Fréttablaðið - 11.09.2021, Page 12

Fréttablaðið - 11.09.2021, Page 12
Þetta er ekki lífshættu- legt nema fyrir þá sem eru mjög nálægt eld- stöðinni. Þorvaldur Þórðarson, eld- fjallafræðingur tsh@frettabladid.is ELDGOS „Það er alveg möguleiki, það gæti farið svo og jafnvel fleiri,“ segir Þorvaldur Þórðarson, eldfjalla- fræðingur hjá Jarðvísindastofnun Íslands, aðspurður um hvort lands- menn muni fá tvö eldgos árið 2021. Hann nefnir í því samhengi að ýmsir fræðimenn telji að eldstöðv- ar á borð við Heklu, Grímsvötn og Kötlu séu tilbúnar að gjósa. Síðast gaus í Öskju árið 1961 og segir Þorvaldur það hafa verið meðalstórt basaltgos sem bjó til allmyndarlegt hraun og var með fal- lega kvikustrókavirkni. Hann viður- kennir þó að vísindamenn reynist ekki alltaf sannspáir enda séu eld- fjöll óútreiknanleg eins og sést hefur í gosinu í Geldingadölum. „Við náttúrlega er um með ákveðnar mælingar og eftirlit og reynum að lesa í eldfjallið út frá þeim. En svo náttúrlega eru okkar mælingar allar takmarkaðar og eld- fjöllum er svo sem alveg sama um okkar mælingar, þau eru ekkert að hegða sér í samræmi við þær.“ Ef eldgos hefst í Öskju á næstunni er ljóst að um stórviðburð yrði að ræða, því ekki hafa tvö eldfjöll gosið á Íslandi á sama árinu frá 1875, þegar gaus í Öskju og Sveinagjá. Þá voru einnig að minnsta kosti tvö eldgos árið 1823 þegar gaus í Eyja- fjallajökli og Vatnajökli. Þorvaldur segir ljóst að Askja sé búin að vera að undirbúa sig fyrir gos undanfarinn áratug. Ísinn á Öskjuvatni hafi bráðnað árið 2012 vegna aukinnar hveravirkni við botn vatnsins og berghlaup sem féll úr Suðurbotnum 2014 og olli stórri f lóðbylgju í Öskjuvatni, séu partur af aðdragandanum. Þá hafi mælst aukið hitaflæði í gegnum æðarnar undir niðri, sem þýði að hugsanlega sé kvika að færa sig til í kerfinu. „Það eru búin að vera teikn á lofti í næstum því níu ár að það sé eitt- hvað að fara að gerast í Öskju,“ segir hann. Ef gos kemur upp í Öskju segir Þorvaldur líkur á því að um yrði að ræða sprengigos. Askja er þekkt fyrir slík gos en þau eiga sér stað Gæti gosið tvisvar á árinu í fyrsta sinn frá 1875 Stjórnarráð Íslands Utanríkisráðuneytið Utanríkisráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki sem veittir eru úr Samstarfssjóði við atvinnulíf um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna vegna samstarfsverkefna í þróunarríkjum. Hefur fyrirtæki þitt áhuga á að leggja sitt af mörkum til að ná heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og á sama tíma sækjast eftir nýjum viðskiptatækifærum og aukinni samkeppnishæfni? Samstarfssjóðurinn skapar ný tækifæri fyrir íslenskt atvinnulíf Hlutverk sjóðsins er að hvetja til þátttöku og framlags atvinnulífsins til þróunarsamvinnu. Sjóðurinn er opinn fyrir umsóknum frá skráðum fyrirtækjum. Markmiðið er að draga úr fátækt og styðja við atvinnusköpun og sjálfbæran vöxt í fátækum ríkjum. Sérstök áhersla er lögð á atvinnusköpun kvenna og jákvæð umhverfisáhrif verkefna. Lista yfir gjaldgeng samstarfslönd er að finna á vefsíðu sjóðsins www.utn.is/samstarfssjodur. Umsóknir þurfa að berast í gegnum miðlæga þjónustugátt hins opinbera: www.island.is/samstarfssjodur fyrir lok 15. október 2021. Fyrirspurnir um sjóðinn skal senda á netfangið atvinnulif.styrkir@utn.stjr.is eigi síðar en 14. október. Allar nánari upplýsingar og verklagsreglur á www.utn.is/samstarfssjodur. Styrkir úr Samstarfssjóði við atvinnulífið um heimsmarkmiðin Frá könnunarflugi yfir Öskjuvatn árið 2014. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA þegar heit kvika kemst í snertingu við vatn og kælir hana svo hún verð- ur að ösku áður en hún kemst upp úr jörðu. Komist askan upp á yfir- borðið getur hún þeyst langar leiðir eins og gerðist í Öskjugosinu 1875 þegar aska dreifðist um allt Fljóts- dalshérað og Austfirði, frá Borgar- firði suður til Fáskrúðsfjarðar. Að sögn Þorvaldar geta slík gos valdið tjóni á gróðri og óþægindum, en þau eru þó sjaldnast lífshættuleg. „Þetta er ekki lífshættulegt nema fyrir þá sem eru mjög nálægt eld- stöðinni,“ segir hann. Loftslagsbreytingar hafa sjáanleg áhrif á landslag Öskju þegar bráðn- un aldagamals snjós undir gjósk- unni myndar pytti í jarðveginum. „Snjórinn sem var undir gjósk- unni og bara sat þar, var ekkert á neinni hreyfingu, hann er núna farinn að bráðna þannig það mynd- ast pyttir í gjóskulaginu. Þá getur maður séð meira en aldagamlan snjó sem er bara búinn að liggja þarna frá því að gjóskan féll 1875 og svo 1961.“ Hann viðurkennir að það sé spennandi að vera eldfjallafræð- ingur á tímum sem þessum „Þetta eru mjög spennandi tímar fyrir okkur.“ n Búið er að lýsa yfir óvissustigi vegna 7 sentimetra landriss í Öskju. Líklegasta skýringin er talin vera kvikusöfnun á 2-3 kílómetra dýpi. Eldfjalla- fræðingur segir möguleika á því að Íslendingar fái að upp- lifa tvö eldgos á sama árinu, í fyrsta sinn í eina og hálfa öld. arib@frettabladid.is UMHVERFISMÁL Bráðnun Græn- landsjökuls af völdum hnattrænnar hlýnunar gæti leyst út læðingi stóra jarðskjálfta og f lóðbylgjur. Þetta kom fram í erindi Bill McGuire, pró- fessors í jarðeðlisfræði við University College London, á Bresku vísindahá- tíðinni sem fram fór í vikunni. McGuire sagði að við bráðnun Grænlandsjökuls fari mikill þungi af jarðskorpunni, það geti leitt af sér stóra jarðskjálfta undan ströndum Grænlands. Slíkir skjálftar geti leitt til f lóðbylgna á borð við þá sem varð á Indlandshafi um jólin 2004 og olli dauða tæplega 230 þúsund manns. McGuire segir fordæmi fyrir þessu á Norðurslóðum, f y rir rúmum 8.200 árum hafi tuttugu metra há flóðbylgja skollið á Norð- urlöndin og Bretlandseyjar. „Við vitum ekki nóg um jarðlögin undan ströndum Grænlands til að geta nákvæmlega spáð fyrir um hvað gerist, en það er möguleiki á að stór flóðbylgja fari yfir Norður- Atlantshafið,“ sagði McGuire. Síðustu tvo áratugi hafa margir milljarðar tonna af ís bráðnað af Grænlandsjökli. Ís hefur einnig verið að hopa í Alaska, þar eru nú þegar stærri skjálftar að mælast. Í júlí síðastliðnum mældist þar skjálfti upp á 8,2, sá stærsti í Banda- ríkjunum í fimm áratugi. „Þegar kemur að áhrifum hnattrænnar hlýnunar á jarðskorpuna þá gæti Alaska verið kanarífuglinn í kola- námunni,“ sagði McGuire. n Bráðnun Grænlandsjökuls geti valdið stórum jarðskjálftum og flóðbylgjum Jökullinn á Grænlandi bráðnar hratt. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Jarðskjálfti af stærðinni 8,2 mældist fyrir utan strendur Alaska í lok júlí á þessu ári. 12 Fréttir 11. september 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.