Fréttablaðið - 24.07.2021, Qupperneq 4
Stjórnvöld ætlast til
þess að við vinnum
hratt og vel á einum
sólarhring og þau ættu
að geta gert það sama.
Arnar Þór Gíslason.
BJÓÐUM UPP Á 37” - 40” BREYTINGAPAKKA
BREYTINGAVERKSTÆÐI ÍSBAND,
SMIÐSHÖFÐA 5, SÉRHÆFIR SIG Í
BREYTINGUM Á RAM PALLBIFREIÐUM.
ÍSBAND UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI
RAM 3500
BÍLL Á MYND RAM 3500 LARAMIE SPORT MEGACAB MEÐ 35” BREYTINGU
VERÐ FRÁ 7.421.210 KR. ÁN VSK.
9.202.300 KR. M/VSK.
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18
kristinnpall@frettabladid.is
COVID-19 „Þetta er mjög slæmt,
maður vonaðist til þess að þeir
myndu halda opnunartímunum og
krefjast þess að fólk væri sitjandi við
borðið á þeim stað sem opnunar-
tími hefur leyfi fyrir. Þetta hentar
veitingastöðum vel en kemur hrika-
lega niður á börum og skemmtistöð-
um þar sem háannatíminn er eftir
klukkan ellefu. Vonandi temur fólk
sér að koma fyrr inn á bari aftur,“
segir Arnar Þór Gíslason, einn af
eigendum fyrirtækisins Þingvangs
sem rekur fimm knæpur í miðbæ
Reykjavíkur, aðspurður út í nýju
reglurnar sem taka gildi á miðnætti.
„Þetta er mikið áfall fyrir rekstur-
inn. Við erum búin að ráða marga
inn á stuttum tíma en nú fáum við
sólarhring frá stjórnvöldum til að
skella í lás. Ég vonast bara til þess að
stjórnvöld verði jafn lengi að undir-
búa styrkúthlutanir en ekki hálft ár.
Stjórnvöld ætlast til að við vinnum
hratt og vel á einum sólarhring og
þau ættu að geta gert það sama,“
segir Arnar.
„Ég á von á því að menn geri allt
í sínu valdi til að halda sér á f loti á
meðan á þessu stendur enda reynsl-
unni ríkari. Um leið ættu stjórnvöld
að geta kallað fólk úr sumarfríi til
að sinna styrkúthlutun til fyrir-
tækja sem er verið að loka. Það eru
margir búnir að panta birgðir fram
í tímann og staðan er ekki öfunds-
verð víðs vegar þar sem áttu að vera
útihátíðir. Um leið vonast maður til
þess að þau verði jafn fljót að aflétta
takmörkunum ef þetta gengur vel á
þessum þremur vikum.“ n
Hrikaleg staða
fyrir bareigendur
Það hefur verið nóg að gera í miðbæ
Reykjavíkur undanfarnar vikur.
kristinnpall@frettabladid.is
COVID-19 „Þessar nýju reglur eru
verri en maður vonaðist eftir en um
leið betri en maður óttaðist. Við
höfum núna meiri tíma til endur-
skipulagningar en í fyrra þegar það
komu hertar samkomutakmarkan-
ir á föstudeginum fyrir verslunar-
mannahelgina. Við getum fyrir
vikið sagt að við munum halda
Hinsegin daga en við þurfum að
aðlaga hátíðina þessum nýju tak-
mörkunum,“ segir Ásgeir Helgi
Magnússon, formaður stjórnar
Hinsegin daga, aðspurður hvaða
áhrif nýjustu aðgerðir stjórnvalda
hafi á hátíðina sem er á dagskrá í
næsta mánuði.
„Við lærðum helling af síðasta ári
og í vetur, meðal annars að það er
ýmislegt hægt að gera þrátt fyrir
samkomutakmarkanir. Það er hægt
að hólfaskipta leikhúsum í menn-
ingarviðburðum og halda fræðslu-
fundi á streymi. Fyrir vikið munum
við reyna að halda eins glæsilega
hátíð og hægt er innan þess ramma
sem okkur er úthlutað með þessum
nýju reglum.“
Með tvö hundruð manna sam-
komutakmörkunum er ljóst að
ekki verður hægt að halda gleði-
gönguna, hápunkt Hinsegin dag-
anna, með sama hætti og tíðkaðist
fyrir heimsfaraldurinn.
„Við könnumst alveg við þessa
sviðsmynd sem sett var upp af
stjórnvöldum en það sem mun særa
mest er að gleðigangan fái ekki
að fara niður götur miðbæjarins.
