Fréttablaðið - 11.09.2021, Qupperneq 47
Blómstrar þú í skapandi
umhverfi og brennur
þú fyrir því að gera
heiminn að betri stað?
Reykjavíkurborg hefur blásið til sóknar með Græna planinu til að hraða stafrænni umbreytingu og bregðast við kröfu íbúa og fyrirtækja um bætta þjónustu á stafrænum miðlum.
Þjónustu- og nýsköpunarsvið leiðir stafræna umbreytingu á þjónustu borgarinnar og leitast við að vera boðberi frjórrar menningar, nýrra aðferða og framsækins hugsunarháttar.
Við leitum að mannlegum ofurhetjum til að skipa i-teymi stafrænnar vegferðar Reykjavíkurborgar en verkefninu er ætlað er að hraða stafrænni umbreytingu í þjónustu hins opinbera.
I-teymið beitir skapandi aðferðum svo nýta megi stafrænar lausnir enn frekar til að bæta þjónustu og þar með líf og lífsgæði borgarbúa. Tækni og kerfi spila þar stórt hlutverk, ekki síður
en fólk og ferlar. Um er að ræða ný störf, fjármögnuð af Bloomberg Philantrophies undir flaggi „Build back better“, til tveggja eða þriggja ára með möguleika á framlengingu. Verkefnið er
unnið í samstarfi við svið, skrifstofur og stofnanir Reykjavíkurborgar sem og Amsterdam í Hollandi, San Francisco og Washington í Bandaríkjunum og Mexikóborg í Mexikó og Bogotá í
Kólombíu.
Ef þú ert öflugur, lausnamiðaður og framsýnn einstaklingur sem hefur að bera góða skipulagshæfni, sýnir sjálfstæði og frumkvæði í starfi, ert afburða góður í samskiptum og að
mynda tengsl þvert á skipulagsheildir, þá ert þú réttur maður, kona eða kvár í i-teymið.
Umsóknarfrestur er til 26. september 2021. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið
störf sem fyrst, þó ekki seinna en í lok nóvember. Nánari upplýsingar um störfin
er að finna á umsóknarvef Reykjavíkurborgar.
Þjónustuleiðtogi
(100% starfshlutfall)
Þjónustuleiðtogi eflir faglegt starf þjónustu-
hönnunnar innar borgarkerfisins. Hann styður við og
tryggir samhæfingu í þjónustuhönnun milli ólíkra
einstaklinga og teyma sem vinna við stafræna
vöruþróun, og stuðlar að farsælum innkaupum og
innleiðingu á hugbúnaði í öðrum stafrænum verkef-
num. Þjónustuleiðtogi samræmir samstarf við svið
og stofnanir Reykjavíkurborgar um framkvæmd
þjónustu og þróun hennar.
Helstu verkefni:
→ Þróar og innleiðir ramma og tól til hagnýtingar
þjónustuhönnunar þvert yfir svið borgarinnar.
→ Leiðir fræðslu og þekkingarmiðlum um
þjónustuhönnun innan borgarinnar.
→ Er verkefna- og vörustjórnum, framleiðslu-
teymum, hönnuðum og öðrum til ráðgjafar.
→ Vinnur náið með UXteyminu við notenda
rannsóknir og hönnun á notendaupplifun og ferli.
→ Vinnur náið með myndskreyti við nálganir á
föngun þjónustuhönnunar í myndskreytingu.
Gagnasérfræðingur
(100% starfshlutfall)
Gagnasérfræðingur þróar leiðir til að meta arðsemi
og framvindu stafrænnar umbreytingar m.a. með
birtingu lykiltalna á mælaborðum. Hann styður við
gagnadrifna ákvörðunartöku í verkefnum i-teymisins
og stafrænni umbreytingu í þeim tilgangi að bæta
þjónustuupplifun borgarbúa og fyrirtækja.
Gagnasérfræðingur finnur leiðir til að skapa virði úr
gögnum borgarinnar og tekur þátt í þróun gagnahug-
búnaðar, tölfræði- og gervigreindarlíkana.
Helstu verkefni:
→ Útfærsla á birtingu arðsemi og skýrslugjöf
því tengt.
→ Forritun og viðhald á gagnavinnsluferlum.
→ Greining og vinnsla, myndræn framsetning
og miðlun gagna og greininga.
→ Þróun og viðhald á viðskiptagreindarskýrslum
og rekstur tölfræðilíkana.
