Fréttablaðið - 17.07.2021, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 17.07.2021, Blaðsíða 24
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@ frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Guðrún segist hafa fundið fyrir óþægindum í líkamanum árum saman. „Þrátt fyrir að ég hafi farið í vel heppnaða hnéaðgerð hef ég verið gjörsamlega ónýt í líkam- anum. Gat ekkert gengið vegna mikils sársauka. Ég fór til læknis og var greind bæði með vefja- og slit- gigt,“ segir hún. „Ég hef prófað að taka inn ýmiss konar náttúruefni sem áttu að hjálpa og sömuleiðis hef ég farið í endurhæfingu. Það hjálpaði mér talsvert, en óþæg- indin héldu áfram að hrjá mig,“ bætir hún við. Guðrún sá umfjöllun og ummæli um Active Joints frá Eylíf heilsu- vörum. „Ég las innihaldslýsingar og þær hvöttu mig til að prófa. Einnig hafði vinkona mín mælt með Active Joints, svo það var ekk- ert annað í stöðunni en að prófa. Vá, ég er þakklát, því eftir einungis tvær vikur var eins og ég væri leyst úr fjötrum, eða bönd hefðu verið skorin utan af mér. Allar mínar hreyfingar urðu auðveldari og sársaukalausar,“ segir hún. Guðrún segist finna örlítið fyrir öðru hnénu, en að öðru leyti sé þetta nýtt og betra líf. Undanfarið hef ég ekki getað stundað æfingar vegna Covid-19. Það eru tveir mánuðir síðan ég byrjaði að taka inn Active Joints og ég get gengið um í dag, sem ég gat ekki áður með góðu móti. Fyrr í vetur hélt ég að ég væri útbrunnin, en svo er aldeilis ekki. Ég get því hiklaust mælt með Active Joints frá Eylíf. Það sem ég hef upplifað er stórkostlegt og ég þreytist því ekki á að dásama þessa vöru.“ „Ég hef deilt ánægju minni með öllum sem ég þekki og hafa áhuga á að bæta heilsuna. Ég ætla að halda áfram að nota þessar vörur enda finn ég mikinn mun á mér,“ segir hún. n Fæst í öllum apótekum, Hagkaup, Heilsuhúsinu, Fjarðarkaupum, Nettó og á eylif.is þar sem er að finna nánari upplýsingar, en hægt er að fá fría heimsendingu. Fæðu- bótarefni kemur ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki ætlað börnum eða barnshafandi konum. Ekki er ráðlagt að taka meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Geymist þar sem börn ná ekki til. Bætiefnalínan frá Eylíf samanstendur af Happier Guts, Active Joints, Stronger Bones og Smoother Skin & Hair. Ég get því hiklaust mælt með Active Joints frá Eylíf. Það sem ég hef upplifað er stórkostlegt og ég þreytist því ekki á að dásama þessa vöru,“ segir Guðrún. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Loksins hreyfing án mikillar fyrirhafnar Guðlaugur Sigurðsson segir að eftir að hann kynntist Active Joints frá Eylíf hafi lífsgæði hans breyst til batnaðar. Hann getur staðið upp án fyrirhafnar og gengið óstuddur upp og niður tröppur. Lífsgæðin hafa því batnað. Guðlaugur Sigurðsson lenti í alvarlegu vinnu- slysi þegar hann var til sjós árið 2010. Hann slasaðist svo illa að hann var óvinnufær á eftir. Afleiðingarnar voru slæmir stoðverkir víðs vegar um líkamann. „Ég var heppinn að fá spelku frá Össuri þannig að ég gat sinnt daglegum at- höfnum. Spelkan var eins konar lífsbjörg fyrir mig á þeim tíma. Eftir slysið var ég stöðugt með verki og átti erfitt með svefn vegna verkjanna,“ út- skýrir Guðlaugur. Það var eiginkona hans sem sá auglýsingu um Active Joints frá Eylíf. „Hún ákvað að kaupa fyrir mig þetta fæðubótarefni í haust og ég verð að viðurkenna að eftir aðeins viku var ég farinn að finna mun á líkamlegri getu. Það var í raun alveg ótrúlegt og mér finnst gaman að segja frá þessari bættu líðan minni,“ segir hann. Guðlaugur segist stundum gleyma að setja á sig spelkuna þegar hann fer í göngutúr. „Ég get orðið gengið upp og niður stiga án þess að styðja mig við handriðið eða þegar ég stend upp frá borði eða úr sófanum. Ég myndi segja að það væri kraftaverk frá því sem áður var. Frá því ég kynntist Active Joints frá Eylíf hef ég tekið þrjú hylki á dag. Ég dreifi inntökunni yfir daginn með máltíðum. Þótt fötlun mín eftir slysið hafi ekki horfið, þá er ég engu að síður gangandi um glaður í bragði. Mér líður betur og það er góð upplifun.