Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.07.2021, Qupperneq 48

Fréttablaðið - 24.07.2021, Qupperneq 48
Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir, tengdamóðir, amma og systir, Svala Íris Svavarsdóttir Huldugili 6, Akureyri, lést af slysförum miðvikudaginn 21. júlí. Jarðarförin fer fram í kyrrþey. Friðgeir Vilhjálmsson Kolbrún Halldórsdóttir Svavar Sigurðsson Eva Rut Friðgeirsdóttir Sandra Sif Friðgeirsdóttir Sigmar Ari Valdimarsson barnabörn og systkini. Okkar ástkæra og elskulega móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Edda Ásta Sigurðardóttir Strange lést þann 16. júlí á Landspítalanum í Fossvogi. Útför hennar fer fram í Seljakirkju 28. júlí, kl. 13.00. Sigurður Strange Harpa Kristjánsdóttir Guðrún Strange Hilmar Snorrason Hannes Strange Bryndís Björnsdóttir Grétar Strange Guðbjörg Fanndal Torfadóttir ömmubörn og langömmubörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, Magnús Theodór Magnússon – Teddi andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði 20. júlí sl. Útförin verður auglýst síðar. Ársæll Magnússon Analisa Montecello Dóra Magnúsdóttir Guðmundur Jón Guðjónsson Andri, Atli, Kári, Daði, Lilja, Lára Guðbjörg, Theodór og Hjalti Auðbrekku 1, Kópavogi Sverrir Einarsson Jóhanna Eiríksdóttir síðan 1996 Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Sigurður Bjarni Jónsson útfararstjóriMagnús Sævar Magnússon útfararstjóri Guðmundur Baldvinsson útfararstjóri Jón G. Bjarnason útfararstjóri Starfi Michaels Nevin sem sendi- herra Bretlands á Íslandi lýkur á næstu dögum. Hann á eftir að sakna eins og annars, þar á meðal hugarfars þjóðarinnar. arnartomas@frettabladid.is „Við héldum að við myndum þekkja alla eftir hálft ár eða svo,“ segir Michael Nevin, fráfarandi sendiherra Bretlands á Íslandi, um komu sína til landsins fyrir tæplega fimm árum síðan. Áður en hann kom til Íslands hafði hann sinnt opinberum störfum fyrir bresku ríkisstjórnina í borgum víðs vegar um heiminn – þar á meðal Osaka, New York og nú síðast í Naíróbí. „Ég er sjálfur frá Norður-Írlandi svo að umhverfið kom mér ekki á óvart þótt ég væri að koma frá Afríku,“ segir Mich ael. „Við heimsóttum landið 2008 svo að ég vissi eitt og annað um landið, en það var einna helst afríski kötturinn okkar sem vissi ekki hvað í ósköpunum væri í gangi. Hann flýr ennþá inn í húsið þegar íslenski vindurinn blæs.“ Eflt samband Heimsástandið hefur ekki beint verið stillt á undanförnum árum og mörg af helstu málunum á könnu Michaels hafa tengst Covid og Brexit. Hann telur að útganga Breta úr Evrópusambandinu hafi eflt samband þeirra við Íslendinga. „Ef við mælum það út frá samningum og opinberum fundum þá var aukningin veruleg eftir Brexit,“ segir hann. „Bret- land var að skipta um stefnu og við vildum ef la og endurmóta sambönd okkar við ýmis lönd. Bretar eiga margt sameiginlegt með Íslendingum sem eru ekki heldur hluti af sambandinu.“ Í maí í fyrra gerðu Ísland og Bret- land með sér samkomulag um samstarf ríkjanna til næstu 10 ára með það mark- mið að efla tvíhliða og svæðisbundna samvinnu, þar sem meðal annars er lögð áhersla á sjávarútveg, viðskipti og nýsköpun. „Grundvöllurinn að þeirri vinnu sem er fram undan hefur verið lagður og þar með er mínu verki hér lokið,“ segir Mich ael sem snýr aftur til London í ágúst eftir þrettán ára heimshornaflakk. „Ég er ekki alveg viss um hvað bíður mín þar en það kemur í ljós á næstu mánuðum.“ Grætur skötuna „Augljóslega á maður eftir að sakna þess að geta fengið sér skötu,“ segir Michael og hlær aðspurður um hvers hann muni helst sakna frá Íslandi. „En það verður þó ýmislegt sem ég mun sakna. Það er svo mikið aðgengi að hlutum sem við tökum sem gefnum og Ísland er auðvitað eitt öruggasta land í heiminum.“ Hugarfar Íslendinga má samkvæmt Michael útskýra með slagorði fatafram- leiðandans Nike, „Just do it“ eða „Gerðu það bara“. „Er veðrið slæmt? Hvaða máli skiptir það? Gerðu það bara. Viltu reyna fyrir þér í tónlist? Gerðu það bara!“ segir hann. „Það er ákveðið andrúmsloft sem er svo ánægjulegt hérna. Viðbrögð Íslands við faraldrinum eru líka gott dæmi um það hvernig samfélög geta staðið saman og tekist á við vandamál. Það eru fá lönd sem hafa staðið sig betur gegn Covid en Ísland.“ Michael og eiginkona hans eru mikið áhugafólk um náttúru Íslands, en í stað þess að kynnast henni í gegnum göngu- ferðir var áhugi þeirra á golfi drifkraftur til að ferðast um landið. „Eitt af mark- miðum okkar við komuna til Íslands var að spila alla átján holu velli landsins. Ég er ánægður með að geta greint frá því að það hafðist,“ segir Michael sigri hrós- andi. „Það er vissulega gaman að segja við fjölskyldu og samstarfsfólk í öðrum löndum að maður hafi verið að koma heim úr golfi stuttu fyrir miðnætti.“ n Hélt að hann myndi þekkja alla Michael sleppti því að fara í United-treyjuna fyrir ljósmyndara Fréttablaðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Augljóslega á maður eftir að sakna þess að geta fengið sér skötu. 28 Tímamót 24. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐTÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 24. júlí 2021 LAUGARDAGUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.