Fréttablaðið - 17.07.2021, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 17.07.2021, Blaðsíða 28
bmvalla.is Smellpassar þú í hópinn? Verk-eða tæknifræðingur Húseiningadeild Umsóknir óskast rafrænt í gegnum Alfreð og er umsóknarfrestur til og með 21. júlí 2021. Frekari upplýsingar veitir Bergþór Helgason í tölvupósti, beggi@bmvalla.is Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum verður svarað. Eignarhaldsfélagið Hornsteinn ehf. á og rekur þrjú dótturfélög sem starfa við öflun hráefna, framleiðslu, sölu og þjónustu á byggingarmarkaði og við mannvirkjagerð á Íslandi. Fyrirtækin eru Björgun ehf., BM Vallá ehf. og Sementsverksmiðjan ehf., og hafa þessi félög rótgróna sögu á Íslandi sem rekja má allt aftur til fyrri hluta síðustu aldar. Hjá fyrirtækjunum starfa um 200 manns á starfsstöðvum víða um land en skrifstofa Hornsteins ehf. er á Bíldshöfða 7. BM Vallá leitar að reyndum bygginga-,tækni-eða verkfræðingi í hönnunardeild fyrirtækisins, Smellinn. Starfsstöð starfsmanns getur verið að Breiðhöfða 3, 110 Reykjavík eða á starfsstöð BM Vallá á Akranesi. Jöfn tækifæri Með jafnréttisstefnunni okkar tryggjum við að starfsfólk hafi jafna möguleika óháð kyni, þjóðerni, kynþætti, kynhneigð, aldurs og fleiri þátta. Um er að ræða 100% framtíðarstarf en skilgreindur vinnutími er frá kl. 8-16 eða samkvæmt samkomulagi. Helstu verkefni og ábyrgð • Verkefnastjórnun einingaverkefna og samskipti við viðskiptavini • Vinna við hönnun forsteyptra eininga og gerð verkteikninga fyrir framleiðsludeild • Þátttaka í gerð burðavirkisteikninga • Önnur tilfallandi verkefni í tækni- og hönnunardeild Menntunar- og hæfniskröfur • Menntun í byggingafræði, verkfræði, tæknifræði eða sambærileg menntun • Kunnátta og reynsla af tölvuteikningu í Autocad og Revit ásamt því að geta tileinkað sér hæfni í Impact hönnunarkerfi er nauðsynleg • Reynsla af gerð verkteikninga og byggingavinnu er mikill kostur • Mjög góð tölvukunnátta • Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri í starfi Mannauðsstefna Mikil áhersla er á faglega vinnu þar sem ferlar, árangur og stöðugar úrbætur eru hafðar að leiðarljósi. Við tilheyrum liðsheild þar sem metnaðarfullt starf er unnið af jákvæðu og ábyrgu fólki í anda jafnræðis og við viljum gera starfsfólki okkar kleift að samhæfa vinnu og ‡ölskylduábyrgð. Aðstoðarmaður byggingarfulltrúa Rangárþing eystra auglýsir laust til umsóknar starf að- stoðarmanns byggingarfulltrúa hjá embætti skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra. Aðstoðarmaður starfar með byggingarfulltrúa við alla almenna meðferð byggingarmála samkvæmt lögum um mannvirki svo sem við móttöku og yfirferð séruppdrátta, úttektir, samskipti við umsækjendur, hönnuði, stofnanir og fleira. Um er að ræða 100% starf. Leitað er eftir öflugum einstaklingi sem er tilbúinn til þess að takast á við fjölbreytt og krefjandi starf. Rangárþing eystra hvetur jafnt konur sem karla til að sækja um starfið. Ráðið er í stöðuna frá og með 1. september 2021. Helstu verkefni: • Úttektir og eftirlit með byggingum og framkvæmdum • Yfirferð sérteikninga • Skráning mannvirkja, fasteigna og landeigna í skráningar- forriti Þjóðskrár • Umsagnir vegna rekstrar- og starfsleyfa • Skráningar í Mannvirkjagátt • Samskipti við hönnuði, byggingaraðila, stofnanir og íbúa • Ýmis önnur tilfallandi verkefni Menntun, reynslu og hæfniskröfur: • B.S/M.s próf svo sem í verkfræði, tæknifræði, byggingar- fræði, arkitektúr • Meistararéttindi í iðngrein æskileg • Reynsla á sviði byggingarmála skilyrði • Þekking á teikniforritinu Autocad eða sambærilegum forritum æskileg • Þekking á lagaumhverfi málaflokksins æskileg • Góð almenn tölvukunnátta skilyrði • Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri • Skipulagshæfileikar og nákvæm vinnubrögð • Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti • Jákvæðni í starfi og sjálfstæði í vinnubrögðum ásamt því að eiga auðvelt með að vinna í hópi Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðmundur Úlfar Gísla- son, skipulags- og byggingarfulltrúi á netfanginu ulfar@ hvolsvollur.is. Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum viðkom- andi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsóknum skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknir skulu sendar á netfangið ulfar@hvolsvollur.is Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknarfrestur er til og með 8. ágúst 2021. Lögmaður Embætti borgarlögmanns Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Starf lögmanns hjá embætti borgarlögmanns er laust til umsóknar. Í boði er krefjandi og fjölbreytt starf í starfsumhverfi þar sem reynir á góða alhliða þekkingu á flestum réttarsviðum lögfræð- innar. Áhersla er lögð á símenntun og miðlun þekkingar milli starfsfólks. Hjá embætti borgarlögmanns, sem er með aðsetur í Ráðhúsi Reykjavíkur, starfa átta lögmenn auk skrifstofustjóra. Um er að ræða fullt starf og greiðast laun samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Stéttarfélags lögfræðinga. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ebba Schram borgarlögmaður í gegnum netfangið ebba.schram@reykjavik.is. Umsóknarfrestur er til 9. ágúst nk. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Umsóknum skal skila rafrænt á vefsíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is. Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Menntunar- og hæfniskröfur: • Embættispróf eða meistarapróf í lögfræði • Málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi • Reynsla af málflutningi æskileg • Þekking á stjórnsýslurétti æskileg • Þekking á opinberum innkaupum og/eða útboðs- og verk- takarétti er kostur • Góð færni til framsetningar máls í ræðu og riti • Skipuleg og fagleg vinnubrögð • Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum • Lipurð og færni í samskiptum Helstu verkefni: • Lögfræðilegar álitsgerðir og ráðgjöf til borgarstjórnar, borgarráðs, innkaupa- og framkvæmdaráðs, borgarstjóra, stofnana og fyrirtækja Reykjavíkurborgar • Undirbúningur dómsmála og málflutningur • Meðferð stjórnsýslumála • Meðferð innkaupamála • Samningagerð • Fyrirsvar vegna skaðabótakrafna sem beint er gegn Reykja- víkurborg • Uppgjör slysabóta á grundvelli kjarasamninga Þjónustumaður Fullt starf Iðnaðarmenn Viðgerðarmenn óskast í verkefni á Akureyri sem og í erlend verkefni. Umsóknarfrestur til 6. ágúst. Sjá nánar á Job Húsasmiður Fullt starf Iðnaðarmenn Húsasmiður eða húsgagnasmiður óskast til starfa. Næg verkefni framundan. Umsóknarfrestur til 8. ágúst. Sjá nánar á Job 2 ATVINNUBLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.