Fréttablaðið - 17.07.2021, Blaðsíða 48
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Jón Gnarr f lytur Völuspá
í Landnámssetrinu í Borgarnesi
í dag. Hann segir kvæðið í senn
kynngimagnaðan þjóðararf
og hættulegan seið.
arnartomas@frettabladid.is
„Sem áhugamaður um literatúr hef ég
alltaf haft dálæti á Völuspá fyrir það
hversu kynngimögnuð hún er,“ segir
Jón Gnarr, sem syngur kvæðið Völuspá
við eigið lag á Sögulofti Landnámsset-
ursins í Borgarnesi í dag. Viðburðurinn
ber yfirskriftina „Jón Gnarr og Þeyr 2“
en flutningurinn er hluti af útskriftar-
verkefni Jóns í Listaháskólanum, þar
sem hann er nú að ljúka mastersnámi.
Til liðs við sig hefur Jón fengið kanón-
urnar og tvínafnana Hilmar Örn Agn-
arsson, kórstjóra og organista, og Hilmar
Örn Hilmarsson allsherjargoða. Félag-
arnir hafa prófað ýmsar útgáfur af flutn-
ingnum og voru með opna æfingu í Máli
og menningu í júní. „Núna ætlum við að
koma fram í Landnámssetrinu, bæði því
okkur langar til að heyra þetta og svo til
að stilla aðeins saman strengi. Þetta er
krefjandi verkefni, en það er gaman að
koma út úr skólanum með eitthvað sem
er algjörlega nýtt fyrir mér.“
Varasamur seiður
Þegar Jón sökkti sér í Völuspá heltók
hún hann eins og svo marga aðra. „Ég
fékk hana gjörsamlega á heilann. Mig
dreymdi hana á nóttunni og nennti
helst ekki að tala við neinn um neitt
nema Völuspá,“ segir hann. „ Ég vaknaði
hummandi hin og þessi erindi og sofn-
aði hummandi hana á kvöldin. Þetta var
langt tímabil.“
Jón segir Völuspá kraftmikinn seið
þar sem galdrar séu að verki. Það sé því
nauðsynlegt að nálgast kvæðið af var-
kárni. „Ég var hræddur um að mín yrði
minnst sem mannsins sem fór yfir um á
Völuspá. Ég myndi ganga um göturnar
muldrandi og fólk segði: „Er þetta ekki
Jón Gnarr? Var hann ekki svo fyndinn
og skemmtilegur? Jú, jú, en hann fór
svo yfir um á Völuspá,“ hlær Jón, sem
hrósar happi fyrir að hafa ekki endað
úti í skurði, ristur galdrastöfum.
Lurinn lokkar
Leikið verður á ýmis hljóðfæri við
f lutninginn og má þar nefna hljóm-
borð, steinhörpu, bjöllur og flautur frá
Páli frá Húsafelli. Þá gætu gestir átt von
á að sjá norskan víkingalúður úr kopar,
svokallaðan lur. „Það er ekki alveg stað-
fest enn þá svo ég vil ekki lofa honum
upp í ermina á mér,“ segir Jón. „Það væri
leiðinlegt ef fólk væri komið til að sjá
lurinn og yrði svo fyrir vonbrigðum og
færi að væna okkur um lygar.“
Í Borgarnesinu á svo séríslenskur
andi til að leggjast yfir fólk, blandinn
sagn- og goðafræði. Jón sleppur ekki
við hann frekar en hver annar. „Ég hef
sterkar taugar til þessa húss, bæjar og
landsvæðis,“ segir hann. „Þetta kvæði er
mikill þjóðararfur svo staðsetningin er
vel við hæfi. Útskriftarsýningin í ágúst
verður svo í Þjóðminjasafninu sem er
líka vel við hæfi.“
Skugga-Sveinn og Óorð
Eftir að útskrifast í haust stefnir Jón svo
á að fara norður, þar sem hann hefur
tekið að sér hlutverk Skugga-Sveins í
samnefndu leikriti. Hann lætur ekki þar
við sitja heldur má með haustinu einn-
ig vænta bókarinnar Óorð – bókin um
vond íslensk orð. „Þar verð ég að vega
að ýmsum orðum sem mér hefur verið í
nöp við og tel að mál okkar yrði betra ef
við myndum losa okkur við,“ segir Jón.
Tónleikarnir í Landnámssetrinu
hefjast kl. 16 og tekur flutningurinn um
klukkustund. n
Heltekinn af Völuspá
Flutningurinn
er hluti af út-
skriftarverkefni
Jóns frá Listahá-
skólanum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
OTTAR GEIRSSON
Jón fyrir miðju, umvafinn Hilmari og Hilmari. MYND/AÐSEND
Ég var hræddur um að
mín yrði minnst sem
mannsins sem fór yfir um
á Völuspá.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Arnþrúður Kristín
Ingvadóttir
Dalsbrún 9, Hveragerði,
lést á Fossheimum 10. júlí.
Útför hennar fer fram frá Hveragerðiskirkju,
fimmtudaginn 22. júlí kl. 14. Blóm og kransar vinsamlega
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent
á Krabbameinsfélagið eða Einstök börn.
Sigurjón Skúlason
Bryndís Sigurjónsdóttir Eðvarð Ingólfsson
Skúli Heimir Sigurjónsson Guðrún Linda Ólafsdóttir
Ingvi Arnar Sigurjónsson Jóhanna Ólafs
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær bróðir, mágur, stjúpfaðir
og móðurbróðir okkar,
Páll Jónsson
lést 10. júlí sl.
Útförin verður auglýst síðar.
Anna Pála Vignisdóttir,
Páll Loftsson, Arnar Pétursson,
Jóhanna Katrín Pálsdóttir,
Jón Bragi Pálsson og Leifur Pálsson
Móðir mín, tengdamóðir,
amma, systir og frænka,
Guðrún Eggertsdóttir
Bjargi, Borgarnesi,
lést laugardaginn 10. júlí og verður
jarðsungin frá Borgarneskirkju
miðvikudaginn 21. júlí klukkan 14.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð Brákarhlíðar
í Borgarnesi. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug.
Heiður Hörn Hjartardóttir Þorsteinn Arilíusson
Anna Margrét Þorsteinsdóttir Inga Lilja Þorsteinsdóttir
Jón Ingi Þorsteinsson Vigfús Arnar Þorsteinsson
Guðmundur Eggertsson
Jóna Eggertsdóttir
bræðrabörn og fjölskyldur.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Gunnar Einarsson
skipstjóri,
Reynigrund 36, Akranesi,
lést 5. júlí.
Útför hans fer fram frá Akraneskirkju
þriðjudaginn 20. júlí klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem
vilja minnast hans er bent á reikning sem stofnaður
hefur verið til styrktar afabarni hans Gunnari Einarssyni.
Reikningurinn er nr. 0123-18-014242 kt. 060507-2790
Ragnheiður Jóhanna Pétursdóttir
Halldóra Gunnarsdóttir Hafþór Ólafsson
Pétur Emil Gunnarsson Ramona Höhne
Einar Örn Gunnarsson Stine Laatsch
og barnabörn.
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson Jóhanna Eiríksdóttir
síðan 1996
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
28 Tímamót 17. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐTÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 17. júlí 2021 LAUGARDAGUR