Fréttablaðið - 17.07.2021, Blaðsíða 40
Margir ætla að reima á sig
íþróttaskóna og spretta úr
spori á Vestfjörðum núna
um helgina. Þar fer fram
Hlaupahátíð, sem hefur fest
sig í sessi sem árlegur við-
burður.
sis@frettabladid.is
Guðbjörg Rós Sigurðardóttir er
ein þeirra sem standa að Hlaupa-
hátíðinni, sem hófst formlega á
fimmtudaginn og lýkur á morgun.
„Við erum nokkur saman í hlaupa-
hópi sem sjáum um að skipuleggja
hátíðina í sjálfboðaliðavinnu.
Fyrsta Hlaupahátíðin var haldin
árið 2009 en þá voru tveir við-
burðir sameinaðir, Óshlíðar-
hlaupið og Vesturgötuhlaupið.
Hún hefur þróast í gegnum tíðina
og sjósund og hjólreiðar bæst við á
dagskrána,“ segir hún, en hægt er
að skrá sig til keppni í ellefu mis-
munandi greinum eða taka þátt í
þríþraut. „Í þríþrautinni er keppt í
sjósundi á föstudegi, hjólreiðum á
laugardegi og hlaupi á sunnudegi,“
segir Guðbjörg.
Skemmtun fyrir börnin
Í dag stendur til að hjóla 55 kíló-
metra leið um fjöll og firnindi
á fjallahjólum. „Hjólað verður
frá Þingeyri, inn Kirkjubólsdal,
upp í Álftamýrarskarð, niður
Fossdalinn, út Arnarfjörð og svo
inn í Dýrafjörð og endað aftur á
Þingeyri. Þessi hjólaleið er bæði
krefjandi og skemmtileg og margir
sem koma á hátíðina eingöngu til
að hjóla hana,“ segir Guðbjörg.
Á Þingeyri verður boðið upp á
8 kílómetra skemmtihjólreiðar
og skemmtiskokk fyrir krakka.
Við sundlaugina þar í bæ verður
hægt að gera jógaæfingar úti undir
berum himni og bakaðar verða
vöfflur og allir mega fá eins og þeir
vilja, að sögn Guðbjargar.
Á morgun verður svokölluð
Vesturgata hlaupin, en þar er um
þrjár mismunandi vegalengdir
að ræða, 45, 24 eða 10 kílómetra.
„Það er ýmist lagt af stað frá
Þingeyri, Stapadal eða Svalvogs-
vita, eftir því hve langt fólk ætlar
að hlaupa, en öll hlaupin enda á
Sveinseyri. Vesturgatan er hæðótt
og því hefur verið brýnt fyrir
keppendum að fara varlega, því
vegir geta verið mislægir og heldur
grófir. Þá eru einhverjir lækir á
leiðinni,“ segir Guðbjörg. Lengsta
leiðin er frá Þingeyri, upp Kirkju-
bólsdal, yfir Álftamýrarheiði og
niður í Fossdal.
Vestfirðir í tísku
Aðsókn á Hlaupahátíðina hefur
aukist frá ári til árs, en í fyrra varð
að slá hana af vegna veðurs. „Fjöldi
manns hefur lagt leið sína vestur
til að taka þátt í Hlaupahátíðinni,
og ekki skemmir fyrir að Vestfirðir
eru í tísku núna. Í ár eru um sex
hundruð einstaklingar skráðir til
leiks, bæði heimamenn og gestir.
Hátíðin er hugsuð þannig að allir
geti verið með og haft gaman af,
bæði ungir sem aldnir. Það mynd-
ast því góð fjölskyldustemning,“
segir Guðbjörg, sem er ánægð með
þessa góðu þátttöku.
Sjálf er hún mikill hlaupagarpur
og er hluti af hlaupahópnum Ridd-
arar Rósu. „Við hlaupum reglulega
saman. Frá árinu 2012 höfum við
haldið sérstakt styrktarhlaup á ári
hverju og styrkjum einstaklinga hér
í nærumhverfinu, sem hafa glímt
við veikindi eða aðra erfiðleika,“
segir Guðbjörg. n
Hlaupið, hjólað og synt fyrir vestan
Guðbjörg er mikill hlaupagarpur og er í hlaupahópnum Riddarar Rósu. MYNDIR/AÐSENDAR
Riddarar Rósu hafa eytt ófáum stundum við að undirbúa Hlaupahátíðina. Frá
vinstri: Sigmundur Fríðar, Guðrún Snæbjörg, Hildur Elísabet, Guðbjörg Rós,
Þuríður Katrín, Heimir og Hólmfríður Vala.
Margir hjólakappar koma sérstak-
lega vestur til að taka þátt í há-
tíðinni, enda er hjólaleiðin einstök.
Dagskrá Hlaupahátíðarinnar hefur
þróast í gegnum tíðina og núna er
líka keppt í sjósundi.
Gagnvirkir UHD skjáir frá SMART og Prowise
Gagnvirkir skjáir eru með Android stýrikerfi.
Hægt er að fá innbyggða tölvu með Windows 10
hækkanlegar veggfestingar og festingar á hjólum
Skjáir í stærðum frá 55” til 86”
Nokkrar tegundir uppsettar í sýningarsal
okkar í Markholti 2, Mosfellsbæ
fyrir fundarherbergi og skólastofur
Sími 566 8144
6 kynningarblað A L LT 17. júlí 2021 LAUGARDAGUR