“ Heilsan er dýrmætust Rakel Jónasdóttir starfar sem snyrtifræðingur og vinnur oft mjög langa vinnudaga. Rakel hefur verið greind með beinþynningu og þarf að fá nægilegt kalk og D-vítamín. Hún segir að Stronger Bones frá Eylíf hafi reynst sér mjög vel til að styrkja sig. Rakel segist hafa verið að prófa allar vörur frá Eylíf og líkað þær virkilega vel. „Þar sem ég hef verið með beinþynningu hef ég þurft að passa mjög vel upp á að fá nægt kalk og D-vítamín,“ segir hún. „Þegar ég heyrði um Stronger Bones frá Eylíf var ég mjög spennt að prófa þessa vöru, þar sem hún inniheldur náttúrulegt kalk og auk þess ríkulegt magn af stein- og snefilefnum sem öll eru fengin úr náttúrunni. Ég hef fulla trú á að hrein, íslensk hráefni séu betri fyrir líkamann en þau efni sem eru venjulega í kalktöflum,“ segir hún. „Það er síðan bara bónus að þetta eru tuggutöflur sem eru mjög góðar á bragðið.“ Rakel segir að Stronger Bones hafi reynst sér mjög vel. „Ég vildi taka á vanda mínum og sporna við beinþynningunni án þess að taka inn lyf. Ég finn mikinn mun á mér með Stronger Bones og það hefur komið mér á óvart hversu góð áhrif það hefur á meltinguna,“ segir hún. „Ég hef líka prófað Smoother Skin & Hair frá Eylíf sem virkar mjög vel á bæði húð og hár. Kollagenið er efni sem er frábært fyrir húðina og ég hef fundið mun á henni og hárinu. Mér finnst nauðsynlegt að taka inn kollagen,“ segir Rakel og tekur fram að hún sé sérstaklega ánægð með vörurnar frá Eylíf. Heilsuvörur frá Eylíf Vörulínan Eylíf býður upp á fjórar vörur, Active Joints, Stronger Bones, Smoother Skin & Hair og Happier Guts, vörur sem hafa reynst vel fyrir liðina, húðina, beinin og meltinguna. Vörurnar eru unnar úr hreinum, íslenskum hráefnum, fram- leiðslan fer fram á Íslandi og öll hráefnin koma úr sjálfbærum auðlindum. Ólöf Rún Tryggvadóttir er stofnandi vörulínunnar Eylíf, en hugmyndin að henni kom til vegna þess að hana langaði að setja saman þau frábæru hráefni sem eru framleidd á Íslandi á sjálfbæran hátt, úr náttúrulegum auð- lindum frá Íslandi og auka þannig aðgengi fólks að þessum hráefnum. Framleiðslan fer fram á Grenivík og þróun varanna er í samstarfi við sér- fræðinga frá Matís. Vörurnar eru Active Joints, Stronger Bones, Smoother Skin & Hair og Happier Guts. Nýjasta varan er Happier Guts sem er sérstaklega hönnuð fyrir meltinguna og inniheldur íslensk hráefni ásamt meltingarensímum. „Active Joints er vin- sælasta varan og inniheldur hún fjögur íslensk næringarefni og margra ára rannsóknir sýna fram á jákvæð áhrif þeirra á heilsu. „Við vöndum til verka og sækjum í sjálfbærar auðlindir úr sjó og af landi. Við notum hreina, íslenska náttúruafurð, náttúruleg og hrein hráefni sem ekki eru erfða- breytt og stuðla að sveigjanlegri liðum, því með sveigjanlegri líkama erum við færari til að takast á við verkefnin í dagsins önn,“ segir Ólöf Rún.“ „Við notum einungis hrein, íslensk hráefni sem eru framleidd á sjálfbæran hátt í Eylíf vörurnar,“ segir Ólöf Rún. Fyrr í vetur hélt ég að ég væri útbrunnin, en svo er aldeilis ekki. Ég get því hiklaust mælt með Active Joints frá Eylíf. Það sem ég hef upplifað er stórkostlegt. Rakel Jónasdóttir hefur glímt við beinþynningu og leitaði að náttúrulegri vöru til að takast á við það. Guðlaugur segist stundum gleyma spelkunni eftir að hann byrjaði að taka inn Active Joints. 2 kynningarblað A L LT 17. júlí 2021 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.