Fréttablaðið - 07.07.2021, Blaðsíða 2
Þingið komið aftur í frí eftir stuttan vinnudag
Vigdís Birna, rauðhærðasti
Íslendingurinn árið 2021,
segist stolt af rauða hárinu.
Hún skemmti sér konunglega
á Írskum dögum á Akranesi
síðustu helgi.
ingunnlara@frettabladid.is
SAMFÉLAG Vigdís Birna, 13 ára
stúlka, er rauðhærðasti Íslendingur
inn árið 2021. Vigdís sigraði í keppni
rauðhærðra sem var haldin í tuttug
asta og annað sinn á Írskum dögum
á Akranesi.
Rauður er sjaldgæfasti háralitur í
heimi og er algengastur meðal Vest
urlandabúa. Tíðnin er hæst á Írlandi
og Skotlandi og því viðeigandi að
finna rauðhærðasta Íslendinginn á
Írskum dögum. Aðeins 6 til 8 pró
sent Íslendinga eru náttúrulega
rauðhærðir.
Vigdís Birna býr á Akranesi hjá
mömmu sinni, Úrsúlu Guðmunds
dóttur, og á Hvítárvöllum í Borgar
firði hjá pabba sínum, Arnþóri Ólafs
syni. Rautt hár er arfgengt og gengur
rauða hárið í báðar ættir Vigdísar
en pabbi hennar er rauðhærður og
einnig amma hennar í móðurætt,
Úrsúla Árnadóttir sóknarprestur.
Vigdís segist stolt af rauða hárinu
sem tryggði henni fyrsta sætið.
„Það var geggjað að vinna. Mig
hefur stundum langað til að breyta
um lit en mér finnst samt gott að
vera rauðhærð,“ segir Vigdís í samtali
við Fréttablaðið. „Það er skemmtilegt
að fá hrós um hárið manns,“ bætir
hún við og hlær.
Vigdís skemmti sér konunglega á
hátíðinni, skemmtilegast var karni
valið á Merkurtúni.
Keppnin var haldin í tuttugasta og
annað sinn og voru alls tólf rauðkur
skráðar til leiks. Helga Dís hlaut
annað sæti og Rúrik Logi það þriðja
og fengu þau fengu gjafabréf frá
Frystihúsinu í verðlaun. Vigdís hlaut
í verðlaun 50 þúsund króna gjafabréf
frá Icelandair. Hún skemmti sér kon
unglega á írskum dögum og kíkti í öll
tækin á Merkurtúni.
Stolt af rauða hárinu
Fríða Kristín Magnúsdóttir við
burðastjóri hjá Akraneskaupstað
segir hátíðina hafa gengið eins og í
sögu. Fríða er sjálf mikil bjartsýnis
manneskja og skipulagði hátíðina
með það í huga að öllum takmörk
unum yrði aflétt, sem var svo stað
fest viku fyrir hátíðina. Hún segir
keppnina vel sótta, enda má rekja
rautt hár Íslendinga til Kelta.
„Írskir landnámsmenn komu
hingað fyrst og þess vegna höldum
við írska daga,“ segir Fríða, en í
bókinni Akranes – saga og samtíð
er farið yfir sögu bræðranna sem
námu land á Skaganum.
„Þessir bræður voru Þormóður og
Ketill Bresasynir, bornir og barn
fæddir á Írlandi, en af norskum
ættum. Bresasynir námu Akranes
allt, Þormóður sunnan Akrafjalls
og Ketill norðan.“ n
Vigdís Birna
er 13 ára mær
sem fær rauða
hárið frá pabba
sínum og ömmu
í móðurætt.
MYNDIR/SUNNA
GAUTADÓTTIR
Rúrik Logi lenti í þriðja sæti.
Helga Dís hreppti annað sæti.
FAXAFEN 11, 108 REYKJAVÍK, S: 534-0534
WWW.PARTYBUDIN.IS
Allt fyrir veisluna á einum stað
Skraut, borðbúnaður, búningar og tækjaleiga
Fáninn er 131×188 cm og er áritaður
af Sveini Björnssyni, fyrsta forseta
lýðveldisins.
benediktboas@frettabladid.is
MINJAR Fáni með með eiginhandar
áritun Sveins Björnssonar, fyrsta
forseta lýðveldisins, kom til lands
ins í gær með nýjasta skipi Eimskips,
Brúarfossi, eftir siglingu frá Árósum.
Fáninn kostaði, samk væmt
danska uppboðshúsinu Bruun
Rasmussen, 11 þúsund og 500
danskar krónur eða 227 þúsund
íslenskar krónur þegar hann var
keyptur. Þrjú boð voru í fánann, sem
er annar tveggja með áritun af þessu
tagi og var gjöf forsetans á uppboð
til styrktar uppgjafahermönnum úr
síðari heimsstyrjöldinni. Vinafélag
Þjóðminjasafnsins, Minjar og saga,
átti hæsta boð og hreppti fánann.
Skipstjóri Brúarfoss, Jón Ingi Þór
arinsson, afhenti Stefáni Einari Stef
ánssyni, formanni Minja og sögu,
fyrir hönd stjórnar félagsins, fánann.
Í ágúst næstkomandi er stefnt að því
að Þjóðminjasafnið veiti fánanum
formlega viðtöku.
Vinafélag Þjóðminjasafnsins var
stofnað árið 1988. Meðal skilgreindra
verkefna þess er að af la safninu
merkra muna sem að áliti sérfræð
inga eru best varðveittir í safninu.
Þjóðfáninn með eiginhandar áritun
Sveins Björnssonar bætist senn í hóp
margra gripa sem félagið hefur áður
afhent safninu. n
Íslandsfáni Sveins kominn til landsins
benediktboas@frettabladid.is
VINNUMARKAÐUR Eftir að BBC
fjallaði um styttingu vinnuvikunn
ar hér á landi tóku aðrir fjölmiðlar
heims að elta ríkisfjölmiðilinn í
Bretlandi. Fréttir birtust meðal ann
ars í Rúmeníu, NýjaSjálandi, Kan
ada og Þýskalandi í gær. Þá gerðu
USA Today og CNBC frá Bandaríkj
unum sérinnslög um vinnuvikuna
og þykir heimsmiðlum hafa tekist
vel til hér á landi.
Hér innanlands hafa starfstéttir
þó lýst misjafnri reynslu af vinnu
styttingu og fjarrli lagi að einhugur
sé um hvernig eigi að innleiða hana.
Má þar nefna landamæraverði, lög
reglu og f leiri stéttir sem vinna
vaktavinnu. n
Vinnuvikan hér á
landi slær í gegn
Vinnuvika upp á fjóra daga hefur
vakið heimsathygli.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
Alþingi var kallað saman í miðju sumarfríi vegna mistaka í afgreiðslu frumvarps um fjármál stjórmálasamtaka og frambjóðenda. Hér sést Katrín Jakobsdóttir
í pontu. Þingfundi var slitið á þriðja tímanum og þingið mun ekki koma saman aftur fyrr en eftir þing kosningarnar 25. septem ber. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
2 Fréttir 7. júlí 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