Fréttablaðið - 11.09.2021, Blaðsíða 25
dyrum og stóð fólk í anddyri og fyrir
utan. Ein ástæða mætingarinnar var
sú að án þess að borið hefði mikið
á því hafði hún verið með neyðar-
síma Krafts í mörg ár og tekið á
móti símtölum veiks fólks og veitt
því stuðning. Hún hafði stundað svo
ofboðslega þjónustu, sem eftir á séð
hafði djúpstæð áhrif til þess að hún
lifði svo hamingjusömu og litríku
lífi eftir að hún greindist aftur.
Þegar ég áttaði mig á því hversu
gríðarleg áhrif hún hafði með því að
vera svona til staðar, varð það leið-
arstef fyrir mig. Þegar maður vinnur
í mínum geira er oft stutt í egóið, en
maður verður að muna að kjarninn
í leikhúsinu er þjónustan. Í vikunni
voru til að mynda fimm sýningar
á Rómeó og Júlíu sem við gáfum
ungu fólki. Okkur langaði að ná
inn í þennan aldurshóp sem hefur
þjáðst hvað mest í samkomutak-
mörkunum en minnst verið talað
um. Þetta er hræðilegt því þarna
eru allir týndu kossarnir og týndu
ástarsamböndin, hljómsveitirnar
sem urðu ekki til og vinaböndin
sem ekki sköpuðust.“
Þorleifur sökkti sér í vinnu eftir
systurmissinn og um hálfu ári síðar
heimsótti hann vin sinn heitinn,
Þorvald Þorsteinsson, til Los Ange-
les. „Þar fékk ég bara taugaáfall.“
Segja má að nú sé Þorleifur að
loka hring sem þarna hófst.
Sagði sig frá öllum samningum
„Ég er nú búinn að setja upp yfir 60
sýningar á fimmtán árum og verk-
efnin hafa stækkað og stækkað,“
segir Þorleifur og bætir við að
mikið f lakk fylgi verkefnunum.
„Meðfram þessu er maður svo alltaf
að reyna að halda öllum boltum á
lofti.“
Fyrir um tveimur árum stóð Þor-
leifur frammi fyrir ákvörðun, hann
hafði ráðið sig til eins virtasta leik-
húss Þýskalands og á borðinu voru
tilboð frá fleiri húsum. Á sama tíma
átti yngri sonurinn mjög erfitt upp-
dráttar í þýska skólakerfinu.
„Ég fann að ég þyrfti að taka
ákvörðun. Hann þyrfti mikið meiri
athygli og tíma núna og okkur
fannst við verða að fara með hann
heim. Ég var orðinn listrænn stjórn-
andi í leikhúsinu sem mig hafði
dreymt um að stjórna frá tvítugu.
Þetta er eitt best fjármagnaða leik-
hús Evrópu og þarna mótaðist að
mörgu leyti það nútímaleikhús sem
við þekkjum í dag.
Ég fann skýrt að þetta er allt bara
hjóm og að ég þyrfti að vera ann-
ars staðar núna. Ég sagði mig frá
öllum samningum og við komum
heim. Ég fann það um leið og ég
lenti hérna að það var eins og mér
væri stungið í samband. Ég held að
maður vanmeti oft hversu djúpstæð
tengsl okkar eru við íslenska nátt-
úru og þjóðarsál. Ég finn sterkt að
mitt hlutverk í dag sé að gefa af mér
hingað.“
Það sat ofboðslega í
mér að hafa ekki sagt
henni satt í okkar
síðustu samskiptum
þó það hefði ekki
breytt neinu um
útkomuna.
Fann ofboðslegan létti
„Það sem maður óskar sér tvítugur
er ekkert endilega það sem maður
er að leita að þegar maður kemst
þangað. En maður þarf kannski að
gera það til að átta sig. Á sama tíma
og ég stend á þessum tímamótum
er Magnús Geir að taka við Þjóð-
leikhúsinu og við hefjum samtal.
Ég fann að ég sem er búinn að vera
gestur í íslensku leikhúsi lengi,
hefði mikið fram að færa með víð-
tækri reynslu minni. Ég er alveg
enfant terrible í þýska samhenginu,
en hef fengið frípassa því ég er eins
konar aðskotahlutur, en hérna er
ég ekki að utan. Auðvitað er ógeðs-
lega erfitt að horfast í augu við að
það sem maður var að stefna að svo
lengi var ekkert endilega það sem
maður var að leitast eftir, hvorki
sem listamaður né sem manneskja.
