Fréttablaðið - 11.09.2021, Síða 50
Suzuki bílar • Skeifunni 17
• 108 Reykjavík • 568 5100
BIFVÉLAVIRKJAR
Óskum eftir að ráða bifvélavirkja með reynslu af
bílaviðgerðum til starfa á verkstæði Suzuki bíla h/f.
Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt og hafið
störf sem allra fyrst.
Áhugasamir sendið tölvupóst með ferilskrá á
gylfi@suzuki.is fyrir 20. sept.
Óskum eftir að ráða bifvélavirkja með reynslu af
bíla, utanborðsmótora.- og mótorhjóla viðgerðum
til starfa á verkstæði Suzuki bíla h/f.
Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt og hafið
störf sem allra fyrst.
Áhugasamir sendið tölvupóst með ferilskrá á
gylfi@suzuki.is fyrir 20. sept.
Ármúli 2 ı 108 Reykjavík ı Sími 480 6000
Sérfræðingur
í öryggis- og
fræðsludeild
Í boði er spennandi starf
hjá metnaðarfullri stofnun
í alþjóðlegu umhverfi. Við
bjóðum góða starfsaðstöðu
og frábæra vinnufélaga.
Við hvetjum öll kyn
til að sækja um.
Umsóknarfrestur
er til 20. sept. 2021
Hægt er að sækja
um starfið rafrænt á
samgongustofa.is/storf
Upplýsingar um
Samgöngustofu má finna
á samgongustofa.is
Samgöngustofa leitar að öflugum einstaklingi í stöðu
sérfræðings hjá öryggis- og fræðsludeild á stjórnsýslu- og þróunarsviði.
Helstu verkefni eru skráning sjóslysa og atvika í samevrópskan gagnagrunn auk þátttöku í
greiningu og túlkun gagna um sjóslys. Einnig þátttaka í forvarna- og fræðsluverkefnum sem
miða að því að breyta hegðun og viðhorfum og auka þannig öryggi í samgöngum, með sérstakri
áherslu á öryggi til sjós. Felur það í sér gerð efnis, þ.e. hugmyndavinnu, textagerð, uppsetningu
og skipulag, sem og dreifingu þess, bæði til almennings og afmarkaðra hópa.
Við leitum að einstaklingi sem á auðvelt með að vinna með öðrum í fjölbreyttum verkefnum.
Viðkomandi þarf að hafa frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, gott skipulag og nákvæmni,
jákvætt og opið hugarfar og góða færni í framsetningu og stafrænni miðlun. Starfshlutfall er 100%.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Gerð er krafa um BA/BS gráðu.
• Reynsla af fræðslu eða kennslu er kostur.
• Reynsla af forvarnarstarfi eða stafrænni miðlun er kostur.
• Góð íslensku- og enskukunnátta og færni til að koma fram og tjá sig í ræðu og riti.
• Góð tölvufærni, m.a. við úrvinnslu og framsetningu upplýsinga.
• Þekking og áhugi á siglingum og sjómennsku er kostur.
• Frumkvæði, skipulag og nákvæmni.
• Jákvæðni og góð færni í mannlegum samskiptum.
Yfirmaður þjónustusviðs/þjónustuliði
Menntaskólinn í Kópavogi óskar eftir að ráða yfirmann
þjónustusviðs/þjónustuliða. Starfið felur í sér verkstjórn og
skipulag vegna almennra þrifa á rýmum skólans, verknáms-
húsi og skólalóð. Hér er um dagleg þrif að ræða og umhirðu
skólans. Viðkomandi aðstoðar einnig í matsal nemenda sem
og á skrifstofu og/eða á bókasafni í forföllum.
Yfirmaður þjónustuliða er tengiliður við stjórnendur.
Hann er í samskiptum við nemendur og starfsfólk og
leiðbeinir nemendum varðandi umgengni.
Áríðandi er að viðkomandi búi yfir hæfni í mannlegum
samskiptum, hafi ríka þjónustulund og jákvæða framkomu.
Viðkomandi þarf að búa yfir drifkrafti og frumkvæði til að
leysa þau verkefni sem undir starfið falla.
Reynsla af sambærilegum störfum er kostur.
Menntaskólinn í Kópavogi er frábær vinnustaður, þar er
starfsandi góður og aðstaða til fyrirmyndar.
Laun eru skv. sérstökum samningi Eflingar og fjármálaráðu-
neytis.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans í síma
594 4000.
Sótt er um starfið á starfatorg.is eða með því að senda
ferilskrá og umsókn á netfangið mk@mk.is.
Umsóknarfrestur er til og með 17. september.
Skólameistari
Leikskólakennarar óskast
Leikskólinn Undraland á Flúðum óskar eftir að ráða
leikskólakennara til starfa frá 1. október 2021. Undraland
er þriggja deilda leikskóli á Flúðum. Við skólann stunda
tæplega 50 börn nám.
Við störfum eftir hugmyndafræði Reggio Emilia með
útikennslu að leiðarljósi. Við leggjum áherslu á þarfir
barnanna til frjálsra leikja og getu þeirra til að skapa og
upplifa. Náttúran og umhverfið sem við búum í eru nýtt til
rannsókna og leikja.
Menntun:
Umsækjendur þurfa að hafa lokið leikskólakennaranámi
eða annari tilskilinni menntun. Ef ekki berast umsóknir frá
lkennurum sem uppfylla hæfniskröfur er heimilt að ráða
leiðbeinendur í stöðuna.
Hæfni:
Kennarar og starfsmenn leikskólans þurfa að:
Búa yfir færni í mannlegum samskiptum, sýna frumkvæði,
sjálfstæði og hafa metnað fyrir starfi sínu. Mikilvægur
þáttur í starfi leikskólans er jákvæðni og umburðarlyndi.
Vinna að uppeldi og menntun barnanna í samræmi við
námskrá leikskólans og geta unnið í nánu samstarfi við
stjórnendur leikskólans.
Launakjör:
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslen-
skra sveitafélaga og Félags leikskólakennara. Við hvetjum
fólk af hvaða kyni sem er, til að sækja um hjá okkur.
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu skólans og
en einnig er hægt að senda umsókn með ferilskrá og
upplýsingar um styrkleika umsækjanda á netfangið ingvel-
dur@undraland.is.
Umsóknarfrestur er til 28. september 2021
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma 7686600
eða í tölvupósti ingveldur@undraland.is
Við hlökkum til þess að heyra frá áhugasömum
barnagælum!
Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is
RÁÐNINGAR
RÁÐGJÖF
RANNSÓKNIR
10 ATVINNUBLAÐIÐ 11. september 2021 LAUGARDAGUR