Fréttablaðið - 07.07.2021, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 07.07.2021, Blaðsíða 8
Lögregla og dómstólar myndu gera sam- félaginu mikið gagn með því að hysja upp um sig buxurnar í þessum málaflokki. ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is n Halldór n Frá degi til dags Tryggjum betra líf og ráðumst í kraftmiklar og upp- byggilegar aðgerðir í loftslags- málum. Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur @frettabladid.is Brautirnar eru fáanlegar með mjúklokun Mikið úrval rennihurðabrauta frá Þýsk gæðavara. Skútuvogi 1h - Sími 585 8900 www.jarngler.is Stundum er því haldið fram að loftslagsbreytingar af mannavöldum séu falsfréttir, það sé uppspuni að mað- urinn geti haft áhrif á loftslagsbreytingar. Þetta er rangt. Það er brýnt að grípa til kraftmikilla aðgerða. En jafnvel þótt svo væri ekki þá munu slíkar aðgerðir styrkja efna- hag landsins og bæta lífsgæði okkar. Þær geta skapað þúsundir nýrra starfa og spennandi tækifæri fyrir ungt fólk við nýsköpun í matvælaiðnaði, tækniþróun og vísindum. Þær geta leitt til nýrra upp- finninga og vöruþróunar. Þær geta eflt nýjar og grænar útflutningsstoðir. Við getum ráðist í markvissa upp- byggingu innviða í ferðaþjónustu vítt og breitt um landið, í sátt við umhverfið og styrkt stöðu okkar sem loftslagsvænn áfangastaður, í harðnandi, alþjóðlegri samkeppni um ferðamenn. Loks geta þær stuðlað að umhverfisvernd og komið Íslandi á kortið sem forystu- ríki í loftslagsmálum. Þannig getum við verndað náttúruna, lífríkið og loftslagið og skapað um leið ný verðmæti sem græn og fjölskylduvæn ríkisstjórn myndi tryggja að rynni í vasa almennings, ekki einungis auðmanna. En hvað ef þetta væri allt til einskis, gæti einhver spurt: Hvað ef loftslags- breytingar af mannavöldum eru ósannindi eða mis- skilningur? Þá skiptir það í sjálfu sér engu máli því slíkar aðgerðir geta leitt til betra lífs fyrir venjulegt fólk, ekki bara í dag eða á morgun, heldur næstu kynslóðir líka. Þótt ég vildi óska þess að myndirnar sem við sjáum af loftslagshamförum víða um heim væru falsfréttir, sýna vísindin okkur annað. Og ef síðasti vetur hefur kennt okkur eitthvað þá er það mikilvægi þess að hlusta á sér- fræðinga, hlusta á vísindafólkið okkar. Hann kenndi okkur líka að með samhentu átaki getum við sigrast á erfiðum, alþjóðlegum áskorunum. En samhent átak í loftslagsmálum byggt á ráðleggjum okkar færustu vísindamanna krefst samhentrar ríkis- stjórnar sem setur loftslagsmálin í forgang. Tryggjum betra líf og ráðumst í kraftmiklar og uppbyggilegar aðgerðir í loftslagsmálum. Það verður aldrei til einskis. n Það verður aldrei til einskis Logi Einarsson formaður Sam- fylkingarinnar. toti@frettabladid.is Kötlulýsing Kötluþættir Baltasars Kor- máks hafa fengið gríðarlegt áhorf á Íslandi eftir að þeim var sleppt lausum í botnlaust af þreyingarstreymi Netflix og allir virðast hafa skoðanir á þáttunum, jafnvel án þess að hafa séð þá eða horft til enda. Katla markar enda ýmis tímamót í íslenskri sjónvarps- sögu en í öllu fjaðrafokinu hefur lítið farið fyrir þeim stórtíðindum að með svokall- aðri sjónlýsingu fengu blindir og sjónskertir í fyrsta skipti að upplifa nýtt sjónvarpsefni á íslensku almennilega um leið og alsjáandi. Mannréttindi og brot Sjónlýsing færir sjónræna upp- lifun í orð og þykir sjálfsögð víða um heim enda hreint og klárt mannréttindamál samkvæmt Evrópustöðlum