Fréttablaðið - 24.07.2021, Qupperneq 58
Þú getur bókstaflega
gengið í gegnum einar
dyr og þá bara ertu allt
í einu komin einhver
80-90 ár aftur í tímann.
Í LOFTINU
Sækja frá
SÆKTU NÝJA APPIÐ!
LAUGARDAGA 16:00-18:30
VEISTU HVER ÉG VAR?
Íslenska leikkonan og sagn-
fræðingurinn Siddý Holloway
leiðir breska sjónvarpsáhorf-
endur um huliðsheima og
gleymd skúmaskot elsta
neðan jarðarlestarkerfis
heims í heimildarþátt-
unum Secrets of the London
Underground sem brunuðu af
stað í byrjun vikunnar.
toti@frettabladid.is
Sjónvarpsstöðin Yesterday, sem er
hluti af BBC, frumsýndi á mánu-
dagskvöld fyrsta heimildaþátt-
inn af sex í röðinni Secrets of the
London Underground. Í þáttunum
fara sagnfræðingarnir Tim Dunn
og Siddý Holloway eiginlega með
áhorfendur í lestarferð aftur í tím-
ann um yfirgefnar brautir og löngu
gleymda afkima neðanjarðarlestar-
kerfis Lundúna.
Rúmlega 400 þúsund manns
horfðu á fyrsta þáttinn þegar hann
var sendur út. „Við erum alveg í
skýjunum og alveg hrikalega stolt
af seríunni,“ segir Siddý en áhorfið á
útsendinguna fór fram úr björtustu
vonum hennar og samstarfsfólks
hennar.
Áhugi fólks á þessu elsta neðan-
jarðarlestarkerfi heims þarf þó ef
til vill ekki að koma á óvart enda
teygir það sig um mannlíf og sögu
heimsborgarinnar rúma öld aftur í
tímann.
Siddý bendir þó á að á lestar-
ferðum sínum í daglegu amstri geri
fólk sér ekki alltaf grein fyrir því að
það brunar í gegnum og fram hjá
stöðum sem hafa þjónað tilgangi
sínum í allt að 130 ár og þannig
snert ótal mannslíf í gegnum tíðina.
„Þegar ég tengdi þetta svona við
fólkið í London þá varð ég ofboðs-
lega spennt fyrir viðfangsefninu og
þegar ég fór að kafa ofan í þetta gat
ég ekki hætt og hingað erum við
komin.“
Siddý starfar fyrir samgöngu-
safnið London Transport Museum
og í krafti þess fá þau Tim, og áhorf-
endur um leið, einstakan aðgang að
lokuðum og gleymdum viðkomu-
stöðum undir London.
Úr leiklist í lestarferðir
„Þetta er ótrúlega spennandi og
ég vona bara að þetta haldi svona
áfram. Ég myndi eiginlega segja
að þáttur næstu viku sé betri en sá
fyrsti þannig að þetta verður bara
skemmtilegra og skemmtilegra,“
segir Siddý sem útilokar ekki að ráð-
ist verði í gerð annarrar þáttaraðar
auk þess sem hún gæli við tilhugs-
unina um að þeir eigi eftir að rata til
íslenskra sjónvarpsáhorfenda.
Siddý Ingólfsdóttir f lutti til Bret-
lands 2010 til þess að fara í leik-
listarnám og þar býr hún enn og er
þekkt sem Siddý Holloway. „Eftir
að ég útskrifaðist var ég í harkinu,
svona eins og gengur með leikara,“
segir Siddý sem komst í nokkuð
örugga aukavinnu sem leiðsögu-
maður.
„Ég var með alls konar mismun-
andi túra og fannst það alltaf æðis-
lega skemmtilegt,“ segir hún og
bendir á að störf leikarans og leið-
sögumannsins eigi ýmislegt sam-
eiginlegt þótt það blasi ekki endi-
lega við. „Enda er maður náttúrlega
alltaf að segja sögu.“
Siddý var búin að vinna við leið-
sögn í nokkur ár og var farin að
huga að flutningum heim til Íslands
þegar henni bauðst starf hjá London
Transport Museum í nokkra mán-
uði 2015 og þar er hún enn.
