Fréttablaðið - 07.07.2021, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 07.07.2021, Blaðsíða 6
Lögmenn bandarískra tón­ listarfyrirtækja sem Jóhann Helgason stefndi vegna meints stuldar á laginu Söknuði, segja dómarann sem vísaði máli hans frá í Los Angeles hafa gert mistök með því að verða ekki við kröfu um að Jóhann greiddi 323 þúsund dali í málskostnað. gar@frettabladid.is DÓMSMÁL Málaferlin vegna laga­ stuldarmáls Jóhanns Helgasonar eru enn til meðferðar hjá áfrýj­ unardómstól í Kaliforníu. Fram hefur komið að dómari sem vísaði máli Jóhanns frá hafnaði kröfu and­ stæðinga hans í málinu um að hann greiddi 323 dala lögmannskostnað þeirra. Jóhann stefndi meðal annars norska lagahöfundinum Rolf Löv­ land og tónlistarfyrirtækjunum Universal og Warner fyrir meintan lagastuld með því að lagið You Raise Me Up frá árinu 2001 væri í raun lagið Söknuður sem Jóhann samdi og Vilhjálmur Vilhjálmsson söng inn á plötu árið 1977. Dómari féllst á málflutning and­ stæðinga Jóhanns um að sérfræði­ mat tónlistarfræðings sem vann skýrslu fyrir hann væri ónothæft því þar væri ekki nægilega sýnt fram á að lögin tvö ættu ekki sameigin­ legan grunn í þjóðlaginu Danny Boy, sem enginn ætti höfundarrétt að. Hins vegar hafnaði dómarinn fyrrnefndri málskostnaðarkröfu á hendur Jóhanni, því hann hafi verið í góðri trú er hann höfðaði mál sitt. Jóhann fyrir sitt leyti áfrýjaði frá­ vísuninni enda vill hann að málið fá efnislega meðferð fyrir kviðdómi. Andstæðingar hans áfrýjuðu hins vegar niðurstöðu dómarans um að hann þyrfti ekki að greiða máls­ kostnaðinn – sem á gengi dagsins í dag samsvarar ríflega 40 milljónum króna. Viðbúið er að enn frekari kröfur um greiðslur á hendur Jóhanni komi fram, verði dæmt gegn honum varð­ andi málskostnaðinn. Lögmenn tónlistarfyrirtækjanna hafa nú lagt fram lokagreinargerð sína fyrir áfrýjunardómstólnum og er þá næst á dagskrá þar að finna dagsetningu fyrir munnlegan mál­ flutning áður en áfrýjunarmálin tvö verða tekin til dóms. „Fyrst og fremst hefur stefnandi [Jóhann] ekkert svar við þeirri stað­ reynd að hann kynnti og setti fram sérfræðiskýrslu eftir tónfræðinginn Judith Finnell sem tókst ekki að útiloka óverndanlega þætti úr almannaeigu og öðrum fyrri lögum eins og krafist er," segja lögmenn­ irnir, sem kveða þetta stangast á við dómafordæmi bæði í Hæsta­ rétti Bandaríkjanna og í undirrétti Í New York. Aðrir dómstólar hafi ekki hikað við að verða við máls­ kostnaðarkröfum þeirra sem stefnt sé í málum þar sem þetta skilyrði sé ekki uppfyllt. Lögmenn tónlistarfyrirtækjanna segja dómarann á fyrra stigi máls­ ins hafa gert mistök er hann taldi Jóhann hafa höfðað mál sitt í góðri trú. Hann hafi þvert á móti vitað af sameiginlegum líkindum You Raise Me Up og Söknuðar við lagið Danny Boy sem sé utan höfundarréttar og í almannaeigu. „ Þ ót t k röf u r st e f na nd a n s [Jóhanns] séu ef til ekki svo lang­ sóttar að þær séu fáránlegar eða byggðar á ranghugmyndum þá eru nægar sannanir fyrir því í gögnun­ um að kröfur stefnandans voru aug­ ljóslega reistar á sandi, meðal ann­ ars vegna þess að stefnandi komst að því árum áður en hann höfðaði málið að öll tónlistarleg líkindi laganna stafa frá hinu vinsæla lagi í almannaeigu, Danny Boy," segir í greinargerð lögmanna Warner og Universal. Áður hefur komið fram að Jóhann og lögmaður hans hafna þessu alfarið og tónlistarfræðingurinn sem vann mat sitt fyrir Jóhann segir meiri líkindi milli You Raise Me Up og Söknuðar innbyrðis en milli hvors lagsins fyrir sig og Danny Boy. ■ Lögmenn krefjast þess að frávísunin standi og Jóhann greiði málskostnað Jóhann Helgason heldur enn í vonina um að lagastuldarmál hans komist fyrir kviðdóm og fái efnislega meðferð. