Fréttablaðið - 24.07.2021, Side 54
Hins vegar
ákvað ég
að tala við
starfsmenn
landa-
mæraeftir-
litsins á
Keflavíkur-
flugvelli
sem eru
sérstaklega
þjálfaðir til
að greina
andlit.
Inga Þórey
Jóhannsdóttir.
Efnisgerð augnablik er sam-
sýning fjögurra listamanna í
Nýlistasafninu. Í hópnum eru
Baldur Geir Bragason og Inga
Þórey Jóhannsdóttir.
Baldur gerði verk sitt sérstaklega
fyrir sýninguna. Það heitir Mátun/
Fitting og er búið til úr striga og
herðatrjám. „Þetta eru röndótt
málverk sem mynda vafninga og
standa á herðatrjám og eru f lest
með krók í endann. Herðatrén
eru mismunandi og vegna hæðar-
mismunar skapast ákveðið f lökt í
verkinu.“
Leið að hugmyndum
Spurður af hverju hann hafi valið
að nota herðatré við listsköpun
segir Baldur: „Herðatré er fígúra-
tíft, næstum eins og fugl og eins
herðar og haus. Þetta nýti ég mér
og hef teinrétt málverk sem má
upplifa sem hörkaðal eða allavega
vafninga sem teygja sig upp með
krók í endann. Eitt verkið endar svo
sem trosnaður strigaendi eins og
hann kemur af rúllunni og annar
lokaður með hefti eins og pylsa.
Þetta er öreigalist og má botna á
mismunandi vegu. Þetta minnir á
hóp af fígúrum.“
Krókar eru á sumum vafning-
anna. „Herðatrjákrókar hafa alltaf
minnt mig á spurningarmerki eða
haus sem leitast eftir að hanga ein-
hvers staðar,“ segir Baldur. „Það
eru alls konar pælingar í þessu
verki og kannski má segja að ég sé
þar að sýna ákveðna leið að hug-
myndum.“
Tvenns konar ferli
Verk Ingu Þóreyjar hverfist um
fjögur málverk sem hún vann í lok
síðasta árs. „Þegar ég er að vinna
við myndlist byrja ég daginn á því
að mála málverk á hefðbundinn
hátt. Ég málaði fjögur málverk með
andlit og snertingu í huga og alla
jafna hefðu þau farið í skúffuna og
ekki verið neitt nema upphitun. En
svo ákvað ég að nýta þau og senda í
tvenns konar ferli.
Annars vegar sendi ég fjórum
nánum vinum og ættingjum myndir
af málverkunum og bað þau um að
móta þau í þrívídd. Skúlptúrarnir á
sýningunni eru í rauninni afrakstur
þess,“ segir Inga Þórey.
„Hins vegar ákvað ég að tala við
starfsmenn landamæraeftirlitsins
á Kef lavíkurf lugvelli sem eru sér-
staklega þjálfaðir til að greina and-
lit. Ég endurgerði málverkin á and-
lit þeirra og sendi síðan í gegnum
landamæraeftirlitshlið á f lugvell-
Alls konar pælingar
Baldur Geir Bragason og Inga Þórey Jóhannsdóttir sýna í Nýlistasafninu. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓTTAR
Verk Baldurs er
búið til úr striga
og herðatrjám
og verk Ingu
hverfist um
fjögur málverk.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb
@frettabladid.is
inum. Þessi hlið eru búin myndavél
og sérstöku andlitsgreiningar-for-
riti.
Útkoman er því tvenns konar,
verk í lit og svart-hvítar myndir
af fjórum konum sem starfa við
landamæraeftirlitið. Undir svart-
hvítu myndunum sem tölvan tók
eru stikur með rauðum og grænum
lit. „Ef rauði liturinn er áberandi þá
merkir það að myndin sé ekki lík
fyrirmyndinni. Það er ekki gott að
vita hvað tölvan var að lesa, hvort
hún var að lesa málverkið eða and-
litið,“ segir Inga Þórey.
Konurnar á myndunum eru allar
með höfuðfat. „Það var gert af fagur-
fræðilegum ástæðum. Andstæðurn-
ar urðu svo sterkar þegar háralitur
og húð var sýnileg.“
Konurnar, sem allar eru íslenskar,
verða fyrir vikið næstum því eins og
úr öðrum heimshluta. „Ég hef verið
spurð hvort það sé trúarlegur undir-
tónn í verkinu en svo er ekki,“ segir
Inga Þórey. n
kolbrunb@frettabladid.is
Sunnudaginn 25. júlí klukkan 16.00
mun píanóleikarinn Andrew J. Yang
f lytja verk eftir Johannes Brahms
og Frans Liszt í Hallgrímskirkju í
Saurbæ, Hvalfirði.
Andrew J. Yang hefur leikið bæði
á einleikstónleikum og með hljóm-
sveitum víða í Evrópu, Asíu og
Ameríku og hlotið einróma lof.
Yang kennir á píanó og fiðlu við
Tónlistarskóla Vesturbyggðar á Pat-
reksfirði en samhliða því er hann á
fullum skólastyrk að klára doktors-
gráðu í píanóleik við USC Thornton
School of Music í Los Angeles. Hann
tekur þátt í Brahms-keppni í Þýska-
landi í haust. n
Andrew J. Yang
spilar í Saurbæ
Píanóleikarinn Andrew J. Yang.
kolbrunb@frettabladid.is
Guðlaugur Bjarnason sýnir verk á
sýningunni Bleikur Keilir í Gall-
eríi Göngum við Háteigskirkju.
Guðlaugur sýnir málverk sem eru
unnin að mestu frá sumrinu 2020
fram á daginn í dag. Rétt fyrir páska
2020 fékk Guðlaugur heilablóðfall,
lamaðist á vinstri hlið og við það
skertist sjónsvið hans töluvert.
Myndirnar sem hann sýnir eru allar
unnar í bataferli Guðlaugs. n
Bleikur Keilir í
Háteigskirkju
Eitt af verkum Guðlaugs á sýning-
unni. MYND/AÐSEND
stod2.is
34 Menning 24. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 24. júlí 2021 LAUGARDAGUR