Fréttablaðið - 17.07.2021, Page 10
kristinnpall@frettabladid.is
Fyrrum heimsmeistari í
fjallahlaupum, Skotinn And-
rew Douglas, keppir í Lauga-
vegshlaupinu í fyrsta sinn í
dag. Hann segir gott skipulag
skipta öllu máli þegar kemur
að fjallahlaupum en þetta
verður fyrsta ofurhlaup hans.
UTANVEGAHLAUP „Ég er nú ýmsu
vanur þegar kemur að veðráttu
enda frá Skotlandi en auðvitað
vonast maður til að veðrið verði
í góðu lagi. Spáin er fín og ég er
orðinn mjög spenntur fyrir þessu,“
segir skoski utanvegahlauparinn
Andrew Douglas léttur í lund, í
aðdraganda Laugavegshlaupsins
þetta árið.
Andrew er að keppa í sínu fyrsta
ofurhlaupi (e. ultra marathon) um
helgina. Hann hefur keppt fyrir
hönd Bretlands í fjallahlaupum á
sex Evrópumótum og í sex heims-
meistarakeppnum.
Þar að auki hefur Andrew, sem
keppir ýmist fyrir Skotland eða sam-
eiginlegt lið Bretlands, borið sigur úr
býtum í meistaramóti einstaklinga í
Bretlandi í utanvegahlaupum fimm
sinnum á síðustu sjö árum og vann
heimsmeistaramótið í fjallahlaup-
um (e. World Mountain Running
Association World Cup) árið 2019.
„Ég er mjög spenntur að takast
á við þetta. Þetta er ólíkt nokkru
öðru hlaupi sem ég hef hlaupið, en
eitthvað sem ég er mjög spenntur
að takast á við. Þetta er fyrsta ofur-
hlaupið mitt og það er gott að gera
það á jafn eftirminnilegum stað og
Íslandi,“ segir Andrew, sem hefur
heyrt góðar sögur af leiðinni.
„Yfirmaður skoska utanvega-
hlaupasambandsins, Angela Mudge,
hafði orð á því að þetta væri afskap-
lega falleg braut að hlaupa. Auðvitað
er það ákveðinn þröskuldur að fara
í lengra hlaup en ég hef áður verið
að hlaupa og ég verð að gæta þess
að spara orku og brenna ekki of
snemma út,“ sagði Andrew, um að
hlaupa tæplega þrettán kílómetrum
lengra en vanalega og í hlaupi sem
hækkar um tíma um 500 metra og
lækkar um 900 metra.
Alls eru 607 hlauparar skráðir í hið
gríðarlega krefjandi Laugavegshlaup
í ár, 227 konur og 380 karlar. Fimm-
tán prósent þátttakenda, eða 90, eru
erlendir, flestir frá Bandaríkjunum.
Um tíma var um 50% þátttak-
enda erlendir hlauparar, að sögn
Silju Úlfarsdóttur, upplýsinga- og
kynningarfulltrúa ÍBR, sem sér um
hlaupið, en kórónaveiran setur strik
í reikninginn. Keppendur eru af 21
þjóðerni. Silja segir ávallt mikinn
áhuga erlendis frá.
Andrew átti erfitt með að til-
greina hvað þarf til að komast
í fremstu röð í utanvegahlaupi,
spurður um það hvað geri útslagið
í fjallahlaupum.
„Allir sem njóta þess að hlaupa
ættu ekki að finna fyrir miklum
mun að hlaupa utanvega- eða fjalla-
hlaup. Þetta snýst að mörgu leyti
um að vera vel undirbúinn og að
stýra álaginu og hraðanum vel. Það
er ákveðin tækni í því að geta gengið
hratt þegar aðstæðurnar eru þannig
að það er orðið óskilvirkt að hlaupa
vegna halla. Það er margt sem þarf
að huga að.“
Undanfarin ár hefur Þorbergur
Ingi Jónsson verið í sérf lokki hjá
Íslendingum í hlaupinu í karlaflokki
og á fjóra bestu tímana, en hann fær
nú verðugan keppinaut í Andrew.
Í kvennaflokki tókst Rannveigu
Oddsdóttur að bæta brautarmetið
í fyrra, en Elísabet Margeirsdóttir,
sem stefnir á heimsmeistaramótið
í utanvegahlaupi síðar á þessu ári,
mun meðal annars veita henni sam-
keppni. n
Þetta snýst að mörgu
leyti um að vera vel
undirbúinn og að stýra
álaginu og hraðanum
vel.
Andrew Doug
las, alþjóðlegur
utanvegahlaup
ari.
kristinnpall@frettabladid.is
TENNIS Tenniskappinn Novak
Djokovic tilkynnti á fimmtudags-
kvöld að hann myndi taka þátt í
Ólympíuleikunum í Tókýó fyrir
hönd Serbíu. Djokovic hafði áður
gefið það út að hann væri ekki viss
hvort hann myndi gefa kost á sér
svona stuttu eftir Wimbledon, en
hann á enn eftir að vinna Ólympíu-
gull.
Takist Djokovic að vinna til gull-
verðlauna á Ólympíuleikunum og á
Opna bandaríska meistaramótinu
í haust, nær Djokovic að taka gull-
slemmuna sem aðeins Steffi Graf
hefur náð árið 1988, sem hand-
hafi allra fjögurra risatitlanna og
Ólympíugulls á sama tíma.
Djokovic vann 20. risamót sitt á
dögunum og jafnaði með því við
Roger Federer og Rafael Nadal, sem
sigursælustu tennisspilarar sögunn-
ar í karlaflokki. Djokovic getur um
leið orðið fyrsti karlinn í 52 ár til að
vinna alla risatitlana í tennis á sama
ári, með sigri á Opna bandaríska. n
Getur leikið eftir
afrek Steffi Graf
Djokovic hefur verið óstöðvandi
það sem af er ári. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Mikilvægt að stýra álaginu vel
Frá síðasta
Laugavegs
hlaupi, en
hlauparar þurfa
að hlaupa í
ýmsum að
stæðum þessa
55 kílómetra.
MYND/ÍBR/TORFI
LEIFSSON
AÐEINS 3.990 KR./MÁN.
Tryggðu þér áskrift á stod2.is
kristinnpall@frettabladid.is
FÓTBOLTI Íslendingainnrásin á Ítal-
íu heldur áfram, en í gær var stað-
fest að tveir leikmenn til viðbótar,
Þórir Jóhann Helgason og Hjörtur
Hermannsson, væru búnir að semja
við ítölsku B-deildina. Undanfarna
mánuði hafa ítölsk félög horft í
auknum mæli til Íslands og er Þórir
annar Íslendingurinn sem semur
við Lecce á stuttum tíma.
Landsliðsmaður inn Hjörtur
kemur frítt til Pisa, eftir að samn-
ingur hans við Bröndby rann út en
Lecce kaupir Þóri frá FH. n
Tveir til Ítalíu
10 Íþróttir 17. júlí 2021 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 17. júlí 2021 LAUGARDAGUR