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR thorgrimur@frettabladid.is SAMGÖNGUR Kynningarfundur á vegum Betri samgangna og Vega­ gerðarinnar fór fram í gær og þar kynntar stofnframkvæmdir sem fyrirhugaðar eru á næstu árum. Áætlað er að lokaáfangi Arnar­ nesvegar muni létta á umferð um Vatnsendaveg og þannig auka öryggi vegfarenda og stytta ferða­ tíma. Jafnframt standa vonir til þess að með fjölgun ferðaleiða muni umferð einnig léttast á Reykjanes­ braut og að vegurinn muni þannig hafa jákvæð áhrif á flæði umferðar. „Markmiðið er að koma almenn­ ingssamgöngum aftur upp í tólf pró­ sent eins og þær voru fyrr á árum. En eftir sem áður mun bílaumferð halda áfram að aukast og stærsta verkefnið verður áfram að glíma við bílaumferðina,“ segir Árni Matthie­ sen, stjórnarformaður Betri sam­ gangna. Árni segir að frá níunda áratugn­ um hafi bílaeign aukist með aukinni velmegun. Þá hafi höfuðborgar­ svæðið þanist út og vegalengdir sem fólk þurfi að fara hafi lengst. „Það hefur leitt til þess að almenn­ ingssamgöngur hafa kannski ekki haldið eins vel í þróunina og hefði þurft að gerast. Það sem við erum að gera með borgarlínuna hafa nágrannaþjóðir okkar verið að gera í tuttugu til þrjátíu ár,“ sagði Árni. Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, segir framkvæmdirnar langþráðar fyrir Kópavogsbæ enda muni létta á umferð um bæjar­ félagið. „Eins og staðan er núna eru gatna­ mót Breiðholtsbrautar og Vatns­ endavegar stíf luð á háannatíma. Biðtími þar er allt of langur og þessi tenging fyrir íbúa uppi í Vatnsenda og atvinnuhverfið þar bara algjör bylting fyrir okkur. Þá mun þetta gjörbreyta við­ bragðsf lýti neyðarbíla sem var algjörlega óviðunandi. Viðbragðs­ tíminn verður núna innan settra marka. Svo er þetta líka góð tenging fyrir allan Kópavog við byggðirnar til beggja hliða,“ segir Ármann. ■ Nýr Arnarnesvegur gæti létt á umferðartöfum   kristinnpall@frettabladid.is STRANDVEIÐ Heimastjórn Borgar­ fjarðar sendi áskorun til sjávarút­ vegsráðherra á nýjasta fundi sínum þar sem kallað er eftir aðgerðum til að koma í veg fyrir stöðvun strand­ veiða ef kvótinn klárast í ágúst. Um leið var kallað eftir því að fundin yrði lausn á strandveiðikerfinu til þess að tryggja öllum bátum lands­ ins 48 daga af veiðum. Mikilvægt sé að ráðstafa af la­ heimildum með slíkum hætti að hægt sé að tryggja að strand­ veiðar nýtist landinu öllu og bátar á svæðum þar sem veiðin gengur betur síðari hluta sumars geti veitt á þeim tíma sem af linn er hvað mestur og verðmætastur. Eins og staðan er núna lítur út fyrir að útgefinn strandveiðikvóti sum­ arsins muni að öllu óbreyttu ekki duga út ágústmánuð. Samkvæmt reglugerð sem unnin var í samstarfi við Fiskistofu er heildarkvótinn 11.100 tonn af óslægðum botnfiski. „Áður