Fréttablaðið - 17.07.2021, Blaðsíða 24
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@
frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Guðrún segist hafa fundið fyrir
óþægindum í líkamanum árum
saman. „Þrátt fyrir að ég hafi farið
í vel heppnaða hnéaðgerð hef ég
verið gjörsamlega ónýt í líkam-
anum. Gat ekkert gengið vegna
mikils sársauka. Ég fór til læknis og
var greind bæði með vefja- og slit-
gigt,“ segir hún. „Ég hef prófað að
taka inn ýmiss konar náttúruefni
sem áttu að hjálpa og sömuleiðis
hef ég farið í endurhæfingu. Það
hjálpaði mér talsvert, en óþæg-
indin héldu áfram að hrjá mig,“
bætir hún við.
Guðrún sá umfjöllun og ummæli
um Active Joints frá Eylíf heilsu-
vörum. „Ég las innihaldslýsingar
og þær hvöttu mig til að prófa.
Einnig hafði vinkona mín mælt
með Active Joints, svo það var ekk-
ert annað í stöðunni en að prófa.
Vá, ég er þakklát, því eftir einungis
tvær vikur var eins og ég væri leyst
úr fjötrum, eða bönd hefðu verið
skorin utan af mér. Allar mínar
hreyfingar urðu auðveldari og
sársaukalausar,“ segir hún.
Guðrún segist finna örlítið fyrir
öðru hnénu, en að öðru leyti sé
þetta nýtt og betra líf. Undanfarið
hef ég ekki getað stundað æfingar
vegna Covid-19. Það eru tveir
mánuðir síðan ég byrjaði að taka
inn Active Joints og ég get gengið
um í dag, sem ég gat ekki áður með
góðu móti. Fyrr í vetur hélt ég að ég
væri útbrunnin, en svo er aldeilis
ekki. Ég get því hiklaust mælt með
Active Joints frá Eylíf. Það sem ég
hef upplifað er stórkostlegt og ég
þreytist því ekki á að dásama þessa
vöru.“
„Ég hef deilt ánægju minni með
öllum sem ég þekki og hafa áhuga
á að bæta heilsuna. Ég ætla að
halda áfram að nota þessar vörur
enda finn ég mikinn mun á mér,“
segir hún. n
Fæst í öllum apótekum, Hagkaup,
Heilsuhúsinu, Fjarðarkaupum,
Nettó og á eylif.is þar sem er að
finna nánari upplýsingar, en hægt
er að fá fría heimsendingu. Fæðu-
bótarefni kemur ekki í staðinn
fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki
ætlað börnum eða barnshafandi
konum. Ekki er ráðlagt að taka
meira en ráðlagður dagskammtur
segir til um. Geymist þar sem
börn ná ekki til.
Bætiefnalínan frá Eylíf samanstendur af Happier Guts, Active Joints, Stronger Bones og Smoother Skin & Hair.
Ég get því hiklaust mælt með Active Joints frá Eylíf. Það sem ég hef upplifað er
stórkostlegt og ég þreytist því ekki á að dásama þessa vöru,“ segir Guðrún.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Loksins hreyfing án mikillar fyrirhafnar
Guðlaugur Sigurðsson segir að eftir að hann
kynntist Active Joints frá Eylíf hafi lífsgæði hans
breyst til batnaðar. Hann getur staðið upp án
fyrirhafnar og gengið óstuddur upp og niður
tröppur. Lífsgæðin hafa því batnað.
Guðlaugur Sigurðsson lenti í alvarlegu vinnu-
slysi þegar hann var til sjós árið 2010. Hann
slasaðist svo illa að hann var óvinnufær á eftir.
Afleiðingarnar voru slæmir stoðverkir víðs vegar
um líkamann. „Ég var heppinn að fá spelku frá
Össuri þannig að ég gat sinnt daglegum at-
höfnum. Spelkan var eins konar lífsbjörg fyrir mig
á þeim tíma. Eftir slysið var ég stöðugt með verki
og átti erfitt með svefn vegna verkjanna,“ út-
skýrir Guðlaugur. Það var eiginkona hans sem sá
auglýsingu um Active Joints frá Eylíf. „Hún ákvað
að kaupa fyrir mig þetta fæðubótarefni í haust
og ég verð að viðurkenna að eftir aðeins viku var
ég farinn að finna mun á líkamlegri getu. Það var í
raun alveg ótrúlegt og mér finnst gaman að segja
frá þessari bættu líðan minni,“ segir hann.