Við munum leita leiða til að hún
geti farið farið fram með öðrum
hætti, meðal annars með notkun
streymis útsendingar.“ n
Aðlaga Hinsegin daga nýjum takmörkunum
Ekkert verður af því að Gleðigangan
fari niður Laugaveginn þetta árið.
Ferðamálaráðherra segir ríkis-
stjórnina verða að gefa þjóð-
inni skýr svör um framtíðina.
Nýboðaðar aðgerðir séu
tímabundnar en stefnumót-
unarvinna um framtíðina sé
hafin. Hún segir ríkisstjórnina
enn standa saman í þessu.
adalheidur@frettabladid.is
COVID-19 Farin er af stað vinna
innan ríkisstjórnarinnar um stefnu
og framtíðarsýn um viðbrögð við
faraldrinum. „Það er umræðan
núna, hvað það þýðir fyrir þjóð-
félag að vera með níutíu prósenta
bólusetningarhlutfall hjá sextán
ára og eldri og hvernig við ætlum
í alvöru að lifa með Covid í náinni
framtíð og mögulega um alla fram-
tíð,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð
Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og
nýsköpunarráðherra.
Ríkisstjórnin kynnti í gær hertar
aðgerðir innanlands sem taka gildi
á miðnætti. Þær fela í sér að að
hámarki 200 mega koma saman, auk
þess sem veitingahúsum verður gert
að loka klukkan 24. Þá verða fjölda-
takmarkanir í sund og líkamsrækt.
„Það er mat sóttvarnayfirvalda
að tempra þurfi smitin til að kaupa
okkur tíma til að sjá hvort þessir
smituðu einstaklingar verði veikir
eða ekki,“ segir hún. Sóttvarnayfir-
völd hafi lagt þessar aðgerðir til í tvær
til þrjár vikur til að fá skýrari mynd af
bæði hvort og hve margir verði veikir.
„Sóttvarnalæknir telur óvissu um það
kalla á þessar aðgerðir. Við þurfum
svo að vera með mjög skýr svör að
þessum tíma loknum,“ segir Þórdís.
„Við erum í rauninni að gefa okkur
þennan tíma, í raun bara þessar tvær
til þrjár vikur, til að vinna þessa
vinnu og hún er farin af stað.“
Hún játar að það hafi vissulega
verið áætlun stjórnvalda að aflétta
takmörkunum þegar markmiðum
um bólusetningar yrði náð. „Vissu-
lega er þetta bakslag í því, en það
er tímabundið og það eru skýrar
línur um hvernig þessum tíma verði
varið,“ segir Þórdís. „Svo stendur
upp á okkur að svara því hvernig við
ætlum að hafa hlutina til framtíðar.“
Þórdís segir að ef áfram þurfi að
fara fram og til baka í og úr aðgerð-
um, verði það vonandi meira í formi
tilmæla. „Það eru margar ógnir við
það að vera á lífi og það vita allir út
á hvað þetta gengur og það vita allir
hvað virkar. Ég er þeirrar skoðunar
að það eigi líka að setja ábyrgðina í
hendur hvers og eins.“
Aðspurð telur hún að nýboðaðar
aðgerðir ættu ekki að vera mikið
högg fyrir ferðaþjónustuna en nefnir
þó að auðvitað geti margt haft áhrif á
væntingar, bókanir og ferðahegðun.
„Auðvitað hafa allar aðgerðir áhrif
en ég myndi ekki telja að þetta væri
högg,“ segir Þórdís og bendir á að
enn séu söfn og veitingastaðir opnir
og takmarkanir hafi oft verið meira
íþyngjandi en nú.
„En ferðaþjónustan núna undan-
farnar vikur hefur farið hraðar og
betur af stað en við þorðum að
vona og ég held að þessar aðgerðir
séu ekki högg þar sérstaklega,
heldur hefur þetta auðvitað áhrif á
okkur í samfélaginu almennt,“ segir
Þórdís.
Aðspurð um samstöðu um aðgerð-
irnar í ríkisstjórninni bendir Þórdís á
lengd fundarins, en hann stóð í rúma
þrjá tíma. „Mér finnst gott að sitja við
borð þar sem fólk getur rætt hluti og
getur verið ósammála, reynt að ná
niðurstöðu og mætist í samtalinu,“
segir hún og nefnir að sú vinna sem
þegar sé farin af stað um framtíðar-
sýnina hafa haft áhrif á að samstaða
náðist eftir langan fund. „Það er
enginn að halda því fram að við
séum ekki ólíkt fólk sem hefur ólíkar
skoðanir en við erum áfram saman í
þessu sem ríkisstjórn.“ n
Standi upp á stjórnina að gefa svör
Nokkrir ráðherrar hittust á Reykjavíkurflugvelli í gær og flugu saman austur á ríkisstjórnarfund. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
4 Fréttir 24. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