Fréttablaðið - 07.07.2021, Síða 26
Teikningarnar kveikja
hugmyndir um óstöð-
ugleika og hringrás.
Páll Haukur.
Sýningin Stellingar – línulaga
frásagnir, stendur yfir í BERG
Contemporary á Klapparstíg.
kolbrunb@frettabladid.is
Meðal þeirra sex listamanna sem
eiga verk á sýningunni eru Áslaug
Íris Katrín Friðjónsdóttir og Páll
Haukur.
Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir
sýnir gólfverk, unnið með streng og
litaðri fúgu, svo úr verður stór teikn
ing á gólfinu. Verkið heitir Teikning.
„Þetta er endurgerð af verki sem
ég setti fyrst upp árið 2015 í Hafnar
húsinu. Nú er ég að heimsækja verk
ið aftur og endurgeri það í nýju rými
og með aðeins breyttum efniviði.
Svört snúra er teikning í rýminu
og til viðbótar nota ég efni sem ég
hef notað mikið undanfarið, sem er
lituð fúga, sem er hinn fasti punktur
verksins,“ segir Áslaug. „Hugsunin er
einföld. Línan liggur laus á gólfinu
og þræðist í gegnum fúguna sem er
mótuð í eins konar hóla eða hrúgur,
ef það kæmi vindgustur eða fólk
gengur fram hjá verkinu og rekst
kannski aðeins í það gæti línan færst
til og teiknað sig upp á nýtt. Svo eru
hinir föstu punktar sem eru í bláum
og grænum tónum og út í svart og
hvítt sem vísa enn fremur í jörð og
þyngd á móti hinum loftkennda og
flæðandi streng. Þannig að verkið er
bæði hverfult og stöðugt.“
Páll Haukur sýnir þrjár stórar
teikningar og þrjár minni. „Ég kalla
þær haustteikningar og í grunninn
eru þær myndbirting lausra lauf
blaða sem er dreift um myndflötinn.
Mér finnst haustið sem myndlíking
vera mjög áhugavert. Í teikningun
um ríkir ákveðin upplausn og lauf
blöðin, þegar þau eru fallin af trénu,
mynda ástand þar sem heildin hefur
leyst upp í parta sína. Teikningarnar
kveikja hugmyndir um óstöðugleika
og hringrás þar sem ægir saman
táknmyndum náttúru og mennskra
táknkerfa.“
Um þessa samsýningu segir
Áslaug: „Það er virkilega gaman að
sýna með þessum hópi listamanna
og upplifa listaverkin saman í heild
undir yfirskrift sýningarinnar.“
„Maður er upp með sér að vera í
félagsskap svona flottra listamanna.
Þetta er fólk sem maður hefur litið
upp til lengi,“ segir Páll. Þess má geta
að verk eftir Pál má sjá á þremur
öðrum sýningum; samsýningu í
Listasafni Reykjavíkur, samsýningu
í Verksmiðjunni Hjalteyri og í Nes
kirkju. n
Línan og laus laufblöð
Áslaug og Páll Haukur við gólfverk hennar og teikningar hans. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Listamennirnir sem eiga
verk á sýningunni
Áslaug Íris Katrín Friðjóns-
dóttir, Hanna Dís Whitehead,
Haraldur Jónsson, Finnbogi
Pétursson, Páll Haukur og
Sirra Sigrún Sigurðardóttir.
kolbrunb@frettabladid.is
Ásgrímur Sverrisson kvikmynda
gerðarmaður leiðir Bíógöngu sem
Borgarsögusafn Reykjavíkur stend
ur fyrir fimmtudaginn 8. júlí kl. 20.
Geng ið verðu r u m miðbæ
Reykjavíkur og fjallað um upphaf
reglulegra kvikmyndasýninga á
Íslandi í Fjalakettinum árið 1906
en þar voru íslenskar kvikmyndir
settar á dagskrá strax í upphafi.
Gengið verður hjá og sagt frá
gömlum kvikmyndahúsum eins
og Nýja bíó og Gamla bíó en einnig
verður komið við í Austurstræti þar
sem sagt verður frá senu úr Skytt
unum eftir Friðrik Þór Friðriksson
og ýmislegt f leira til.
Gangan hefst við Borgarbóka
safnið í Grófinni kl. 20 og eru allir
velkomnir. n
Bíóganga með Ásgrími Sverrissyni
Ásgrímur verður með bíógöngu á fimmtudag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Birgitta skrifar jólaleikrit um Láru og Ljónsa. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
kolbrunb@frettabladid.is
Birgittu Haukdal er margt til lista
lagt. Eftir að hafa verið í sviðsljós
inu í áraraðir sem ein helsta popp
stjarna landsins eignaðist hún
nýjan aðdáendahóp með sögum
sínum um Láru og Ljónsa. Nú er
komið að því að Lára og Ljónsi fari á
svið í Þjóðleikhúsinu og hefur Birg
itta ásamt Góa, skrifað nýtt leikrit
sem verður frumsýnt fyrir næstu jól.
Þar segir af jólaævintýrum Láru og
Ljónsa. Birgitta mun einnig semja
tónlistina við verkið.
Verkið gerist á aðventunni og
jólasveinarnir eru farnir að tínast til
byggða og gefa börnum í skóinn. En
eina nóttina hverfur Ljónsi, uppá
halds mjúkdýrið hennar Láru sem
er enginn venjulegur bangsi. Hvað
getur hafa orðið af Ljónsa? n
Birgitta Haukdal og Gói skrifa
jólaleikrit um Láru og Ljónsa
stod2.is
14 Menning 7. júlí 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 7. júlí 2021 MIÐVIKUDAGUR