fyrr var landinu svæða­ skipt þegar kom að strandveiðum en það var ekki gallalaust. Svo var kerfinu breytt og var þá ákveðið að hver bátur fengi tólf daga í hverjum mánuði. Með því átti að gefa mönn­ um tækifæri á að stýra því betur hvenær það yrði farið út að veiða þegar aðstæður hentuðu betur. Á fyrsta ári reyndist kerfið vel en í fyrra var veiðin búin snemma og það stefnir allt í sömu niðurstöðu í ár,“ segir Eyþór Stefánsson, for­ maður heimastjórnar Borgarfjarð­ ar, aðspurður út í bókunina. „Á vestanverðu landinu er besti veiðitíminn fyrri hluta sumars á meðan það er í lok sumars hér. Núna erum við að sjá stærstu fiskana sem eru hvað verðmæt­ astir. Okkur þykir því ákveðin ósanngirni felast í því að það sé skellt í lás á austurhluta landsins þegar verðmætasti og besti af linn er til boða. Þetta kerfi er því betur sniðið að öðrum landshlutum og mætti endurskoða það eða tryggja að hluti kvótans sé enn til staðar í ágúst,“ segir Eyþór og tekur undir mikilvægi þessa atvinnugeira fyrir Borgarfjörð. „Þetta er ein helsta tekjulind hafnarinnar á Borgarfirði. Það er stutt á miðin og fyrir vikið koma aðkomubátar þegar af labrögðin eru orðin góð. Þá er maður hrædd­ ur um að það verði lítið eftir. ■ Skora á ráðherra að breyta úthlutun strandveiðikvóta Besti aflinn ætti að veiðast á næstu vikum á Borgarfirði. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN kristinnpall@frettabladid.i s SEYÐISFJÖRÐUR Byggðarráð Múla­ þings samþykkti á fundi sínum í vikunni að verða við beiðni LungA skólans um styrkveitingu með styrk upp á fjórar milljónir króna. Beiðni um styrkveitingu til næstu tveggja ára verður tekin síðar fyrir eftir umfjöllun á fræðslusviði samhliða fjárhagsáætlunargerð. Ákvörðunin var samþykkt samhljóða. Fram kemur á heimasíðu skólans að hann sé fyrsti listalýðskólinn á Íslandi og settur á laggirnar árið 2013. Kennt er í tveimur tólf vikna önnum á ári og er lögð áhersla á list, listamennsku og listsköpun. Var litið til þess að skólinn var nýlega viður­ kenndur sem lýðskóli þegar sam­ þykkt var að úthluta styrknum. ■ Listalýðskólinn fékk vænan styrk Dagur og Sigurður handsala samn- inginn í gær. MYND/AÐSEND benediktboas@frettabladid.is SAMGÖNGUR Sigurður Ingi Jóhanns­ son samgöngu­ og sveitarstjórnar­ ráðherra og Dagur B. Eggertsson borgarstjórinn í Reykjavík undir­ rituðu í gær yfirlýsingu um lagningu Sundabrautar. Stefnt er að því  að mannvirkið verði tekið í notkun árið 2031. Ríki og borg sammælast um það í yfir­ lýsingunni að Sundabraut verði lögð alla leið í Kjalarnes í einni sam­ felldri framkvæmd og að alþjóðleg hönnunarsamkeppni verði haldin um útlit Sundabrúar, verði hún fyrir valinu. Samkvæmt skýrslu starfs­ hóps um legu brautarinnar stóð að Sundabrú væri 14 milljörðum ódýr­ ari kostur en Sundagöng, miðað við frumkostnaðaráætlun. Sigurður segir að brúin gæti orðið kennileiti borgarinnar. „Brúin verður aðgengileg fyrir gangandi og hjólandi og verður kennileiti borgarinnar.“ ■ Áratugur í að ný Sundabraut rísi Eru nægar sannanir fyrir því í gögnunum að kröfur stefnandans [Jóhanns Helgasonar] voru augljóslega reistar á sandi. Úr greinargerð lögmannna Warner og Universal. 6 Fréttir 7. júlí 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.