd hans í símanum – en
hringir til baka. „Ég er í hálfgerðri
eyðimörk þegar kemur að netsam-
bandi en veit um nokkra punkta og
er kominn í einn,“ segir hann glað-
lega.
Hin velþekkta Wagnerhátíð í Bay-
reuth hefur verið söngvettvangur
Ólafs Kjartans síðustu vikur þar fer
hann með hlutverk Biterolfs í Tann-
häuser. „Við sem erum á sviðinu
mættum hér 1. júní. – Ég er líka við
æfingar á nýrri uppfærslu á Nif l-
ungahringnum, var til dæmis að æfa
Ragnarök í morgun fyrir Hringinn
næsta sumar sem ég mun líka syngja
2023, ef allt fer samkvæmt áætlun.
Þetta er þriggja mánaða úthald, ég
get pakkað saman og farið heim
síðasta dag ágúst, það sama verður
uppi á teningnum tvö næstu sumur
og kannski lengur – hver veit.“
Allir í prufur daglega
Ólafur Kjartan segir allt takmörk-
unum háð á hátíðinni þetta árið
vegna Covid. „Það er gríðarlegur
fjöldi sem kemur að hátíðinni, tvær
hljómsveitir, tveir kórar og aragrúi
af sólóistum, fyrir utan fólkið sem
sér um uppsetningu, tækni- og
fræðslumál. Allir þurfa að fara í
prufur daglega. Áhorfendafjöldinn
er skorinn niður um rúmlega helm-
ing, miðað við fullt hús, nú mega
vera 900 gestir á hverri sýningu, allir
með grímur, bólusetningarvottorð
og ný test. Við þátttakendur erum
þakklátir fyrir þessa fyrirhöfn því
við fáum að hafa vinnu.“
Vel ættaður stjórnandi
Bayreuth-hátíðin er ein af elstu
óperuhátíðum heims. Hún hefur
verið við lýði í vel á annað hundrað
ár og er eingöngu tileinkuð óperum
Richards Wagner, enda reisti hann
sjálfur óperuhúsið utan um sín
verkefni, að sögn Ólafs Kjartans.
„Þetta er gríðarlega fallegt hús og
það er einstakt hvernig Wagner lét
hanna það til að stýra hljómburð-
inum. Núna er því stjórnað af Kath-
arinu Wagner, afkomanda hans, og
Franz Liszt. Þegar maður vinnur
með henni skreppur tónlistarsagan
saman, manni finnst allt hafa gerst
í gær!“
Miklir biðlistar eru jafnan eftir
miðum á hátíðina, sumir bíða í
mörg ár, að sögn Ólafs Kjartans.
„Hingað kemur fólk úr öllum
hornum heims, bæði hlustendur og
f lytjendur. Þetta er stórt í sniðum
og mikið apparat sem er magnað
að taka þátt í. Margir leigja út húsin
sín hér yfir sumarið, því fjölskyldur
reyna að gera úr þessu sumarfrí í
leiðinni. Við hjónin leigðum skógar-
kofa og höfum það fínt!“
Svolítið flökkulíf
Kona Ólafs Kjartans er Sigurbjörg
Bragadóttir, sjálfstætt starfandi
kjólaklæðskeri. Þau eiga heimili í
Berlín en bjuggu lengi í Saarbrücken
í Þýskalandi, þar sem Ólafur Kjartan
var fastráðinn í mörg ár. „Fjölskyld-
an tíndist til mín þangað í bútum.
Tvö eldri börnin og öll barna-
börnin eru komin til Reykjavíkur
aftur en yngri dóttirin er hjá okkur
í Berlín. Þetta hefur verið svolítið
f lökkulíf, það tilheyrir þessu fagi.
Það er annað hvort fastráðning eða
lausamennska, eða „frílans“ sem er
fína orðið yfir atvinnuleysi. Núna
gengur vel og ég hef svo sem haft
nóg að gera en var lengi að koma
mér upp í þann flokk sem ég stefndi
að, sem er sá sem ég starfa í í dag.
Þegar óperubransinn lifnar aftur er
útlitið bjart hjá mér. Ég mun syngja
hlutverkið Wotan (Óðin) í Valkyrju
eftir Wagner á Listahátíð í Hörpu í
febrúar 2022, það er verkefnið sem
ég hlakka hvað mest til á komandi
starfsári,“ segir söngvarinn.
Miðakaup krefjast fyrirhyggju
Að sjálfsögðu fóru nokkrir Íslend-
ingar á hátíðina í ár að fylgjast
með okkar manni. „Það var mjög
ánægjulegt að á minni frumsýningu
var Selma Guðmundsdóttir, for-
maður Wagnerfélagsins, mætt og
Gunnar Snorri Gunnarsson sendi-
herra og svo slangur af minni fjöl-
skyldu,“ segir stórsöngvarinn. „Ég er
líka búinn að hlera að það ætli ein-
hver hópur að mæta á frumsýningu
Hringsins næsta sumar. Slíkt þarf
að skipuleggja með árs fyrirvara
en í Wagnerfélaginu er þekking og
reynsla og þangað ætti fólk að snúa
sér til að fá ráðleggingar, ef áhugi er
á miðum.“ ■
Ólafur Kjartan túlkar
Wagner næstu tvö sumur
Ólafur Kjartan
við Bayreuther
Festspielhaus,
óperuhúsið sem
Wagner lét reisa
sjálfur utan um
sín verkefni.
MYND/
JORGE RODRÍGUEZ-
NORTON
Fjölskyldan á frumsýngu: Sigurður Rúnar Jónsson, Ásgerður Ólafsdóttir,
Sigurbjörg Bragadóttir og Brynja Ólafsdóttir. MYND/ISOLDE STEIN-LEIBOLD
Ég hef svo sem haft nóg
að gera en var lengi að
koma mér upp í þann
flokk sem ég stefndi
að.
gun@frettabladid.is
Tónleikaröðin Á ljúfum nótum
rennur af stað eftir hlé, á morgun,
fimmtudaginn 26. ágúst. Þeir verða
í Fríkirkjunni við Tjörnina.
Efnisskráin samanstendur af
hressum og skemmtilegum gítar-
verkum sem Óskar Magnússon gít-
arleikari og flytjandi á tónleikunum
hefur haldið mikið upp á í gegnum
árin. Verkin eru frá Suður-Ameríku
og Frakklandi.
Tónleikarnir hefjast klukkan
12 og taka um hálfa klukku-
stund. Athugið að ekki er tekið við
greiðslukortum við innganginn. ■
Klassískur gítarleikur
Óskar Magnússon ætlar að spila
uppáhalds lög sín. MYND/AÐSEND
gun@frettabladid.is
Kvikmyndin Alma eftir Kristínu
Jóhannesdóttur er ein fimm mynda
sem tilnefndar eru til Kvikmynda-
verðlauna Norðurlandaráðs 2021.
Guðrún Edda Þórhannesdóttir,
Friðrik Þór Friðriksson, Egil Øde-
gård eru framleiðendur hennar.
Verðlaunin verða veitt í 18. skipti
við hátíðlega athöfn 2. nóvember. ■
Myndin Alma tilnefnd
Kristín Jóhannesdóttir er höfundur handrits Ölmu og leikstjóri.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
SKRÁÐU ÞIG Á
PÓSTLISTANN
Fáðu blað dagsins
sent rafrænt
MIÐVIKUDAGUR 25. ágúst 2021 Menning 17FRÉTTABLAÐIÐ