Fréttablaðið - 17.07.2021, Blaðsíða 4
BJÓÐUM UPP Á 37” - 40” BREYTINGAPAKKA
BREYTINGAVERKSTÆÐI ÍSBAND,
SMIÐSHÖFÐA 5, SÉRHÆFIR SIG Í
BREYTINGUM Á RAM PALLBIFREIÐUM.
ÍSBAND UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI
RAM 3500
BÍLL Á MYND RAM 3500 LARAMIE SPORT MEGACAB MEÐ 35” BREYTINGU
VERÐ FRÁ 7.421.210 KR. ÁN VSK.
9.202.300 KR. M/VSK.
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18
fanndis@frettabladid.is
COVID-19 Þórólfur Guðnason sótt-
varnalæknir hefur ekki sérstakar
áhyggjur af þátttöku Íslands í
Ólympíuleikunum í Japan, sem
hefjast næsta föstudag.
Neyðarástandi hefur verið lýst
yfir víða í Japan vegna stöðu farald-
ursins í landinu. Nýlega var tilkynnt
um fleiri smit þar á einum degi en
greinst hafa í landinu í sex mánuði.
Ólympíuleikar geti dreift miklu smiti eins og EM
Þórólfur Guðna-
son sóttvarna-
læknir.
„Þetta eru bara keppendur og fólk
í kringum þá sem er að fara. Þetta er
ekki stór hópur og allir bólusettir.
Þannig að ég hef engar sérstakar
áhyggjur af því fyrir okkur, en auð-
vitað eru margar þjóðir sem hafa
áhyggjur af því,“ segir Þórólfur.
Aðspurður um hættuna sem af
því stafar að stefna fólki alls staðar
að á einn stað, nefnir Þórólfur
nýlokið Evrópumót í knattspyrnu
sem dæmi. „Það var mikil smitupp-
spretta þar. Það var til dæmis mikill
fjöldi Finna sem fór til Sankti Péturs-
borgar á völlinn og smitaðist þar og
kom til baka með smit,“ segir hann.
Ísland hafi heldur ekki farið var-
hluta af þessu.
„Nú höfum við séð að fólk sem fór
héðan á úrslitaleikinn í Lundúnum,
helgina sem úrslitaleikurinn var,
kom til baka með smit. Allar svona
samkomur geta verið uppspretta
fyrir mikla dreifingu.“ n
Þrátt fyrir að notkun rafmagns
sem orkugjafa sé ákjósanleg-
ust, er það ekki alltaf raunhæft
eða tæknilega mögulegt. Ráð-
gjafarfyrirtækið Ice Fuel hefur
unnið skýrslu sem snýr að
fýsileika framleiðslu rafelds-
neytis hér á landi.
thg@frettabladid.is
ORKUMÁL Eina leiðin til að uppfylla
markmið og skyldur Íslands í lofts-
lagsmálum, felst í orkuskiptum í
samgöngum. Mikilvægt er að hefja
strax framleiðslu eldsneytis með
rafgreiningu, sama hvort það heitir
vetni, metan, metanól eða hefð-
bundin hráolía. Þetta er meðal þess
sem kemur fram í nýlegri skýrslu
Ice Fuel, sem unnin var fyrir hönd
Þróunarfélags Grundartanga.
Í skýrslunni kemur fram að raf-
magn sé ávallt besti valmöguleik-
inn sem orkugjafi samgöngu- og
farartækja. Hins vegar sé það ekki
alltaf raunhæft og því sé nauðsyn-
legt að byggja upp framleiðslu á raf-
eldsneyti hér á landi.
Í skýrslunni er rafeldsneyti skil-
greint sem „kolefnishlutlaus orku-
gjafi sem nýtist til samgangna eða
þar sem ekki er fýsilegt að nota
rafmagn beint“, en þar er vísað til
metanóls, metans, vetnis eða jafnvel
bensíns sem unnið er með rafgrein-
ingu, knúinni af endurnýjanlegri
orku. Til þess er Fischer Tropsch-
efnahvarfið notað.
Sú tækni sem nýtt er til að fram-
kalla Fischer Tropsch-efnahvarfið
er ekki ný af nálinni. Til að mynda
nýttu Þjóðverjar sömu aðferð til
að búa til hráolíu úr kolum í síðari
heimsstyrjöldinni. Á Íslandi yrði
hins vegar hrein orka nýtt til að
búa til bensín, dísilolíu og einna
helst f lugvélaeldsneyti úr vetni og
kolmónoxíði, sem að sögn Bjarna
Más Júlíussonar, framkvæmda-
stjóra Ice Fuel, yrði kolefnishlutlaus
framleiðsla.
