Fréttablaðið - 11.09.2021, Síða 26
Tuttugu ár liðin
frá árásinni sem
skók heiminn
George W. Bush, þáverandi forseti Bandaríkjanna, heyrði fyrst af árásinni frá starfsmannastjóra sínum, Andrew Card,
tveimur mínútum eftir að seinni vélin lenti á suðurturninum, en hann var þá staddur í grunnskóla á Flórída. MYND/AP
Á meðal þeirra sem létust þegar Tvíburaturnarnir hrundu voru um 400
slökkviliðs- og lögreglumenn sem voru við björgunarstörf. MYND/GETTY
Í dag eru tuttugu ár liðin frá hryðjuverkaárás-
um þann ellefta september, þegar nítján með-
limir hryðjuverkahópsins Al-Kaída rændu
fjórum farþegaflugvélum með það að mark-
miði að beita þeim sem vopnum til að ráðast
á Bandaríkin. Hátt í þrjú þúsund manns létust
í árásunum sjálfum og fjöldi fólks sem var á
staðnum glímir enn við afleiðingarnar í dag.
Fanndís Birna
Logadóttir
fanndis
@frettabladid.is
ætlunarverk sitt, en farþegum
vélarinnar tókst að stöðva þá, eftir
að hafa heyrt af árásunum á Tví-
buraturnana og Pentagon.
Var það ætlun hryðjuverka-
mannanna að ráðast á byggingar
sem táknuðu það sem Bandaríkin
stæðu fyrir, til að mynda alríkis-
þinghúsið í Washington eða Hvíta
húsið. Vélin brotlenti á akri í Penn-
sylvaníu skömmu eftir klukkan 10
og létust þar 40 manns um borð, auk
hryðjuverkamannanna.
„Við erum þess fullviss að þjóðin
stendur í þakkarskuld við farþega
United 93. Viðbrögð þeirra björg-
uðu lífum fjölmargra annarra, og
það getur verið að þau hafi bjargað
annað hvort þinghúsinu eða Hvíta
húsinu,“ segir í skýrslu nefndarinn-
ar sem fjallaði um árásirnar.
Glíma enn við afleiðingarnar
Árásirnar voru vissulega þungt
högg fyrir Bandaríkin í heild, en
verstar fyrir New York-ríki. Eftir
að Tvíburaturnarnir hrundu og
World Trade Center var í rúst, tók
við umfangsmikið björgunarstarf
og mikil óvissa.
Í upphafi var óttast að fleiri þús-
und manns sem voru í turninum
hefðu látist en endanleg tala lát-
inna var líkt og áður sagði rúmlega
2.750, þar á meðal voru ríflega 400
slökkviliðsmenn og lögreglumenn
sem létust við björgunarstörf.
Auk þeirra sem létust þann 11.
september hafa fleiri hundruð við-
bragðsaðila látist vegna sjúkdóma á
borð við krabbamein og öndunar-
færasjúkdóma árin eftir árásina
vegna magns eiturefna í loftinu sem
barst frá rústunum, meðan þau voru
við björgunarstörf.
Samkvæmt upplýsingum World
Trade Center-verkefnisins, sem
miðar að því að veita þeim sem
voru viðstödd heilbrigðisþjónustu
og aðhald, hafa rúmlega 2.900 við-
bragðsaðilar sem voru skráðir í
verkefnið látist. Þar að auki hafa 878
almennir borgarar sem voru hluti af
verkefninu látist.
Enn að bera kennsl á fórnarlömb
Tuttugu árum síðar er enn verið að
bera kennsl á líkamsleifar þeirra
sem létust í árásinni á World Trade
Center. Í gær greindi réttarmeinar-
fræðingur New York-borgar frá því
að þeim hefði tekist að bera kennsl
á líkamsleifar tveggja einstaklinga
með lífsýnarannsókn.