→ Ráðgjöf varðandi gagnavinnslu og gagnagreiningu.
Atferlishagfræðingur
/Framtíðarfræðingur
(100% starfshlutfall)
Viðkomandi styður við viðskiptaþróun og
stefnumótandi hugsun í i-teyminu, hann freistar
þess að brjóta til mergjar hvað það er sem hefur áhrif
á og mótar hegðun fólks til framtíðar, samþættir
innsýn í atferli einstaklinga við vöruþróun og
hönnun á viðmóti í stafrænni vegferð, og hefur
forgöngu um tilraunir með nýstárlegar lausnir til að
leysa áskoranir í þjónustuveitingu.
Helstu verkefni:
→ Innleiðir ramma og tól til hagnýtingar atferlis-
fræða og skyldra fræða í stafrænni vegferð.
→ Gerir teymum kleift að nýta sér viðeigandi
upplýsingar í allri forritunar- og þjónustuhönnun.
→ Hannar og framkvæmir tilraunir og dregur saman
helstu niðurstöður.
→ Greinir stór gagnasöfn og gerir úr þeim upplýs-
ingar til ákvarðanatöku við þróun lausna.
→ Vinnur náið með UXteyminu við notenda
rannsóknir til að hanna notendaupplifun og ferli.
Myndskreytir
(50% starfshlutfall)
Myndskreytir hefur það hlutverk að þróa áhrifaríkan
og heildrænan myndheim fyrir Hönnu, hönnunarkerfi
Reykjavíkurborgar sem gerir alla stafræna
umbreytingu fallegri, skýrari og mannlegri og styrkir
alla notendaupplifun. Myndskreytir framleiðir
myndefni fyrir ólík viðmót, einn og í samsköpun, auk
þess að skrá sköpunarferlið sjálft frá upphafi til
lokaafurðar.
Helstu verkefni:
→ Þróar skýra ásýnd og teiknar upp fjölbreyttan
myndheim hönnunarkerfisins Hönnu.
→ Framleiðir myndskreytingar fyrir viðmóts- og
útlitshönnun stafrænna vara, fyrir markaðsstarf
og samskipti og annað sem við á.
→ Heimildateiknun í notendarannsóknum til
hagnýtingar í efnisgerð.
→ Skráning og framsetning á sköpunarferli og
myndskreyttum afurðum stafrænnar vegferðar.
Samskiptaséní
(100% starfshlutfall)
Hlutverk sérfræðings í markaðssamskiptum er að
smíða áætlarnir í markaðs- og kynningarmálum fyrir
stafræna vegferð. Hann vinnur að útfærslu,
samræmingu og framkvæmd markaðsaðgerða þvert
yfir sviðið á forsendum samþykktrar mörkunar. Hann
miðlar sögu og áhrifum stafrænnar þjónustuum-
breytingar til starfsfólks borgarinnar, íbúa og
fyrirtækja á þann hátt að tilgangur hennar sé skýr og
að hún stuðli að jákvæðri upplifun.
Helstu verkefni:
→ Treystir stafræna mörkun borgarinnar með
stefnumiðaðri áætlunargerð.
→ Eflir slagkraft í markaðssamskiptum með ráðgjöf
og þjónustu í markaðs- og kynningarmálum.
→ Tryggir að markaðstarf á vegum sviðsins styðjist
við nýjustu og öflugustu miðlunarleiðirnar.
→ Hefur umsjón með framleiðslu á efni í tengslum
við markaðsaðgerðir og birtingar á miðlum.
→ Hefur umsjón með skipulagning ráðstefna,
viðburða og opinna funda sviðsins.
Ef þú vilt vinna á
faglegum og skemmti-
legum vinnustað þar
sem helsti hvatinn er
nýsköpun, umbætur á
þjónustu fyrir borgar-
búa og fyrirtæki og
krefjandi viðfangsefni
þá er Þjónustu- og
nýsköpunarsvið
borgarinnar rétti
staðurinn fyrir þig.
Reykjavíkurborg er skapandi og metnaðarfullur vinnustaður ásamt því að vera sá stærsti á Íslandi. Verkefnin eru
fjölbreytt og snerta daglegt líf borgarbúa með margvíslegum hætti. Vakin er athygli á stefnu borgarinnar um jafnan hlut
kynja í störfum og að vinnustaðir hennar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Launakjör eru
samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.