og samningi Sameinuðu þjóðanna, sem Ísland er aðili að, sem kveða á um að fötluðu fólki sé tryggt aðgengi að menningarlegu umhverfi. Netflix tekur þessar skyldur greinilega hátíðlega en fyrsta sjónlýsingin fyrir sjónvarp á íslensku var samin, þýdd og tekin upp fyrir glæpaþættina Brot á Netflix en fylgdi þátt- unum ekki þegar RÚV frum- sýndi þá áður en þeir rötuðu á streymisveituna. n Mörg okkar finnum fyrir kvíða gagnvart þátttöku í nýju #metoo bylgjunni. Umræðan er svart-hvít og við vitum ekki hvort við eigum að tjá okkur eða þegja og hvort það sem okkur langar að segja muni mælast vel eða illa fyrir; hvort okkur verði ef til vill slaufað vegna orða okkar og afstöðu. Umræðan varðar ekki aðeins grundvallar- regluna um að maður sé saklaus uns sekt hans er sönnuð, heldur þurfum við líka að taka afstöðu til friðhelgi einkalífs og síðast en ekki síst tjáningar- frelsisins. Það væri stíf túlkun á tjáningarfrelsinu að meina fólki að greina frá of beldi sem það hefur orðið fyrir á þeim vettvangi sem því sýnist. Málin vandast hins vegar þegar fjallað er um meinta hegðun sem getur ekki talist til hegningarlaga- brots en er á engan hátt aðgreind frá ásökunum um kynferðisof beldi. Þær konur sem leitt hafa umræðuna á undan- förnum vikum og mánuðum virðast eiga tvíþætt erindi við þjóðina. Annars vegar hafa þær tekið lögin í eigin hendur vegna vantrausts til lög- gæsluyfirvalda og dómstóla þegar kemur að kyn- ferðisbrotum. Hins vegar gera þær kröfu um betri menningu í samskiptum kynjanna. Þessu tvennu; það er að segja meðferð kynferðisbrota og kröfu um betri menningu, er hins vegar ítrekað blandað saman þannig að öll hegðun karlmanna er f lokkuð til kynferðisbrota og þau sem fyrir henni verða eru skilgreind sem þolendur of beldis. Okkur sem störfum á fjölmiðlum er ákveðinn vandi á höndum í þessari umræðu. Að hluta til vegna þess að við þurfum að geta greint þarna á milli. Í fyrsta lagi getum við ekki tekið upp allar þær reglur sem settar hafa verið í umræðunni. Við getum til dæmis ekki lýst því yfir sem almennri reglu að við trúum þolendum. Fæstir fjölmiðlar myndu setja þolanda of beldis og þolanda dóna- skapar í sama f lokk eða telja þau jafn ólánsöm, enda alger firra að gera ekki greinarmun á þeim sem orðið hefur fyrir nauðgun og þeim sem Ingó veðurguð hefur blikkað á tónleikum. Í öðru lagi ber okkur að sýna umfjöllunarefnum tillitssemi, vanda upplýsingaöflun um þau og kanna sannleiksgildi frétta. Það f lækir vissulega umfjöllun um málið að margar þeirra frásagna sem deilt hefur verið á samfélagsmiðlum eru nafn- lausar og oft erfitt að sannreyna þær. Lögregla og dómstólar myndu gera samfélaginu mikið gagn með því að hysja upp um sig buxurnar í þessum málaflokki, þó ekki væri nema til þess að forða samfélaginu frá því að springa í loft upp við að reyna að leysa málin eftir frumskógarlög- málinu. Á meðan þurfum við hin að sýna hvert öðru smá þolinmæði og umburðarlyndi. Langflest viljum við uppræta kynferðisof beldi í samfélaginu. Við viljum líka að fólk komi almennt vel fram hvert við annað. Það eru hins vegar enn skiptar skoðanir um það í samfélaginu hvort við eigum að henda á haugana öllum þeim kerfum sem við höfum hingað til lagt traust okkar á, eða hvort þeim er enn viðbjargandi. n #metookvíði SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 7. júlí 2021 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.