Fréttablaðið - 24.07.2021, Blaðsíða 20
Hjónin Ketill Már Björnsson
og Ingibjörg Finnbogadóttir
hlupu framhjá yfirgefnu húsi
í Hnífsdal og heilluðust svo
að þau sátu um fasteignaaug-
lýsingar á svæðinu í eitt ár þar
til húsið loks kom á sölu. Ótal
vinnustundum síðar hafa þau
eignast yndislegt afdrep við
sjóinn.
Tenging okkar við Hnífs-dal er upphaflega engin en við eigum þó bæði ættir að rekja vestur. Systir mín býr ásamt
fjölskyldu í Bolungarvík auk þess
sem mamma mín, afi og amma eru
þaðan og svo er amma konunnar frá
Ísafirði,“ útskýrir Ketill.
Það var svo sumarið 2013 að þau
hjónin tóku þátt í Hlaupahátíð
á Vestfjörðum og gistu í hjólhýsi
á tjaldsvæðinu á Ísafirði í hálfan
mánuð.
„Við hlupum stundum út í Hnífs-
dal þar sem bróðir konunnar á hlut
í húsi og þegar við fórum framhjá
þessu húsi sáum við tækifæri í því.
Við fórum upp að því og kíktum inn
um gluggana. Það leyndi sér ekki að
húsið var handónýtt en við heilluð-
umst af staðsetningunni og útsýn-
inu. Húsið stendur uppi á bakka svo
það er gott útsýni yfir hafið og það
var það sem kveikti í okkur.“
Biðu eftir söluauglýsingu
Eitt skiptið þegar þau hlupu til baka
inn á Ísafjörð ákvað Ketill að koma
við á bæjarskrifstofunni til að spyrj-
ast fyrir um eigendur hússins.
„Þar var mér tjáð að líklega færi
húsið á sölu einhvern tíma á næst-
unni en það mál væri allt í ferli. Við
biðum bara og fylgdumst daglega
með fasteignaauglýsingum og í
september árið eftir, 2014, kom það
á sölu og við vorum búin að gera til-
boð innan klukkustundar sem var
samþykkt strax.“
Húsið varð þeirra fyrir litlar 400
þúsund krónur á þeim tíma en
Fannst þau verða að bjarga húsinu
Hnífsdæl-
ingar kalla húsið
Möggu Hall hús,
húsið var byggt
árið 1910 og svo
byggt við það
árið 1925.
MYNDIR/AÐSENDAR
Eins og sjá má var húsið í bágu standi þegar hjónin tóku við því og þurfti í
raun að endurbyggja það allt. Hjónin báru fjögur tonn af rusli út úr því.
Húsið er 109 fermetrar og kjallari undir því hálfu. Áður fyrr var það tvíbýli.
Það var útsýnið yfir hafið sem heillaði þau hjónin.
Haldið var í gamla gólfefnið þar sem hægt var en restin
klædd með mótatimbri sem kemur virkilega vel út.
Í raun stóð ekkert eftir af húsinu nema grindin sjálf sem
Ketill segist þó hafa þurft að endurnýja að hluta.
Björk
Eiðsdóttir
bjork
@frettabladid.is
20 Helgin 24. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