Fréttablaðið - 11.09.2021, Síða 42
Gildi-lífeyrissjóður er þriðji stærsti lífeyrissjóður
landsins með um 26 þúsund lífeyrisþega,
52 þúsund greiðandi sjóðfélaga og yfir 246
þúsund einstaklingar eiga réttindi hjá sjóðnum.
Eignir sjóðsins um síðustu áramót námu um
764 milljörðum króna. Sjóðurinn rekur bæði
samtryggingardeild og séreignardeild. Hjá
sjóðnum starfa 40 starfsmenn.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
færni viðkomandi til að gegna starfinu.
Gildi-lífeyrissjóður leitar eftir sérfræðingi til starfa í eignastýringu sjóðsins. Leitað er að
metnaðarfullum einstaklingi með reynslu á fjármálamarkaði. Viðkomandi þarf að búa yfir góðri
greiningarhæfni, metnaði og vilja til að takast á við krefjandi og fjölbreytt verkefni. Næsti yfirmaður
er forstöðumaður eignastýringar.
Starfssvið:
• Uppbygging og utanumhald eignasafna sjóðsins.
• Greining markaða og fjárfestingakosta innanlands sem utan.
• Arðsemis- og áhættumat.
• Fjárfestingar og eftirfylgni þeirra.
• Upplýsinga- og skýrslugjöf.
• Samskipti við innlenda og erlenda aðila á fjármálamarkaði.
• Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf í viðskiptafræði, hagfræði, verkfræði eða sambærileg menntun.
• Reynsla af störfum á fjármálamarkaði.
• Próf í verðbréfaviðskiptum er kostur.
• Góð greiningarhæfni og geta til að setja fram niðurstöður með skipulögðum hætti
• Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð.
• Hæfni í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna í teymi.
• Góð íslensku og enskukunnátta í ræðu og riti.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Gildi hefur sett sér stefnu í starfsmanna- og jafnlaunamálum og hefur hlotið jafnlaunavottun.
Umsóknarfrestur er til og með 14. september nk.
Umsóknir óskast fylltar út á www.vinnvinn.is.
Eignastýring
Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarna dóttir
(audur@vinnvinn.is) og Hilmar G. Hjaltason
(hilmar@vinnvinn.is) hjá Vinnvinn.
Sérfræðingur -
Orkuviðskiptahópur
RARIK ohf. er opinbert hlutafélag í eigu
ríkisins með meginstarfsemi í dreifingu
raforku. Starfsfólk RARIK eru um 200
og starfsstöðvar 20.
RARIK gefur út um það bil 600.000
orkureikninga á ári. Því fylgir
þjónusta, úrvinnsla og eftirfylgni.
Raforkumarkaðurinn á Íslandi er í
örri þróun sem kallar á nýjar lausnir.
RARIK vinnur að stafrænum lausnum
tengdum orkuviðskiptum, en í því
felast tækifæri til starfsframa og
þekkingaruppbyggingu.
Nánari upplýsingar á www.rarik.is.
Menntunar- og hæfniskröfur:
RARIK ohf. óskar eftir að ráða sérfræðing inn í orkuviðskiptahóp upplýsingatæknideildar. Leitað er
að drífandi og metnaðarfullum einstaklingi til að vinna að rekstri og þróun á orkuviðskiptakerfi innan
Dynamics Ax. Um fullt starf er að ræða og er starfsstöðin í Reykjavík.
Nánari upplýsingar um starfið veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Helga Birna Jónsdóttir
(helga@intellecta.is) í síma 511 1225.
• Þátttaka í daglegum rekstri og þróun
orkuviðskiptakerfis
• Aðstoð við úrlausn mála þvert á starfsemi Rarik, s.s.
varðandi notendaþjónustu, greiningar og úrvinnslu,
ferlavinnu o.fl.
• Samskipti og upplýsingagjöf til ytri aðila og
starfsmanna RARIK
Helstu viðfangsefni og ábyrgð:
Umsóknarfrestur er til og með 27. september 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er
grein fyrir hæfni umsækjanda í starfið. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál. Við hvetjum bæði konur og karla til að sækja um.
• Háskólamenntun í viðskipta- eða tölvunarfræði
• Þekking og reynsla á sviði viðskipta og/eða
upplýsingatækni
• Þekking og áhugi á viðskiptagreind (BI) er æskileg
• Jákvæðni, lipurð í samskiptum og góðir
samstarfshæfileikar
• Nákvæm og skipulögð vinnubrögð
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
2 ATVINNUBLAÐIÐ 11. september 2021 LAUGARDAGUR