Fréttablaðið - 07.07.2021, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 07.07.2021, Blaðsíða 17
Áfengissala ÁTVR í júní nam um 2.365 þúsundum lítra í samanburði við 2.400 þúsundir lítra árið 2020, sem er um 1,5 prósents minnkun í sölu á milli ára. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓTTAR Enn óvíst hvort áfengið skili ÁTVR hagnaði Rekstrartekjur ÁTVR námu um 45 milljörðum króna á árinu 2020 og jukust um ríflega 21 prósent á milli ára. Rekja mátti tæplega 35 milljarða til sölu áfengis og rúmlega 10 milljarða til sölu tóbaks. Hagnaður ÁTVR var 1,8 milljarðar króna sem eru töluvert meiri hagnaður en ríkisfyrirtækið hefur skilað á síðustu árum. ÁTVR hefur reglulega verið gagnrýnt fyrir að sundurliða ekki nánar kostnað vegna tóbakssölu annars vegar og áfengissölu hins vegar. Sundurlið- unin nær einungis til vörunotkunar. Þrátt fyrir takmarkaðar upplýsingar um skiptingu kostnaðar hafa verið vísbendingar um að tóbaks- sala ÁTVR hafi staðið undir töluverðu tapi af áfengishlutanum. Starfsemin sem snýr að dreifingu tóbaks í heildsölu er lítil í sniðum í samanburði við rekstur á tugum áfengisverslana um allt land. Um mitt síðasta ár greindi Fréttablaðið frá því að Ríkisendurskoðun hefði óskað eftir því við for- svarsmenn Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins að kostnaður við rekstur fyrirtækisins yrði sundurlið- aður eftir kostnaði vegna sölu á áfengi annars vegar og tóbaki hins vegar. Hins vegar ber ársreikningur ÁTVR fyrir síðasta ár ekki merki þess. Ég hef fulla trú á því að þetta framtak opni augu manna fyrir því að það er komið að endalokum núverandi fyrirkomulags á smá- sölu áfengis þar sem ríkið hefur allt í hendi sér. Andrés Magnússon, framkvæmda- stjóri Samtaka verslunar og þjónustu. „Sú eina breyting sem varð á, að því er varðar hagsmuni einokunar­ risans, var að neytendum stendur nú til boða þjónusta sem ÁTVR getur ekki keppt við og getur því ekki við unað. Ríkisversluninni dettur auðvitað ekki í hug að bregð­ ast við samkeppninni með hefð­ bundnum hætti svo sem eins og að lækka verð, bæta þjónustu eða auka úrval. Reyndar hefur stofnunin sagt að hún skipti sér ekki af verðum, það sé ákveðið af heildsölum,“ segir Arnar. Sala Santewines frá því að fyrir­ tækið hóf að afhenda áfengi beint af lager fyrir tveimur mánuðum síðan hleypur á hundruðum milljóna króna að sögn Arnars. Hann á þó ekki von á því að fyrirtækið sitt, eitt og sér, höggvi stórt skarð í afkomu ÁTVR. Vöruúrval Sante er byggt á gæðavínum, einkum frá Frakklandi, og bjórinn er ekki seldur í kippum heldur brettum. „Það má segja að vínbransinn sé tvískiptur. Annars vegar ertu með gæðavín sem bera uppruna sínum merki og hins vegar fjöldafram­ leidd vín sem eru pússuð til með kemískum efnum. Við erum ekki að keppa á þeim markaði,“ segir Arnar. Á endanum munu þó innlendar net­ verslanir hafa veruleg áhrif á rekstur ÁTVR. „Þetta er eins og þegar ákveðið var að leyfa matvörukaupmönnum að selja mjólk. Þá lá fyrir að enginn grundvöllur var fyrir sérstökum mjólkurverslunum á vegum rík­ isins. Þeim var bara lokað,“ segir Arnar. Áfengissala ÁTVR í júní nam um 2.365 þúsundum lítra í samanburði við 2.400 þúsundir lítra árið 2020 sem er um 1,5 prósenta minnkun í sölu. Í svari ÁTVR við fyrirspurn Markaðarins segir ríkisfyrirtækið að einkaréttur þess til að selja og afhenda áfengi í smásölu hérlendis sé ótvíræður. „ÁTVR hefur sent tolla­ og skatt­ yfirvöldum ábendingar um starf­ semina og jafnframt kært hana til lögreglu. Frekari viðbrögð eru vel hugsanleg, enda hefur ÁTVR lýst þeirri eindregnu afstöðu sinni að starfsemi vefverslananna standist ekki lög og æskilegt væri að fá stað­ festingu dómstóla á því,“ segir í svari ÁTVR. „Það er að mati ÁTVR ótíma­ bært að velta fyrir sér mögulegum afdrifum og afleiðingum hugsan­ legra lögbannsbeiðna.