Fréttablaðið - 24.07.2021, Side 48
Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir,
tengdamóðir, amma og systir,
Svala Íris Svavarsdóttir
Huldugili 6, Akureyri,
lést af slysförum miðvikudaginn 21. júlí.
Jarðarförin fer fram í kyrrþey.
Friðgeir Vilhjálmsson
Kolbrún Halldórsdóttir Svavar Sigurðsson
Eva Rut Friðgeirsdóttir
Sandra Sif Friðgeirsdóttir Sigmar Ari Valdimarsson
barnabörn og systkini.
Okkar ástkæra og elskulega móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Edda Ásta Sigurðardóttir
Strange
lést þann 16. júlí á Landspítalanum
í Fossvogi. Útför hennar fer fram í
Seljakirkju 28. júlí, kl. 13.00.
Sigurður Strange Harpa Kristjánsdóttir
Guðrún Strange Hilmar Snorrason
Hannes Strange Bryndís Björnsdóttir
Grétar Strange Guðbjörg Fanndal Torfadóttir
ömmubörn og langömmubörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Magnús Theodór
Magnússon – Teddi
andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði
20. júlí sl. Útförin verður auglýst síðar.
Ársæll Magnússon
Analisa Montecello
Dóra Magnúsdóttir Guðmundur Jón Guðjónsson
Andri, Atli, Kári, Daði, Lilja,
Lára Guðbjörg, Theodór og Hjalti
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson Jóhanna Eiríksdóttir
síðan 1996
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Sigurður Bjarni Jónsson útfararstjóriMagnús Sævar Magnússon útfararstjóri
Guðmundur Baldvinsson útfararstjóri Jón G. Bjarnason útfararstjóri
Starfi Michaels Nevin sem sendi-
herra Bretlands á Íslandi lýkur
á næstu dögum. Hann á eftir að
sakna eins og annars, þar á meðal
hugarfars þjóðarinnar.
arnartomas@frettabladid.is
„Við héldum að við myndum þekkja
alla eftir hálft ár eða svo,“ segir Michael
Nevin, fráfarandi sendiherra Bretlands
á Íslandi, um komu sína til landsins
fyrir tæplega fimm árum síðan. Áður
en hann kom til Íslands hafði hann
sinnt opinberum störfum fyrir bresku
ríkisstjórnina í borgum víðs vegar um
heiminn – þar á meðal Osaka, New York
og nú síðast í Naíróbí.
„Ég er sjálfur frá Norður-Írlandi svo að
umhverfið kom mér ekki á óvart þótt ég
væri að koma frá Afríku,“ segir Mich ael.
„Við heimsóttum landið 2008 svo að ég
vissi eitt og annað um landið, en það
var einna helst afríski kötturinn okkar
sem vissi ekki hvað í ósköpunum væri í
gangi. Hann flýr ennþá inn í húsið þegar
íslenski vindurinn blæs.“
Eflt samband
Heimsástandið hefur ekki beint verið
stillt á undanförnum árum og mörg af
helstu málunum á könnu Michaels hafa
tengst Covid og Brexit. Hann telur að
útganga Breta úr Evrópusambandinu
hafi eflt samband þeirra við Íslendinga.
„Ef við mælum það út frá samningum
og opinberum fundum þá var aukningin
veruleg eftir Brexit,“ segir hann. „Bret-
land var að skipta um stefnu og við
vildum ef la og endurmóta sambönd
okkar við ýmis lönd. Bretar eiga margt
sameiginlegt með Íslendingum sem eru
ekki heldur hluti af sambandinu.“
Í maí í fyrra gerðu Ísland og Bret-
land með sér samkomulag um samstarf
ríkjanna til næstu 10 ára með það mark-
mið að efla tvíhliða og svæðisbundna
samvinnu, þar sem meðal annars er
lögð áhersla á sjávarútveg, viðskipti og
nýsköpun.
„Grundvöllurinn að þeirri vinnu sem
er fram undan hefur verið lagður og
þar með er mínu verki hér lokið,“ segir
Mich ael sem snýr aftur til London í ágúst
eftir þrettán ára heimshornaflakk. „Ég er
ekki alveg viss um hvað bíður mín þar
en það kemur í ljós á næstu mánuðum.“
Grætur skötuna
„Augljóslega á maður eftir að sakna þess
að geta fengið sér skötu,“ segir Michael
og hlær aðspurður um hvers hann muni
helst sakna frá Íslandi. „En það verður þó
ýmislegt sem ég mun sakna. Það er svo
mikið aðgengi að hlutum sem við tökum
sem gefnum og Ísland er auðvitað eitt
öruggasta land í heiminum.“
Hugarfar Íslendinga má samkvæmt
Michael útskýra með slagorði fatafram-
leiðandans Nike, „Just do it“ eða „Gerðu
það bara“.
„Er veðrið slæmt? Hvaða máli skiptir
það? Gerðu það bara. Viltu reyna fyrir
þér í tónlist? Gerðu það bara!“ segir
hann. „Það er ákveðið andrúmsloft
sem er svo ánægjulegt hérna. Viðbrögð
Íslands við faraldrinum eru líka gott
dæmi um það hvernig samfélög geta
staðið saman og tekist á við vandamál.
Það eru fá lönd sem hafa staðið sig betur
gegn Covid en Ísland.“
Michael og eiginkona hans eru mikið
áhugafólk um náttúru Íslands, en í stað
þess að kynnast henni í gegnum göngu-
ferðir var áhugi þeirra á golfi drifkraftur
til að ferðast um landið. „Eitt af mark-
miðum okkar við komuna til Íslands var
að spila alla átján holu velli landsins. Ég
er ánægður með að geta greint frá því að
það hafðist,“ segir Michael sigri hrós-
andi. „Það er vissulega gaman að segja
við fjölskyldu og samstarfsfólk í öðrum
löndum að maður hafi verið að koma
heim úr golfi stuttu fyrir miðnætti.“ n
Hélt að hann myndi þekkja alla
Michael sleppti því að fara í United-treyjuna fyrir ljósmyndara Fréttablaðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Augljóslega á maður eftir
að sakna þess að geta
fengið sér skötu.
28 Tímamót 24. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐTÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 24. júlí 2021 LAUGARDAGUR