„Það er ekki einhver ein tegund
rafeldsneytis sem passar fyrir allar
samgöngur á sjó, landi og í lofti. Það
þarf mismunandi lausnir fyrir mis-
munandi samgöngumáta. Það er
til að mynda óraunhæft að skipta
út fiskiskipum og f lugvélum til
skemmri tíma,“ segir Bjarni. Amm-
oníak mætti til dæmis nota sem
orkugjafa fraktskipa. „Fiskiskipin
eru hins vegar full af græjum og
mannskap. Sem stendur myndi
ammoníak ekki ganga á fiskiskip,
rúmmál þess er tvöfalt meira en
olíu sem notuð er á skip í dag.“
Bjarni bendir á að öll teikn séu á
lofti um það að jarðefnaeldsneyti
verði bannað í Evrópu fyrir 2050.
„Fyrir okkur Íslendinga er mjög
mikilvægt að hefja þessa vegferð
í orkuskiptum fyrr en síðar. Ekki
síst til að tryggja orkuöryggi, sem
er undirstaða annarra mikilvægra
þátta, eins og matvælaöryggis.
Vetnið er þó grunnurinn að þessu
öllu, vegna þess mikla aðgengis að
endurnýjanlegri orku sem við búum
yfir á Íslandi,“ segir Bjarni.
Í ljósi þess að almenn rafmagns-
notkun á Íslandi hefur um langa
hríð verið knúin af hreinni orku,
hefur Ísland í raun enga aðra kosti
en að leggja mikla áherslu á orku-
skipti í samgöngum, til að ná þeim
markmiðum sem liggja fyrir í
Parísar sáttmálanum.
„Framleiðsla rafeldsneytis hér á
landi er eina leiðin til að ná mark-
miðum okkar í kolefnishlutleysi.
Vegna þess að við erum svo óhepp-
in, ef svo má að orði komast, að fyrri
orkuskipti við kyndingu og annað
slíkt geta ekki farið fram, við getum
því ekki dregið úr losun þar. Sam-
göngur eru það eina þar sem við
getum bætt okkur í raun og veru.“ n
Ísland þarf að framleiða rafeldsneyti
Þróunarfélag Grundartanga lét vinna skýrslu um framleiðslu rafeldsneytis. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
thorgrimur@frettabladid.is
SAMGÖNGUR Stærstur hluti Íslend-
inga ferðast til vinnu eða skóla á
einkabíl, samkvæmt Þjóðarpúlsi
Gallup sem birtur var í gær. Alls
nýta um þrír fjórðungar lands-
manna sér þennan ferðamáta, en
aðrir fara fótgangandi, á reiðhjóli
eða með almenningssamgöngum.
Niðurstöðurnar eru í takti við það
sem mældist í sams konar könnun
fyrir þrettán árum.
Konur virðast ólíklegri en karlar
til að ferðast til vinnu eða skóla
á reiðhjóli. Einnig er talsverður
munur eftir aldurshópum, en fólk
yfir fimmtugu er líklegra en hið
yngra til að fara fótgangandi og
fólk undir fertugu líklegra til þess
að nýta sér aðra ferðamáta. Íbúar
höfuðborgarsvæðisins eru líklegri
til að keyra en landsbyggðarfólkið,
en íbúar miðbæjarins nota þó bíla
í mun minna mæli en aðrir borgar-
búar. n
Flestir keyra
enn í vinnuna
Fyrir okkur Íslendinga
er mjög mikilvægt að
hefja þessa vegferð í
orkuskiptum fyrr en
síðar. Ekki síst til að
tryggja orkuöryggi.
Bjarni Már
Júlíusson,
framkvæmda-
stjóri Ice Fuel.
adalheidur@frettabladid.is
NÁTTÚRUVERND Umhverfisstofnun
mun framlengja lokun Gróttu í Sel-
tjarnarnesbæ fyrir umferð gesta til
31. júlí og biður fólk að virða við-
kvæmt fuglavarp á svæðinu um
þessar mundir. Um skyndilokun á
svæðinu er að ræða, að því er segir á
vef Umhverfis stofnunar.
Svæðið í Gróttu er skilgreint sem
friðland og samkvæmt auglýs-
ingu er umferð óviðkomandi bönn-
uð frá 1. maí til 15. júlí. Umhverfis-
stofnun hefur hins vegar ákveðið
að framlengja þá lokun um hálfan
mánuð, vegna hættu á verulegri
röskun á fuglalífi ella. n
Lokun í Gróttu
framlengd út júlí
Mikið fuglavarp er í Gróttu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
4 Fréttir 17. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