Fréttablaðið - 17.07.2021, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 17.07.2021, Blaðsíða 10
kristinnpall@frettabladid.is Fyrrum heimsmeistari í fjallahlaupum, Skotinn And- rew Douglas, keppir í Lauga- vegshlaupinu í fyrsta sinn í dag. Hann segir gott skipulag skipta öllu máli þegar kemur að fjallahlaupum en þetta verður fyrsta ofurhlaup hans. UTANVEGAHLAUP „Ég er nú ýmsu vanur þegar kemur að veðráttu enda frá Skotlandi en auðvitað vonast maður til að veðrið verði í góðu lagi. Spáin er fín og ég er orðinn mjög spenntur fyrir þessu,“ segir skoski utanvegahlauparinn Andrew Douglas léttur í lund, í aðdraganda Laugavegshlaupsins þetta árið. Andrew er að keppa í sínu fyrsta ofurhlaupi (e. ultra marathon) um helgina. Hann hefur keppt fyrir hönd Bretlands í fjallahlaupum á sex Evrópumótum og í sex heims- meistarakeppnum. Þar að auki hefur Andrew, sem keppir ýmist fyrir Skotland eða sam- eiginlegt lið Bretlands, borið sigur úr býtum í meistaramóti einstaklinga í Bretlandi í utanvegahlaupum fimm sinnum á síðustu sjö árum og vann heimsmeistaramótið í fjallahlaup- um (e. World Mountain Running Association World Cup) árið 2019. „Ég er mjög spenntur að takast á við þetta. Þetta er ólíkt nokkru öðru hlaupi sem ég hef hlaupið, en eitthvað sem ég er mjög spenntur að takast á við. Þetta er fyrsta ofur- hlaupið mitt og það er gott að gera það á jafn eftirminnilegum stað og Íslandi,“ segir Andrew, sem hefur heyrt góðar sögur af leiðinni. „Yfirmaður skoska utanvega- hlaupasambandsins, Angela Mudge, hafði orð á því að þetta væri afskap- lega falleg braut að hlaupa. Auðvitað er það ákveðinn þröskuldur að fara í lengra hlaup en ég hef áður verið að hlaupa og ég verð að gæta þess að spara orku og brenna ekki of snemma út,“ sagði Andrew, um að hlaupa tæplega þrettán kílómetrum lengra en vanalega og í hlaupi sem hækkar um tíma um 500 metra og lækkar um 900 metra. Alls eru 607 hlauparar skráðir í hið gríðarlega krefjandi Laugavegshlaup í ár, 227 konur og 380 karlar. Fimm- tán prósent þátttakenda, eða 90, eru erlendir, flestir frá Bandaríkjunum. Um tíma var um 50% þátttak- enda erlendir hlauparar, að sögn Silju Úlfarsdóttur, upplýsinga- og kynningarfulltrúa ÍBR, sem sér um hlaupið, en kórónaveiran setur strik í reikninginn. Keppendur eru af 21 þjóðerni. Silja segir ávallt mikinn áhuga erlendis frá. Andrew átti erfitt með að til- greina hvað þarf til að komast í fremstu röð í utanvegahlaupi, spurður um það hvað geri útslagið í fjallahlaupum. „Allir sem njóta þess að hlaupa ættu ekki að finna fyrir miklum mun að hlaupa utanvega- eða fjalla- hlaup. Þetta snýst að mörgu leyti um að vera vel undirbúinn og að stýra álaginu og hraðanum vel. Það er ákveðin tækni í því að geta gengið hratt þegar aðstæðurnar eru þannig að það er orðið óskilvirkt að hlaupa vegna halla. Það er margt sem þarf að huga að.“ Undanfarin ár hefur Þorbergur Ingi Jónsson verið í sérf lokki hjá Íslendingum í hlaupinu í karlaflokki og á fjóra bestu tímana, en hann fær nú verðugan keppinaut í Andrew. Í kvennaflokki tókst Rannveigu Oddsdóttur að bæta brautarmetið í fyrra, en Elísabet Margeirsdóttir, sem stefnir á heimsmeistaramótið í utanvegahlaupi síðar á þessu ári, mun meðal annars veita henni sam- keppni. n Þetta snýst að mörgu leyti um að vera vel undirbúinn og að stýra álaginu og hraðanum vel. Andrew Doug­ las, alþjóðlegur utanvegahlaup­ ari. kristinnpall@frettabladid.is TENNIS Tenniskappinn Novak Djokovic tilkynnti á fimmtudags- kvöld að hann myndi taka þátt í Ólympíuleikunum í Tókýó fyrir hönd Serbíu. Djokovic hafði áður gefið það út að hann væri ekki viss hvort hann myndi gefa kost á sér svona stuttu eftir Wimbledon, en hann á enn eftir að vinna Ólympíu- gull. Takist Djokovic að vinna til gull- verðlauna á Ólympíuleikunum og á Opna bandaríska meistaramótinu í haust, nær Djokovic að taka gull- slemmuna sem aðeins Steffi Graf hefur náð árið 1988, sem hand- hafi allra fjögurra risatitlanna og Ólympíugulls á sama tíma. Djokovic vann 20. risamót sitt á dögunum og jafnaði með því við Roger Federer og Rafael Nadal, sem sigursælustu tennisspilarar sögunn- ar í karlaflokki. Djokovic getur um leið orðið fyrsti karlinn í 52 ár til að vinna alla risatitlana í tennis á sama ári, með sigri á Opna bandaríska. n Getur leikið eftir afrek Steffi Graf Djokovic hefur verið óstöðvandi það sem af er ári. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Mikilvægt að stýra álaginu vel Frá síðasta Laugavegs­ hlaupi, en hlauparar þurfa að hlaupa í ýmsum að­ stæðum þessa 55 kílómetra. MYND/ÍBR/TORFI LEIFSSON AÐEINS 3.990 KR./MÁN. Tryggðu þér áskrift á stod2.is kristinnpall@frettabladid.is FÓTBOLTI Íslendingainnrásin á Ítal- íu heldur áfram, en í gær var stað- fest að tveir leikmenn til viðbótar, Þórir Jóhann Helgason og Hjörtur Hermannsson, væru búnir að semja við ítölsku B-deildina. Undanfarna mánuði hafa ítölsk félög horft í auknum mæli til Íslands og er Þórir annar Íslendingurinn sem semur við Lecce á stuttum tíma. Landsliðsmaður inn Hjörtur kemur frítt til Pisa, eftir að samn- ingur hans við Bröndby rann út en Lecce kaupir Þóri frá FH. n Tveir til Ítalíu 10 Íþróttir 17. júlí 2021 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 17. júlí 2021 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.