Fréttablaðið - 25.08.2021, Page 48
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Verslaðu á 66north.is
Fylgdu okkur á Instagram @66north
Beðið eftir vetri
SKANNAÐU KÓÐANN
OG SKOÐAÐU
ÓTAL FRÁBÆR
TILBOÐ ÚR
BÆKLINGNUM
OKKAR!
Ingunnar Láru
Kristjánsdóttur
n Bakþankar
Ég er á fullu við að ná fram minni
bestu Farrah Fawcett-greiðslu með
hárblásaranum þegar reykskynjar-
inn fer í gang. Til allrar lukku
er hárið ekki að brenna heldur
stendur reykur upp úr espresso-
könnunni sem ég gleymdi á elda-
vélinni. Engar áhyggjur, þetta er
ekki svo slæmt. Kaffið smá brennt
og lítið mál að þrífa kaffisletturnar
á hellunni. Ég trúi ekki að ég hafi
bara gleymt kaffikönnunni á heitri
hellunni. Það er greinilega eitt-
hvert stress í mér.
Fæ mér fyrsta kaffisopann með
hálfa Fawcett-greiðslu, opna far-
tölvuna og stimpla sjálkrafa inn:
ugla.hi.is inn í vafrann þrátt fyrir
að hafa tekið á móti prófskírteini
mínu úr fimm ára meistaranám-
inu í júní síðastliðnum. Ég er ekki
skráð í nám, þetta er bara eitthvað
ég geri sjálfkrafa, eitthvað sem
ég er vön að stimpla inn að loknu
sumri.
Hálfa leiðina niður stigaganginn
fálma ég eftir lyklunum ... sem ég
gleymdi á eldhúsborðinu. Ekkert
mál, ég er nýbúin að láta mömmu
fá varalykil.
Ég er greinilega eitthvað úr takti
í dag. Kannski er gosmóðan og
gráa veðrið á höfuðborgarsvæðinu
að rugla eitthvað í mér, einhvers
konar snemmbúið skammdegis-
stress ofan á farsóttarþreytuna
gömlu góðu. Ég reyndi alveg að
njóta sumarsins en þessi fjórða
bylgja er algjör orkusuga. Og ég er
sko barnlaus og við góða heilsu. Ég
hef bara haft það gott miðað við
marga.
Þessar endalausu sveiflur í lífinu
hafa óneitanlega áhrif á skapið.
Við opnum og lokum og slökum og
herðum en svo er engin almenni-
leg losun. Svona kaþarsis eins og
eftir geggjaða leikhússýningu.
Andvarpið. Guð, hvað það er langt
síðan ég andvarpaði almennilega
og losaði um þessa eilífðarspennu.
Hér er enginn lokapunktur. Ég
bara kvíði fyrir haustinu, það er
allt og sumt. n
Snemmbúið
skammdegisstress