Um var að ræða 1.646. og 1.647.
einstaklingana sem borin hafa verið
kennsl á. Enn á því eftir að bera
kennsl á um 40 prósent þeirra sem
létust í árásinni.
„Fyrir tuttugu árum lofuðum við
fjölskyldumeðlimum fórnarlamb-
anna við World Trade Center að gera
hvað sem er, sama hversu langan
tíma það tekur, til að bera kennsl á
ástvini þeirra,“ sagði réttarmeina-
fræðingurinn Barbara A. Sampson.
Eins og á hverju ári munu fjöl-
skyldumeðlimir þeirra sem létust
við árásina koma saman á torginu í
World Trade Center við minnisvarð-
ann þar sem nöfn fórnarlambanna
eru rituð, í dag. n
Ellefti september 2001 er dagur
sem heimsbyggðin mun ef laust
seint gleyma, en þennan dag urðu
Bandaríkin fyrir einni mannskæð-
ustu hryðjuverkaárás sögunnar.
Íbúar New York bjuggust eflaust
ekki við því sem koma skyldi þegar
þeir vöknuðu um morguninn þenn-
an örlagaríka dag og afleiðingunum
sem áttu eftir að fylgja. Fyrr um
morguninn höfðu nítján hryðju-
verkamenn Al-Kaída farið um borð
í fjórar farþegaflugvélar með eitt
markmið, að ráðast á Bandaríkin
og allt sem þau stæðu fyrir, með
vélarnar að vopni.
Skömmu eftir klukkan átta um
morguninn hafði þeim öllum tek-
ist að komast fram hjá öryggisráð-
stöfunum á f lugvöllunum í Boston,
New Jersey og Washingtonborg.
Var þá hryðjuverkamönnunum
ekkert að vanbúnaði og náðu þeir
f ljótlega eftir f lugtak öllum fjórum
vélunum á sitt vald. Stefnan var
þá sett á Tvíburaturnana í World
Trade Center í New York og Penta-
gon, aðalbækistöðvar bandaríska
varnarmálaráðuneytisins í Virg-
iníu.
Við erum með nokkrar vélar
Að því er fram kemur í skýrslu
nefndar sem var skipuð til að fjalla
um árásirnar ellefta september og
kom út árið 2004, var flugmálayfir-
völdum skömmu fyrir klukkan hálf
níu ljóst að mögulega væri hryðju-
verkaárás í aðsigi. Viðvörunar-
bjöllur voru farnar að klingja hjá
flugumferðarstjóra Boston Centr-
al, þegar vél American Airlines 11
fylgdi ekki leiðbeiningum skömmu
eftir flugtak og slökkt var á ratsjár-
svara vélarinnar.
Klukkan 8.24 bárust f lugum-
ferðarstjórn eftirfarandi skilaboð
frá vélinni: „Við erum með nokkrar
vélar. Hafið bara hljótt, og það
verður í lagi með ykkur. Við erum
að snúa aftur á flugvöllinn.“
Klukkan 8.46 fylgdist heims-
byggðin með í skelfingu þegar
vél American Airlines 11, með 92
manneskjur um borð, f laug inn
í norðurturn Tvíburaturnanna.
Sautján mínútum síðar, klukkan
9.03, var ljóst að verið væri að ráðast
á Bandaríkin, þegar vél United Airl-
ines 175, með 65 manns um borð,
flaug inn í suðurturninn.
Staðan átti aðeins eftir að versna
þegar vél American Airlines 77
flaug inn í Pentagon klukkan 9.37.
Tvíburaturnarnir hrundu báðir og
létust um 2.750 manns í New York
þennan dag. Í Pentagon létust 184.
Í heildina létust nærri þrjú þúsund
manns í árásunum, þar á meðal
allir farþegar vélanna þriggja og
allir hryðjuverkamennirnir.
Mannfallið hefði verið meira ef
hryðjuverkamönnunum fjórum
sem reyndu að ná vél United Air-
lines 93 á sitt vald hefði tekist
26 Helgin 11. september 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