Fréttablaðið - 24.07.2021, Blaðsíða 23
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
LAUGARDAGUR 24. júlí 2021
Druslugangan árið 2019 var fjöl-
menn og létu þátttakendur heyra í
sér. MYND/HJÖRDÍS JÓNSDÓTTIR
johannamaria@torg.is
Druslugangan verður haldin í dag í
tíunda sinn en fyrstu stoltu drusl-
urnar gengu hana árið 2011. 2015
var ár samfélagsmiðlabyltinga þar
sem myllumerki við freethenipple
og sexdagsleikann voru í algleym-
ingi. Það var tveimur árum áður en
#meetoo kreisti vel útþandar graft-
arbólur samfélagsins og í ljós kom
kerfisbundin misbeiting valds til
kynferðisofbeldis hjá óhugnanlega
stórum hluta fólks.
Tilgangur Druslugöngunnar er
sá að færa ábyrgð kynferðisglæpa
frá þolendum yfir á gerendur.
Klæðnaður, hegðun eða fas þol-
enda er einfaldlega ekki lengur
afsökun fyrir kynferðisglæpum.
Druslur eru druslum bestar
Það er flestum enn í fersku minni
þegar Diljá Sigurðardóttur var á
dögunum gert að fara upp úr Sky
Lagoon fyrir að neita að hylja brjóst
sín. Kommentakerfin loguðu og
kepptust virkir í athugasemdum
við að drusluskamma Diljá sem
klæddist sams konar baðfatnaði og
kærasti hennar, sem enginn setti út
á. Við erum ekki lengra komin en
þetta, að fólk er enn að býsnast yfir
berum brjóstum kvenna í sundi.
Druslugöngunnar er því greinilega
enn sárlega þörf.
Gangan hefst klukkan 14.00 við
Hallgrímskirkju. Þaðan verður
farið niður Skólavörðustíg og
Bankastræti og svo endar gangan
á Austurvelli þar sem við taka
fundarhöld og tónleikar. Mætum,
göngum, hlustum og færum
skömmina þangað sem hún á
heima! n
Stígum skref
til frelsis
Einstök gönguhátíð í Súðavík
í ótrúlegri náttúrufegurð
Í Súðavík fer fram gönguhátíð um verslunarmannahelgina sem hefst næsta fimmtudags-
kvöld. Þar verður boðið upp á skemmtun fyrir alla fjölskylduna og alls kyns göngur fyrir
lengra og skemmra komna, ásamt ýmsu góðgæti sem er framleitt á staðnum. 2
Það verður gönguhátíð í Súðavík um verslunarmannahelgina. Þar geta bæði vanir göngugarpar og þeir sem fara aldrei í göngu fundið sér göngur við sitt hæfi í
fallegri náttúru. Bragi Þór Thoroddsen, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, segir að hátíðin sé fyrst og fremst fjölskylduskemmtun. MYNDIR/AÐSENDAR
Heilbrigð melting er
grunnur að góðri heilsu
Heilsan er dýrmætust
www.eylif.is
KOMIN
AFTUR!