Hulduborgin London
„Það er svo skrýtið hvernig þetta
gerist. Mér hefur alltaf fundist
sagnfræði og saga yfirhöfuð mjög
spennandi,“ segir Siddý sem kom
til safnsins á hárréttum tíma.
„Þegar ég er að byrja þarna er
hugmyndin að verkefninu Hidden
London að koma upp. Þar sem við
förum með fólk á bak við tjöldin og
sýnum lokaðar stöðvar og lokaða
hluta í þessu kerfi. Eitthvað sem
fólk fer kannski fram hjá á hverjum
degi og veit ekkert að þar á bak við
leynist bara heill heimur.
Þú getur bókstaf lega gengið í
gegnum einar dyr og þá bara ertu
allt í einu kominn einhver 80-90 ár
aftur í tímann. Flestir vita ekkert
af þessu og hafa ekki hugmynd um
hvað leynist þarna.“
Leiðsögumannsreynsla Siddýjar
varð til þess að hún var beðin um
að aðstoða við verkefnið og hún
stýrir nú deildinni sem kennd er
við Hidden London. „Við byrjuðum
á einum túr og þetta er bara búið að
stækka, vinda upp á sig og núna sex
árum seinna komið í sjónvarp.“
Brunað gegnum samfélagssöguna
Siddý vinnur alla rannsóknarvinn-
una og skrifar allt efnið í kringum
þessar neðanjarðar-kynnisferðir
sem hafa fundið sér nýjan farveg
í gegnum sjónvarp. „Fólk heldur
oft að þetta sé eitthvað pínu bara
fyrir lestanörda en þetta er einmitt
í rauninni alls ekki lestatengt. Við
tölum mikið um seinni heimsstyrj-
öldina og ég tengi þetta miklu frekar
við samfélagssöguna heldur en sögu
lestanna.
Við erum svo heppin að þetta
er London og elsta neðanjarðar-
lestarkerfi heims. Opnað 1863 og
búið að vera í gangi síðan þá. Það
er orðið svo sjaldgæft, sérstaklega
kannski í London, að hlutunum sé
ekki breytt og það er svo heillandi
og geggjað spennandi við þetta að
hérna stígurðu bara allt í einu 70 ár
aftur í tímann. Síðan eru líka allir
spenntir fyrir leyndarmálum, ein-
hverju sem er hulið og stöðum sem
má ekki fara á.“
Stríðsminningar
Siddý segir því engan skort á
spennandi sögum í skúmaskotum
The London Underground og þær
tengist margar heimsstyrjöldinni
síðari sem hafði vitaskuld og hefur
enn áhrif á breskt samfélag. „Það var
bara þannig að frá september 1940
til maí 1941 dóu yfir 40.000 manns í
loftárásum á London og yfir milljón
byggingar eyðilögðust.“
Neðanjarðarkerfið hafi þá í raun
verið eini öruggi staðurinn og þang-
að niður hafi fólk hrúgast saman.
„Sögurnar af því þegar fólk er að
sofa svona á brautarpöllunum eru
náttúrlega alveg svakalegar. Engin
almennileg klósettaðstaða, almenni-
lega rennandi vatn eða neitt. Það er
alveg sérstaklega magnað að hugsa
til þess að þetta fólk hafi verið á
þessum sömu brautarpöllum og þú
notar enn þann dag í dag.“ n
Kastljós á niðurgrafna leyndardóma Lundúna
Kynni Siddýjar og Tims Dunn hófust þegar hún var gestur í sjónvarpsþætti hjá
honum og í framhaldinu datt þeim í hug að það gæti verið spennandi að fara með
áhorfendur um slóðir Siddýjar í Hidden London. MYND/UKTV/THE OTHER RICHARD
Siddý var komin hálfa leið til Íslands í huganum þegar henni bauðst starf hjá London Transport Museum sem hefur
nú skilað henni í sjónvarp þar sem hún skoðar huliðsheimana undir London. MYND/UKTV/THE OTHER RICHARD
38 Lífið 24. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 24. júlí 2021 LAUGARDAGUR