En þegar ég þurfti að fókusera á son
minn fann ég að þá varð þetta ekk-
ert vandamál.
Mér eiginlega brá við hversu
auðvelt það reyndist. Ég fann svo
of boðslegan létti en hafði ekki
áttað mig á hvað ég hafði borið á
herðunum.
Metnaðurinn fór úr böndunum
Ég hafði að einhverju leyti fært
kraftinn úr sársaukanum yfir í
metnaðinn og hann fór kannski úr
böndunum. Ég var alltaf að reyna
að navígera á milli lífsins og listar-
innar og líka á milli metnaðarins
og sálarfriðarins. Kannski var ég
bara búinn að fullnægja metnaðn-
um. Ég var kominn á toppinn og
þurfti ekki að gera það tíu sinnum.
Þegar þú ert kominn upp á Everest
er nefnilega fullt af öðrum spenn-
andi tindum. Það er hugarfarið sem
þarf að endurstilla. Ég bý að því að
eiga frábæran feril en ég ætla ekki
lengur að láta það stjórna lífi mínu.
Þá er maður ekki jafn góður vinur
og maður ætti að vera né sonur,
eiginmaður eða pabbi.“
Þorleifur lýsir hugarfarsbreyt-
ingunni sem löngu ferli.
„Í bíómyndunum er þetta eitt
móment en reynsla mín af lífinu
er þannig að maður gerir upp-
götvunina og þá byrjar úrvinnslan.
Jung talar um að til þess þurfi hug-
rekki og visku og ef maður nær
að tengjast þessu tvennu mun
áfallið umbreytast í ljós og stækka
andann. Ég held að þetta sé algjör-
lega rétt. Það er ekkert sérstaklega
merkilegt að átta sig á einhverju.
Við vitum oft að við erum að gera
eitthvað rangt. Miklu erfiðara er að
fara í gegnum það að breyta vana
og væntingastjórnun okkar.“ ■
Opið virka daga frá kl. 9 - 18 og á laugardögum frá kl. 11 - 14.
Vefverslun okkar er opin allan sólarhringinn á sminor.is.
Uppþvottavél
SN 43EC16CS (svört)
13 manna. Sex kerfi og fjögur sérkerfi.
Hljóð: 44 dB.
Fullt verð: 149.900 kr.
Tilboðsverð:
119.900 kr.
Þvottavél
WM 14SO8DN
Tekur mest 8 kg og vindur upp í
1400 sn./mín. Kolalaus mótor. i-Dos:
Sjálfvirk skömmtun fyrir fljótandi
þvottaefni.
Fullt verð: 169.900 kr.
Tilboðsverð:
129.900 kr.
Tekur mest
8
Bakstursofn
HB 478GCB0S (svart stál)
Stórt ofnrými. Kjöthitamælir.
Matreiðslutillögur.
Brennslusjálfhreinsun.
Fullt verð: 179.900 kr.
Tilboðsverð:
139.900 kr.
Kæli- og frystiskápar
KG 33VVLEA (stál, kámfrítt)
KG 33V6WEA (hvítur)
Skúffa (hyperFresh) sem tryggir
ferskleika grænmetis og ávaxta lengur.
lowFrost-tækni. Hæð: 176 sm.
Fullt verð: 119.900 kr.
Tilboðsverð:
92.900 kr.
Tilboð í
september
Rakatæki,
Eva little
Lítið, öflugt og stílhreint.
Fullt verð: 21.900 kr.
Tilboðsverð:
16.900 kr.
Sandnes
Gólflampi
19702-01
Fullt verð: 13.900 kr.
Tilboðsverð:
7.900 kr.
Skoðaðu nýja
tilboðsbæklinginn
á síðunni okkar,
sminor.is!
Hjá okkur færðu þýsku gæðatækin frá
Siemens, Bosch og Gaggenau.Stór og smá heimilistæki, ljós, pallahitarar,
rakatæki og fleira í miklu úrvali.
Margar vörur á sérstöku tilboðsverði sem gildir út
september 2021 eða á meðan birgðir endast.
Tilboð
í s
ep
te
m
be
r
Helgin 25LAUGARDAGUR 11. september 2021 FRÉTTABLAÐIÐ