Fréttablaðið - 11.09.2021, Qupperneq 2
Sögusviðið í nýrri bók sem
verðlaunarithöfundurinn og
prófessorinn Evan Fallenberg
er að skrifa er Grímsey. Fallen-
berg elskar land og þjóð eftir
að hafa komið fyrst hingað til
lands fyrir sex árum.
benediktboas@frettabladid.is
SAMFÉLAG „Fyrst þegar ég kom
hingað fyrir nokkrum árum vissi
ég einfaldlega að ég myndi elska
Ísland. Þegar ég komst að því að
Reykjavíkurborg byði rithöfundum
að búa í Gröndalshúsi ákvað ég að
koma og skrifa bókina hér. Það var
samt engin Íslandstenging þegar
ég lagði af stað með bókina. Hún
kom síðar,“ segir verðlaunarithöf-
undurinn og prófessorinn Evan
Fallenberg sem hélt af landi brott á
fimmtudag eftir mánaðardvöl hér
á landi.
Evan er að skrifa sína fjórðu
skáldsögu og án þess að gefa of
mikið upp segir hann að bókin snú-
ist um atvik sem gerist í Grímsey.
Afar fáar erlendar bækur eru með
Grímsey sem miðdepil sögunnar, en
allt þetta fæddist í heita pottinum.
Hvar annars staðar?
Leiðsögumaðurinn Draupnir
Rúnar Draupnisson sagði honum
frá eynni í heita pottinum og stað-
urinn, fólkið og staðsetningin fór
aldrei úr hugmyndabanka Evans.
„Eins og með nánast alla sem ég
hef kynnst hér á Íslandi kynntist
ég Draupni í sundlauginni. Hann
fer að tala um þessa ótrúlegu eyju
og stundum er það þannig að staðir
eða hugmyndir neita einfaldlega að
yfirgefa hugann.
Ég var að byrja á skáldsögu og það
var engin Íslandstenging. En allt í
einu röðuðust stjörnurnar þann-
ig að einn karakterinn fékk áhuga
á Íslendingasögunum þegar hann
var ungur drengur. Hann hoppar
upp í f lugvél til Íslands og endar í
Grímsey.
Árum síðar, út af því sem gerist
í Grímsey sem ég mun ekki fara
nánar út í, fetar annar karakter í
bókinni sömu slóð og vill sjá hvað
gerðist. Og þetta bara einhvern
veginn small og varð svo áreynslu-
laust.“
Hann segir að hann hafi átt ótrú-
lega tvo daga í Grímsey. Fólkið,
landslagið og sólarlagið hafi heillað
hann upp úr skónum. „Ég vildi helst
ekki fara,“ segir hann. „Þetta er ekki
saga um Grímsey, en það byggir
eiginlega allt á því sem gerðist í
eynni.“
Fyrsta bók Evans, Light Fell, hlaut
fjölmörg verðlaun innan hinsegin
samfélagsins. Önnur skáldsaga hans
When We Danced on Water kom út
2011 og The Parting Gift kom út
2018. Þá hefur hann þýtt fjölmargar
ísraelskar bækur yfir á ensku. n
Þetta er ekki saga um
Grímsey en það byggir
eiginlega allt á því sem
gerðist í eynni.
Evan Fallenberg,
rithöfundur
Fjárréttir hafnar víða um land
Það var mikið líf og fjör í Hrunarétt í Hrunamannahreppi nálægt Flúðum í gær. Þar var um 5.000 fjár smalað. Þessi ungi maður lét sitt ekki eftir liggja í smala-
mennskunni. Fjárréttir hefjast almennt í byrjun september og standa yfir þar til í október. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Plottið um Grímsey fæddist
í heitu pottunum í borginni
Grímsey er staður töfra og þar gerast atvik í nýjustu skáldsögu rithöfundarins
Evans Fallenberg. Hann varði tveimur dögum í eynni. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
TILKYNNING
frá landskjörstjórn
Landskjörstjórn tekur framboðslista sem bornir eru fram við
alþingiskosningar 25. september 2021 til meðferðar og afgreiðslu
á fundi þriðjudaginn 14. september næst komandi kl. 12 á 2. hæð
í Austurstræti 8-10 í Reykjavík (gengið inn frá Vallarstræti).
Umboðsmenn stjórnmálasamtaka sem bjóða fram lista eiga
rétt á að vera viðstaddir fundinn, sbr. 40. gr. laga nr. 24/2000,
um kosningar til Alþingis.
Reykjavík, 10. september 2021.
Landskjörstjórn.
bth@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Í byrjun september voru
tæplega 1.500 íbúðir til sölu á land-
inu öllu samkvæmt tölum fasteignir.
is. Í maí í fyrra voru um 4.000 íbúðir
á söluskrá.
Fjöldi auglýstra fasteigna hefur
dregist saman í öllum landshlutum
nema á Norðurlandi vestra, að því er
kemur fram í skýrslu Húsnæðis- og
mannvirkjastofnunar, HMS.
Mestur samdráttur hefur orðið í
fjölda íbúða til sölu í fjölbýli á höfuð-
borgarsvæðinu. Þær eru nú innan við
500 en voru flestar rúmlega 1.800 í
maí í fyrra. Samdrátturinn nemur
72 prósentum. Lítið framboð hús-
næðis og þyngri fjármögnun eru
meðal skýringa á minni umsvifum
á fasteignamarkaði.
Í nýlegri úttekt Fréttablaðsins kom
fram að í sumum hverfum á höfuð-
borgarsvæðinu er nánast uppselt
og mikil barátta um flestar eignir
sem koma á markað. Nánast allar
nýbyggingar á markaði hafa selst
undanfarið. Meðal skýringa er ásókn
íbúa í nágrannasveitarfélög höfuð-
borgarsvæðisins.
Í skýrslu HMS segir að á höfuð-
borgarsvæðinu hafi velta á mark-
aðnum dregist saman um 13,4 pró-
sent í júlí. n
Aðeins 1.500 íbúðir til sölu á landinu
Fjöldi fasteigna á sölumarkaði er af
mjög skornum skammti.
benediktboas@frettabladid.is
COVID -19 Í ágústmánuði sinnti
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
(SHS) 1.069 f lutningum á sjúkl-
ingum með Covid-19, þar af voru 40
flutningar á liggjandi sjúklingum.
Þetta kemur fram í svari Jóns Viðars
Matthíassonar slökkviliðsstjóra við
fyrirspurn Kolbrúnar Baldursdóttur,
borgarfulltrúa Flokks fólksins.
Kolbrún spurði hvort ekki væri
tímabært að SHS hætti verktöku í
sjúkraflutningum þar sem ítrekað
skorti á mannafla þegar stórbruna
eða mörg útköll ber að höndum.
Í svari Jóns Viðars segir að slag-
krafturinn yrði mun minni í stórum
verkefnum ef liðið væri einungis
mannað fólki sem sinnir eingöngu
lögbundnum verkefnum. Í dag sé
hægt að boða um 200 manns í stór-
útköll.
Þetta taldi Kolbrún heldur klén
svör, allt sé stærra í dag. „Segir í svari
að í dag sé hægt að boða um 200
manns í stórútköll. Það segir ekki
allt,“ segir í bókun hennar. n
Þúsund fluttir í
ágúst með Covid
Kolbrún Baldursdóttir, borgarfull-
trúi Flokks fólksins.
2 Fréttir 11. september 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