“ „Hrópandi mismunun“ Samtök verslunar og þjónustu hafa um langt skeið talað fyrir afnámi einkaleyfis hins opinbera á smá­ sölu áfengis. „Við teljum eðlilegast að ganga alla leið þannig að hægt sé að kaupa bjór og léttvín í búðum,“ segir Andr­ és Magnússon, framkvæmdastjóri samtakanna. „En það sem er aðkall­ andi í dag er að taka á þessari hróp­ andi mismunun sem er í gangi þegar kemur að netverslun með áfengi.“ Andrés vísar til þess að íslenskir neytendur geta keypt áfengi af erlendum netverslunum og fengið það sent til landsins en innlendum netverslunum er ekki heimilt að bjóða upp á slíka þjónustu. „Það er mismunun sem er algjörlega óásættanleg fyrir okkur sem berj­ umst fyrir frelsi í viðskiptum og jafnræði aðila á markaði.“ „Ég hef fulla trú á því að þetta framtak opni augu manna fyrir því að það er komið að endalokum núverandi fyrirkomulags á smá­ sölu áfengis þar sem ríkið hefur allt í hendi sér. Að sú stund sé runnin upp og ekki verði stigið til baka,“ segir Andrés. „Neytendur hafa nú fengið smjör­ þefinn af meira frjálsræði í smásölu áfengis og ég held að þeir myndu bregðast harkalega við ef stjórn­ völd tækju upp á því að banna þessa starfsemi eftir kosningar.“ Þá segir Andrés eftirtektar­ vert hvernig hagsmunahafar hafi brugðist við framtaki Sante. „Félag atvinnurekenda, sem eru hags­ munasamtök fyrir áfengisinnflytj­ endur, þegja þunnu hljóði um þessi mál. En þeir hrópa hins vegar á torg­ um þegar kemur að samkeppnis­ hindrunum á öðrum sviðum, eins og í landbúnaði og póstþjónustu. Þar fara hljóð og mynd ekki saman.“ ÁTVR óvisst hvernig bregðast eigi við Bíða stór smásölufyrirtæki á hliðar- línunni? „Það má gefa sér að fleiri fyrirtæki komi inn á þennan markað. Ég held að f lestir hafi á tilfinningunni að ÁTVR sé óvisst um hvernig það eigi að bregðast við. Fyrstu viðbrögðin voru að fara í hart og krefjast lög­ banns á starfsemi Sante. Það hefur ekki gengið eftir. Það hafa ekki verið neinar aðgerðir af hálfu sýslumanns eða lögreglunnar sem vitað er um. Eftir því sem tíminn líður þeim mun meira styrkjast menn í trú um að ekki verði til baka snúið,“ segir Andrés. Hvaða þýðingu hefur það fyrir ÁTVR ef starfsemi Sante getur hald­ ið áfram í óbreyttri mynd og fleiri fyrirtæki koma inn á markaðinn? „Það mun þýða einfaldlega að ÁTVR mun loksins þurfa að laga sig að breyttu samkeppnisumhverfi eins og önnur fyrirtæki þurfa að gera,“ segir Andrés. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra mælti fyrir frumvarpi um breytingar á áfengis­ lögum, svokallað brugghúsafrum­ varp, fyrr á þessu ári en samkvæmt því hefði smærri brugghúsum verið heimilað að selja öl í smásölu á fram­ leiðslustað þess. Frumvarpið dagaði uppi í meðförum Alþingis. Áður hafði dómsmálaráðherra mælt fyrir sambærilegu frumvarpi sem einnig liðkaði fyrir netsölu áfengis en það hlaut ekki afgreiðslu ríkisstjórnar. ÁTVR gagnrýnir brugghúsafrum­ varpið harðlega í 25 blaðsíðna umsögn. „Þrátt fyrir að fyrirliggj­ andi frumvarp láti ef til vill lítið yfir sér við fyrstu sýn yrði höggvið stórt skarð í rótgróna einkasölu íslenska ríkisins á áfengi með því að heim­ ila hér hagnaðardrifna smásölu áfengra drykkja. Með þeirri undan­ þágu sem frumvarpið gerir ráð fyrir myndu forsendur fyrir rekstri ÁTVR að öllum líkindum bresta.“ n Ríkisversluninni dettur auðvitað ekki í hug að bregðast við sam- keppninni með hefð- bundnum hætti svo sem eins og að lækka verð, bæta þjónustu eða auka úrval. Arnar Sigurðs- son, eigandi Santewines. MARKAÐURINN 5MIÐVIKUDAGUR 7. júlí 2021

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.