Fréttablaðið - 07.07.2021, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 07.07.2021, Blaðsíða 10
 Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Ástkær eiginmaður minn, faðir, afi, langafi og tengdafaðir, Steindór Ingimar Steindórsson lést í faðmi fjölskyldunnar á Landspítalanum þann 2. júlí. Útförin fer fram í Grafarvogskirkju þann 12. júlí kl. 15. Sólveig Sigrún Sigurjónsdóttir og fjölskylda. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Jóhann Guðmundsson fv. flugvélstjóri, lést á líknardeild Landspítala sunnudaginn 4. júlí Laufey Hrefna Einarsdóttir Ingvar Ágúst Jóhannsson Catherine Beyer Jóhannsson Einar Marinó Jóhannsson Sigríður Jakobsdóttir Þorkell Jóhannsson Anna Sólveig Árnadóttir barnabörn og barnabarnabarn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Baldur Sigurðsson Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði, lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut 2 júlí sl. Sigríður Ingvarsdóttir og fjölskylda Elsku mamma okkar, tengdamamma, amma, systir, mágkona og frænka, Sigríður H. Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur, Orkanvinden 7a, Kristinehamn, Svíþjóð. lést á sjúkrahúsi í Karlstad, Svíþjóð aðfaranótt 2. júlí sl. Útför fer fram í Kristinehamn. Gerður Olofsson Daði Valdimarsson Lotta Fagrell Johan Fagrell Susanna Petterson Mattias Petterson og barnabörn. Bára Stefánsdóttir Ingibjörg Stefánsdóttir Smári Sigurðsson Hrafnhildur Stefánsdóttir Kári Í. Guðmann Halldóra Stefánsdóttir Grímur Laxdal Sigríður Jónsdóttir og systkinabörn hinnar látnu. Ásdís Jóelsdóttir gaf nýlega út bókina Sjálfbærni í textíl. Bókin er miðuð að þeim sem vilja endurskoða neysluhegðun sína og efla sjálfbæran lífsstíl. anrartomas@frettabladid.is „Ég er að reyna að opna augu fólks fyrir því að það sé ekki nóg að tala um hlut­ ina, maður þarf líka að hugsa af hverju þeir urðu eins og þeir eru,“ segir Ásdís Jóelsdóttir, rithöfundur og lektor í textíl við Háskóla Íslands. Ásdís gaf nýlega út bókina Sjálf bærni í textíl, sem hugsuð er fyrir alla þá sem vilja endurskoða neysluhegðun sína og ef la sjálf bæran lífsstíl með aðferðum textílgreinar­ innar. Bókin er yfirgripsmikil og fer meðal annars inn á sagnfræði, siðfræði og fagurfræði textílheimsins. Bókinni er skipt í þrjá hluta, neyslu, nýtingu og nýsköpun, sem tala sterkt inn í tíðar­ anda fatamenningar í heiminum í dag. Fyrsti hlutinn, neysla, segir Ásdís að snúi að endurhugsun. „Það er ekki hægt að takast á við þá textílsóun sem á sér stað í heim­ inum nema maður þekki til sögunnar, umhverfisþátta og markaðsaf la tísk­ unnar sem liggja þar að baki,“ segir hún. „ Í dag erum við að upplifa afleið­ ingar þess hvernig okkur var stýrt inn í offramleiðslu og ofneyslu. Það er mikil­ vægt að skapa ákveðna grunnþekkingu áður en tekist er á við næstu skref í sjálf­ bærninni.“ Ábyrgð og réttindi Ásdís segir að þótt við eigum ákveðin réttindi sem neytendur þá fylgi því líka viss ábyrgð. „Siðferðisvitund neyt­ andans í dag er orðin mun meiri en hún var og fólk er farið að gera mun meiri kröfur,“ segir hún. „Þessi bók er hugsuð til þess að vekja athygli á þessum málum og hvað sé hægt að gera.“ Í bókinni fer Ásdís einnig í saumana á þáttum á borð við hraðtísku og hæg­ tísku, siðræna framleiðslu og vottuð umhverfismerki. Þá fer hún einnig í per­ sónulegan stíl og fyrirhyggju, hvað þurfi að hafa í huga þegar föt eru keypt. „Það er mikilvægt að fólk átti sig á því hvað það sé sem það þarf í raun og veru,“ segir hún. „Við kaupum fullt af fötum en endum svo oft á að nota bara brot af þeim.“ Í síðari hluta bókarinnar fer Ásdís inn á praktískari mál á borð við fatastærðir, umhirðu á textílafurðum og f lokkun. „Þarna er ég að reyna að búa til ákveðinn þekkingargrunn áður en næsta skref er tekið, það er að búa eitthvað til.“ Í bókinni kallast ólíkar textílaðgerðir á við mismunandi heimaunnin verkefni sem má leysa með einföldum aðgerðum sem allir eiga að geta tileinkað sér. „Þar er til dæmis farið í hvernig á að gera við saumsprettur, skipta um rennilás, gera efnisbætur og annað.“ Ásdís segir að endurvirkni og nýsköp­ un með endurnýtingu að leiðarljósi sé nútímaleg hugsun. „Að búa til eitthvað í höndunum þar sem hugur og hönd hafa unnið saman hvetur bæði til nýtni og nægjusemi og eykur andlega ánægju.“ ■ Fer í saumana á sjálfbærni Ásdís hefur margra áratuga reynslu af vinnu með textíl. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Í bókinni má finna ýmis verkefni sem hægt er að leysa á skapandi hátt Við kaupum fullt af fötum en endum svo oft á að nota bara brot af þeim. 1211 Suðurlandsskjálfti, margir bæir hrynja og 18 manns farast. 1307 Játvarður II. verður konungur Englands. 1456 Dómstóll skipaður af Kalixtusi III. páfa fellir dóminn yfir Jóhönnu af Örk úr gildi og lýsir hana saklausa. 1637 Hornsteinn er lagður að Sívalaturni í Kaupmanna- höfn. 1874 Á Akureyri er vígður Gudmannsspítali, sem er til húsa í Aðalstræti 14, en það er elsta tvílyfta íbúðar- hús á Íslandi, reist 1836. 1915 Konur fagna nýfengnum kosningarétti sínum með hátíðarfundi á Austurvelli. Sama dag stofna þær Landspítalasjóð Íslands. 1922 Lúðrasveit Reykjavíkur er stofnuð upp úr lúðra- félögunum Hörpu og Gígju og er hún elsta starfandi lúðrasveit á Íslandi. 1941 Bandaríkjaher kemur til landsins og tekur við vörnum þess af Bretum. Síðustu hermennirnir fara héðan í apríl 1947. 1966 U Thant, aðalritari Sameinuðu þjóðanna kemur í tveggja daga heimsókn til Íslands. 1974 Kútter Sigurfari er settur á byggðasafnið í Görðum á Akranesi. 1974 Vestur-Þýskaland vinnur heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu þegar lið landsins sigrar Hollendinga 2-1. 1978 Salómonseyjar fá sjálfstæði frá Bret- landi. 1983 Ray Charles skemmtir á Broad- way ásamt 25 manna hljómsveit. 2005 Fjórar sjálfsmorðs- sprengjuárásir verða 56 manns að bana í London. 2007 Heimsmet er slegið í vatnsbyssuslag á Landsmóti UMFÍ í Kópavogi. Fyrir þessu standa SPK og Útvarpsstöðin FM957. Merkisatburðir Ray Charles. TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 7. júlí 2021 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.