Guðlaugur segist stundum gleyma að setja á
sig spelkuna þegar hann fer í göngutúr. „Ég get
orðið gengið upp og niður stiga án þess að styðja
mig við handriðið eða þegar ég stend upp frá
borði eða úr sófanum. Ég myndi segja að það
væri kraftaverk frá því sem áður var. Frá því ég
kynntist Active Joints frá Eylíf hef ég tekið þrjú
hylki á dag. Ég dreifi inntökunni yfir daginn með
máltíðum. Þótt fötlun mín eftir slysið hafi ekki
horfið, þá er ég engu að síður gangandi um glaður
í bragði. Mér líður betur og það er góð upplifun.“
Heilsan er dýrmætust
Rakel Jónasdóttir starfar sem snyrtifræðingur
og vinnur oft mjög langa vinnudaga. Rakel
hefur verið greind með beinþynningu og þarf
að fá nægilegt kalk og D-vítamín. Hún segir að
Stronger Bones frá Eylíf hafi reynst sér mjög vel
til að styrkja sig.
Rakel segist hafa verið að prófa allar vörur frá
Eylíf og líkað þær virkilega vel. „Þar sem ég hef
verið með beinþynningu hef ég þurft að passa
mjög vel upp á að fá nægt kalk og D-vítamín,“
segir hún. „Þegar ég heyrði um Stronger Bones
frá Eylíf var ég mjög spennt að prófa þessa vöru,
þar sem hún inniheldur náttúrulegt kalk og auk
þess ríkulegt magn af stein- og snefilefnum sem
öll eru fengin úr náttúrunni. Ég hef fulla trú á að
hrein, íslensk hráefni séu betri fyrir líkamann
en þau efni sem eru venjulega í kalktöflum,“
segir hún. „Það er síðan bara bónus að þetta eru
tuggutöflur sem eru mjög góðar á bragðið.“
Rakel segir að Stronger Bones hafi reynst sér
mjög vel. „Ég vildi taka á vanda mínum og sporna
við beinþynningunni án þess að taka inn lyf. Ég
finn mikinn mun á mér með Stronger Bones og
það hefur komið mér á óvart hversu góð áhrif
það hefur á meltinguna,“ segir hún.
„Ég hef líka prófað Smoother Skin & Hair frá
Eylíf sem virkar mjög vel á bæði húð og hár.
Kollagenið er efni sem er frábært fyrir húðina og
ég hef fundið mun á henni og hárinu. Mér finnst
nauðsynlegt að taka inn kollagen,“ segir Rakel
og tekur fram að hún sé sérstaklega ánægð með
vörurnar frá Eylíf.
Heilsuvörur frá Eylíf
Vörulínan Eylíf býður upp á fjórar vörur, Active
Joints, Stronger Bones, Smoother Skin & Hair
og Happier Guts, vörur sem hafa reynst vel fyrir
liðina, húðina, beinin og meltinguna. Vörurnar eru
unnar úr hreinum, íslenskum hráefnum, fram-
leiðslan fer fram á Íslandi og öll hráefnin koma úr
sjálfbærum auðlindum. Ólöf Rún Tryggvadóttir
er stofnandi vörulínunnar Eylíf, en hugmyndin að
henni kom til vegna þess að hana langaði að setja
saman þau frábæru hráefni sem eru framleidd á
Íslandi á sjálfbæran hátt, úr náttúrulegum auð-
lindum frá Íslandi og auka þannig aðgengi fólks
að þessum hráefnum. Framleiðslan fer fram á
Grenivík og þróun varanna er í samstarfi við sér-
fræðinga frá Matís.
Vörurnar eru Active Joints, Stronger Bones,
Smoother Skin & Hair og Happier Guts. Nýjasta
varan er Happier Guts sem er sérstaklega hönnuð
fyrir meltinguna og inniheldur íslensk hráefni
ásamt meltingarensímum. „Active Joints er vin-
sælasta varan og inniheldur hún fjögur íslensk
næringarefni og margra ára rannsóknir sýna fram
á jákvæð áhrif þeirra á heilsu. „Við vöndum til
verka og sækjum í sjálfbærar auðlindir úr sjó og
af landi. Við notum hreina, íslenska náttúruafurð,
náttúruleg og hrein hráefni sem ekki eru erfða-
breytt og stuðla að sveigjanlegri liðum, því með
sveigjanlegri líkama erum við færari til að takast á
við verkefnin í dagsins önn,“ segir Ólöf Rún.“
„Við notum einungis hrein, íslensk hráefni sem
eru framleidd á sjálfbæran hátt í Eylíf vörurnar,“
segir Ólöf Rún.
Fyrr í vetur hélt ég
að ég væri
útbrunnin, en svo er
aldeilis ekki. Ég get því
hiklaust mælt með
Active Joints frá Eylíf.
Það sem ég hef upplifað
er stórkostlegt.
Rakel Jónasdóttir hefur glímt við beinþynningu og
leitaði að náttúrulegri vöru til að takast á við það.
Guðlaugur segist stundum gleyma spelkunni eftir
að hann byrjaði að taka inn Active Joints.
2 kynningarblað A L LT 17. júlí 2021 LAUGARDAGUR