Fréttablaðið - 07.07.2021, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 07.07.2021, Blaðsíða 26
Teikningarnar kveikja hugmyndir um óstöð- ugleika og hringrás. Páll Haukur. Sýningin Stellingar – línulaga frásagnir, stendur yfir í BERG Contemporary á Klapparstíg. kolbrunb@frettabladid.is Meðal þeirra sex listamanna sem eiga verk á sýningunni eru Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir og Páll Haukur. Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir sýnir gólfverk, unnið með streng og litaðri fúgu, svo úr verður stór teikn­ ing á gólfinu. Verkið heitir Teikning. „Þetta er endurgerð af verki sem ég setti fyrst upp árið 2015 í Hafnar­ húsinu. Nú er ég að heimsækja verk­ ið aftur og endurgeri það í nýju rými og með aðeins breyttum efniviði. Svört snúra er teikning í rýminu og til viðbótar nota ég efni sem ég hef notað mikið undanfarið, sem er lituð fúga, sem er hinn fasti punktur verksins,“ segir Áslaug. „Hugsunin er einföld. Línan liggur laus á gólfinu og þræðist í gegnum fúguna sem er mótuð í eins konar hóla eða hrúgur, ef það kæmi vindgustur eða fólk gengur fram hjá verkinu og rekst kannski aðeins í það gæti línan færst til og teiknað sig upp á nýtt. Svo eru hinir föstu punktar sem eru í bláum og grænum tónum og út í svart og hvítt sem vísa enn fremur í jörð og þyngd á móti hinum loftkennda og flæðandi streng. Þannig að verkið er bæði hverfult og stöðugt.“ Páll Haukur sýnir þrjár stórar teikningar og þrjár minni. „Ég kalla þær haustteikningar og í grunninn eru þær myndbirting lausra lauf­ blaða sem er dreift um myndflötinn. Mér finnst haustið sem myndlíking vera mjög áhugavert. Í teikningun­ um ríkir ákveðin upplausn og lauf­ blöðin, þegar þau eru fallin af trénu, mynda ástand þar sem heildin hefur leyst upp í parta sína. Teikningarnar kveikja hugmyndir um óstöðugleika og hringrás þar sem ægir saman táknmyndum náttúru og mennskra táknkerfa.“ Um þessa samsýningu segir Áslaug: „Það er virkilega gaman að sýna með þessum hópi listamanna og upplifa listaverkin saman í heild undir yfirskrift sýningarinnar.“ „Maður er upp með sér að vera í félagsskap svona flottra listamanna. Þetta er fólk sem maður hefur litið upp til lengi,“ segir Páll. Þess má geta að verk eftir Pál má sjá á þremur öðrum sýningum; samsýningu í Listasafni Reykjavíkur, samsýningu í Verksmiðjunni Hjalteyri og í Nes­ kirkju. n Línan og laus laufblöð Áslaug og Páll Haukur við gólfverk hennar og teikningar hans. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Listamennirnir sem eiga verk á sýningunni Áslaug Íris Katrín Friðjóns- dóttir, Hanna Dís Whitehead, Haraldur Jónsson, Finnbogi Pétursson, Páll Haukur og Sirra Sigrún Sigurðardóttir. kolbrunb@frettabladid.is Ásgrímur Sverrisson kvikmynda­ gerðarmaður leiðir Bíógöngu sem Borgarsögusafn Reykjavíkur stend­ ur fyrir fimmtudaginn 8. júlí kl. 20. Geng ið verðu r u m miðbæ Reykjavíkur og fjallað um upphaf reglulegra kvikmyndasýninga á Íslandi í Fjalakettinum árið 1906 en þar voru íslenskar kvikmyndir settar á dagskrá strax í upphafi. Gengið verður hjá og sagt frá gömlum kvikmyndahúsum eins og Nýja bíó og Gamla bíó en einnig verður komið við í Austurstræti þar sem sagt verður frá senu úr Skytt­ unum eftir Friðrik Þór Friðriksson og ýmislegt f leira til. Gangan hefst við Borgarbóka­ safnið í Grófinni kl. 20 og eru allir velkomnir. n Bíóganga með Ásgrími Sverrissyni Ásgrímur verður með bíógöngu á fimmtudag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Birgitta skrifar jólaleikrit um Láru og Ljónsa. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI kolbrunb@frettabladid.is Birgittu Haukdal er margt til lista lagt. Eftir að hafa verið í sviðsljós­ inu í áraraðir sem ein helsta popp­ stjarna landsins eignaðist hún nýjan aðdáendahóp með sögum sínum um Láru og Ljónsa. Nú er komið að því að Lára og Ljónsi fari á svið í Þjóðleikhúsinu og hefur Birg­ itta ásamt Góa, skrifað nýtt leikrit sem verður frumsýnt fyrir næstu jól. Þar segir af jólaævintýrum Láru og Ljónsa. Birgitta mun einnig semja tónlistina við verkið. Verkið gerist á aðventunni og jólasveinarnir eru farnir að tínast til byggða og gefa börnum í skóinn. En eina nóttina hverfur Ljónsi, uppá­ halds mjúkdýrið hennar Láru sem er enginn venjulegur bangsi. Hvað getur hafa orðið af Ljónsa? n Birgitta Haukdal og Gói skrifa jólaleikrit um Láru og Ljónsa stod2.is 14 Menning 7. júlí 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 7. júlí 2021 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.